Vísir


Vísir - 11.10.1969, Qupperneq 4

Vísir - 11.10.1969, Qupperneq 4
HMant ■ wiMo’Æ«BPByr '_____________________________, ________________ —— —...........................................................................l4JH Hún var meðvitundarlaus í eitt ár ðMHBHHaamMsanBaniHBaM Myndin af Majbritt, sem varð til þess að hún var „uppgötvuð“. Það var hávaöinn frá sporvagn- inum, sem fór fram hjá gluggan- um hennar á sjúkrahúsinu í Kaup mannahöfn, sem vakti hana. Hún hafði legið meðvitundarlaus í heilt ár. Allan þann tíma hafði móöir hennar komiö og setið hjá •••••••••••••••••••••••■ Hann vill fá hana til að leika Ófelíu Þessi unga stúlka, sem mynd birtist af í brezka blaðinu The Peaple, í myndafrásögn af „brjósta haldalausum“ hefur nú fengið sitt fyrsta kvikmyndatilboð. Er það kvikmyndaframleiðandi, að nafni Arthur Lewis, sem trúir því að hún gæti orðið góð í hlut- verki Ófelíu í kvikmynd, sem hann hyggst gera um „Hamlet“, og á Richard Harris að fara meö titilhlutverkið. „Mig langar aö fá skandinav- íska og óþekkta stúlku til að leika Ófelíu“, segir Lewis. Bæði þau skilyröi uppfyllir einmitt stúlkan, Majbritt Mawson. „Ef hún á annað borð getur leikið er ég handviss um, að hún er einmitt stúlkan, sem é| er að leita að“, bætir hann við. En vandræðin við þetta allt saman eru bara þau, að Lewis veit ekki, hvort Majbritt var að- eins á ferðalagi f London, þegar myndin af henni var tekin, eða hvort hún býr þar. Þannig að Lewis setur fram spumingu sína: Hver er Majbritt? Hann er reiðu- búinn að greiða þeim ríflega fyrir, sem með upplýsingarnar kemur, og að sjálfsögðu Majbritt fyrir að koma til London til að leika hlut- verkið til reynslu. Að vísu þýöir kannski ekki fyrir hann að beina spurningu sinni til okkar íslend- inga, en þetta litla dæmi sannar bara eiginlega, að það er enn í fullri tízku að láta „uppgötva" sig. henni á hverjum einasta degi. Stúlkan, sem við erum hér að tala um heitir Lydia og er níu ára. Lydia er frá Ober við Frankfurt og upphafið að hinum langa svefni hennar var umferðarslys, sem hún lenti í fyrir einu ári. Læknarnir höfðu gefið upp alla von um endurlífgun. „Við höfum gert allt sem í okkar valdi stendur og aöeins kraftaverk getur bjarg- að stúlkunni þinni", sögðu lækn- arnir við móöur Lydiu litlu. — og kraftaverkið gerðist. í Danmörkuteru þess fleiri dæmi aö sjúklingar liggja meðvitundar- lausir um lengri eöa skemmri tíma, og er talið til heldur sjald- gæfra viðburöa, aö þeir vakni af dvala. En svo lengi sem lækninn grunar hinn allra minnsta mögu- leika fyrir að manneskjan lifi er „Mamma“, sagöi Lydia litla er hún •••••••••••••••••••••••• Heimili úr pappír og plasti Morgunverðar- uppþvotturinn al- gjör óþarfi, bara setja allt ofan i pappírspoka og henda þvi — og kaupa nýtt úr pappír. Stúlkan hér á myndinni hefur búið heimili sitt eingöngu húsbún- aði úr plasti eða pappír. Það finnst henni víst mikill kostur vegna þess að þegar hún hefur fengið leiö á hlutunum er ekkert annað að gera en pakka þeim saman og setja I pokfi og hrein- lega henda þeim. Þetta er svo ó- dýrt. Stólarnir og borðið eru úr plasti, einnig rúmið og fatahengið. Rúmfatnaðurinn og púðarnir eru hins vegar úr pappír. Stúlkan hefur einmitt nýlokið við að taka af morgunveröarborð- inu og