Vísir - 10.09.1969, Síða 5
LAND
® Notaðir bílar til sölu
Höfum kaupenóur að Volkswageu og
Land-Rover bífreiðum gegn siaðgreiðslu.
Til sölu í dag:
Volkswagen 1200 ‘62 ’65 ■
"'Vðlkswágen 1300 ‘67 ‘68
Volkswagen 1500 ‘68
Volkswagen Fastback ’66 ’67 ’68
Volkswagen sendiferðabifr. ’62 ’65 ’68
Volkswagen station ’64
Land-Rover bensín ’62 ’64 ’65 ’66 ’67
Land Rover dísil ’62 ’67
Willys '63 ’65 ’66
Fiat 1100 D ’62
Toyota Corowne De-Luse ’66
Við bjóðum seljendum endurgjaldsiaust afnot
af rúmgóðum og giæsilegum sýningarst. okkar.
VÍSIR . M:ðv?kadagur 10. sepiemfaer 1969.
Lambaskinns-
pelsarnir
mörkuðu svipinn
-« Litið inn á tizkusýninguna á fatakaupstefnunni
þaö er ekkí beinlínis hægt að
segja, aö fatakaupstefnan,
sem stendur núna vfir í Laugar
dalshöllinni hafi komiö manni á
óvart. Ekki varö vart neinna
stökkbreytinga frá því á fata-
kaupstefnunni í vor — heldur
virðast gæðin halda sér og er
það vel út af fyrir sig. Auðvitað
komu nýjungar fram, skemmti-
legar nýjungar sem getið verður.
Nú hefur fatakaupstefnan ver
ið haldin þaö oft, aö visst snið
er komið á hana. Eins og sagt
hefur verið frá í fréttum er þetta
kaupstefna þar sem kaupmönn-
um sefst fyrst og fremst kostur
á að sjá á sama stað helztu
verksmiðjuunnar framleiðsluvör
ur i fatnaöi. Þar geta þeir boriö
saman verö og gæði og valið sér
það, sem þeir vilja og um leiö sjá
þeir hvað það er, sem er helzt
á markaöinum.
fatakaupstefnunni núna
kom greinilega í ljós fyrir
hverja hinn íslenzki fatamark-
aður er — en það eru táningarn-
ir. í táningafötum er salan
örust og öruggust, má ef til
vill segja. Táningarnir eru
greinilega sá aldursflokkur,
sem hefur mesfa peninga til að
leggja í fatgkáup . og mestan
huga á þeim. Þetta kom fram á
þeim fötum, sem sýnd voru og
m.a. í því að ekki var gert ráð
fyrir neinum stórum númerum
sérstaklega — eöa sýndur fatn-
aður fyrif þær eidri og bústnari.
Sniðin Voru líka í sama dúr og
tízkulínan er erlendis — fyrir
unga fólkið.
Það kom manni dálítið á ó-
vart, að ekki skyldu fleiri fram-
leiðendur sýna en- raun bar vitni
á tízkusýningunni — og eins
saknaði maöur mjög, en þaö
voru kjólar. Verksmiðjuunnir
kjólar — kjólar í fjöldafram-
leiöslu virðast ekki vera gerðir
á íslandi. Hins vegar voru buxna
dragtirnar eða buxnaskokkarnir
allsráðandi á sýningunni og sagt
frá því að ekki hafi linnt fyrir-
spurnum síðustu tvo mánuði um
það „hvenær skokkarnir kæmu í
verzlanir.“
JJúsínan í pylsuendanum, á sýn
ingunni, voru pelsarnir, sem
sýndir voru síðast. Vaktu þeir
Herrapelsinn úr íslenzka lambsskinninu vakti mikla athygli.
Það gerðu dömupelsarnir líka. Herrapelsinn kostai 17 þús. en
dömupelsinn, sem er grár 20 þúsund út úr verzlun.