hreinlega stungið öllu dót- inu ofan í pappírspokann. Þar hef- ur hún einnig sett pappírsglugga- tjöldin, sem hún var búin að fá leið á, já og pappírsfatnaðinn. Já, það er svo sannarlega ódýrt að kaupa pappírsvörur, bara henda því gamla og kaupa nýtt í staðinn, þegar maður er orðinn leiður á hlutunum. haldið áfram, svo fremi sem heyr ist til hjartsláttar. Er hægt að halda mönnum lifandi fræðilega séó, enda þótt að meðvitund þeirra sé ekki vakandi. I Bandaríkjunum hefur einn sjúklingur legið meðvitundarlaus í 28 ár. Er það stúlka, sem missti meðvitund viö svæfingu, er hún sex ára var skorin upp, en hún lifir enn. Spáin gildir fyrir sunnudaginn 12. október. Hrúturinn, 21. mar^—20. apríl. Ekki skaltu ráögera nein ferða- lög i dag, en aftur á móti skaltu ekki setja þig úr færi að kynn- ast nýju fólki, ef tækifæri býðst til. Taktu kvöldið snemma og hvíldu þig vel. Nautið, 21. apríl—21. niaí. ÍÞað er ekki ólíklegt að þú kom- izt ánægjulega að raun um að þér er munaður gamall greiði. Það bendir allt til þess, aö þetta geti orðið þér gagnlegur og skemmtilegur dagur. Tvíburamir, 22. mai—21. júnl \ Láttu ekki hafa þig til að taka afstöðu til manna eða málefna gegn vilja þínum. Það er ekki óliklegt að þú verðir að beita skapsmunum nokkuð í því sam- bandi, en þú sérð ekki eftir því. Krabbinn, 22. júní—23. júlí. Ferðalög ekki aeskileg. Faröu gætilega í umferðinni, og yfir- leitt skaltu ástunda varúð og gætni í dag — einnig í orði. Kvöldið getur orðið skemmtilegt I fámennum kunningjahópi. Ljónið, 24. júlí—23. ágúst. Hafðu það, sem sannara reynist í dag, jafnvel þó það kunni að kosta þig tímabundna óvild kunningja þinna. Dagurinn virö- ist góður til athugana og skipu- lagningar nokkuð fram í tímann. Meyjan, 24. ágúst—23. sept. Þetta getur orðið skemmtilegur og gagnlegur hvíldardagur, ef þú athugar að hafa þig ekki rrijög í frammi og leita ekki marg- mennis. Viðhafðu aðgæzlu í um feröinni og hafðu hóf á öllum / hlutum. Vogin, 24. sept.—23. okt. Gamlir kunningjar, eða kunningi setja svip sinn á daginn á skemmtilegan hátt. Spillir ekki, aö sennilega mun þar um að ræða gagnstæða kynið og eitt- hvað mun rómantíkin segja til sín. Drekinn, 24. okt.—22. nóv. Svo virðist sem eitthvað það, er þú hefur undirbúið í samræmi við daginn, fari út um þúfur á síðustu stundu af óvæntum á- stæðum. Samt sem áður er lík- legt að dagurinn veröi sæmileg- ur. Bogmaðurinn, 23. nóv.—21. des. Það lítur út fyrir að þér takist vel að afla tillögum þínum og áhugamálum fylgis í dag, jafnvel betur en þú kannt að gera þér grein fyrir í fljótu bragði, en' kemur fram síðar. Steingeitin, 22. des.—20. jan. Láttu ekki fremur smávægileg- ar erjur innan fjölskyldunnar gera þér gramt í geði, ef þú var- ast það, getur dagurinn orðið þér ánægjulegur um margt, eink um þegar á líður. Vatnsberinn, 21. jan.—19. febr. Þú skalt ekki hyggja á nein ferðalög í dag. Yfirleitt skaltu hafa þig sem minnst í frammi, en taka hins vegar þátt í því, sem kann að bjóðast og þú hef- ur áhuga á. Fiskamir, 20. febr.—20. marz. Það er ekki ólíklegt aö eitthvað þaö gerist i dag, sem hefur mjög jákvæða þýðingu fyrir þig, eink- um þegar frá líður. Kannski kynnist þú einhverjum, sem að því stuölar.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.