óskipta athygli og aödáun þeirra
sem viðstaddir voru. Isfeldur
sýndi þarna þrjár tegundir pelsa
úr íslenzka lambsskinninu. Pels-
arnir eru ætlaðir bæði til útflutn
ings og einnig til sölu á innan-
landsmarki-öi. Mestu nýjungina
á sýningunni má hiklaust telja
einn af þessum pelsum — herra
pelsinn, sem er úr brúnu lambs-
skinni, tvíhnepptur og fremur
stuttur. Herrapelsar eru nú í há-
tízku erlendis og var þessi pels
fallegt sýnishorn af því, sem má
gera hér heima og er fyllilega
samkeppnisfært við erlenda
vöru. Einnig sýndi ísfeldur gráan
Iambsskinnspels og hvítan lambs
skinnspels. Verðið f smásölu er
17 pús. krónur fvrir herrapels-
inn og sama verð var á hvíta
dömupelsinum, grá‘ pelsinn er
á 20 þúsund, en doppóttu pels-
arnir frá ísfeldi, sem ekki voru
sýndir, kosta 23 þúsund.
Við gerum ekki endasleppt við
pelsana, því ekki má gleyma nýj
asta pelsinum frá verksmiðjunni
Max. Frá Max hafa nú komið
nælonpelsar undanfarin tvö
haust og eru þegar 3 snið og 4
litir í framleiðslu. Nýjasta snið-
ið er þannig að pelsinn er þver-
röndóttur með belti úr leðri eða
leðurlíki. Verðið er kr. 4900
og hægt er að þvo pelsinn, sem
þolir vel að fá á sig skúrir.
A f fyrirtækium, sem sýndu tán
ingatízkuna. síöbuxur,
skokka og jakka bar mest á Mod
el-Magasíni. Model-Magasín
stendur að baki framleiðslu á
skokkum úr salúnefni frá Ála-
fossi sem var ein nýjunganna,
er mest var tekið eftir. Þarna fór
saman mjög skemmtileg vinnu-
brögð og efnisnotkun. Það var
augljóst, að um persónulegri
sköpun en gengur og gerist var
að ræða á þessum flíkum. Kom
það á daginn að Jón Þórisson
hjá Módel-Magasír. teiknaði föt
in og hafði veg og vanda af
þeim.
Prjónadragtir frá Prjónastofu
Önnu Bergmann í Hafnarfirði
eru nýjung, sem hefur verið ó-
ven.ju fljót á ferðinni til íslands.
Erlendis eru prjónaðar síðbuxur
og jakkar hæstmóðins, nýkomið
í tízku. Sleppur fyrirtækið vel
frá þessari framle'ðslu sinni, og
er gaman að fá tízkuna svo
fljótt hingað I verzlanir. Þetta
framtak er til fyrirmyndar.
Af ööru, sem vakt' athygli má
nefna acryljakka frá Prjóna-
stofunni Iðunni, í dökkbrúnum
lit með fornu íslenzku munstri,
að þvi er bezt var séð, og silfur
krækjum. Þessar krækjur eru
fluttar inn frá Noregi. Þetta er
skemmtileg flík sem stingur I
stúf við það venjulega.
Peysurnar voru vandaöar en
fremur er maður orðinn leiður á
öllum þessum gerviefnum, þótt
auðvelt sé að þvo þau. Væri mik
il tilbreyting að sjá alullarpeys-
ur aftur innan um nýju peysu-
framleiðsluna.
JJndirfötin hafa undanfarin ár
verið á mjög háu gæðastigi
og eru ennþá. Heldur er btóndu-
vesenið farið að þreyta mann, og
mættu framleiðendur hafa fjör-
ugra ímyndunarafl hvað snertir
skreytingar. Pífur úr efninu
sjálfu er góð tilbreyting, en 1.
verðlaun fyrir snið og útlit' fær
undirkjóll frá Max, úr hvítu
blúnduefni með rauðum legg-
ingum. Þetta snið er ársgamalt
en stendur sig eins vel og í
fyrra. Önnur tilbreytni í undir-
fatagerð er bömullarnælon, sem
skar sig úr öllurr nælonundir-
fötunum.
I lokin má minnast á skjólfata
gerðina, sem sýnir það að brevt-
ingar eru þar á döfinni, úlpan
fræga er aö þróast upp í þaö aö
veröa faliegasta flik — þaö vant
ar aöeins herzlumuninn á það.
s.b.
UOSASTILUNGAR
Bræðurnir Ormsson hJ
Lágmúla 9, sfmi 38820.
(Beint á móti bensínstöö BP við Háaleitisbr.)
Sími
21240
HEKLA hf
Laugavegi
170-172
EINUM STAÐ
Fóið þér íslenzk gólfteppi fró:
WwSir-kZtv
ZlUima
Ennfremur ódýr EVLAN feppi.
Sparið tíma og fyrirhöfn, og verzlið á einum stcð.