Vísir - 11.10.1969, Blaðsíða 9
Borgar vegur yfir Sprengi-
sand sig upp á einu ári?
Munda Aagestad, skólanemi:
„Nei, það finnst mér ekki. Ég
er algjörlega á móti eiturlyfjum
og fyndist mér frekar að herða
ætti eftirlit á innflutningi.“
Þórður Kristjánsson, nemi í
K.I.: „Alls ekki. Þetta er allt of
sterkt og hættulegt. Ætti frekar
að herða efirlitið."
V í SIR . Laugardagur 11 Vctóbar 1989.
Wgjgasaffi/OL..^-u-.__uw.—-
s
□ Því hefur verið haldið fram í fullri alvöru, að
gerð varaniegra vega vega væri ein bezta fjár-
Ífesting, sem landið gæti nú ráðizt í. Hvort sem
menn vilja trúa þessari staðhæfingu eða ekki verð-
ur því þó ekki mótmælt, að samgöngur eru einn
veigamesti lykillinn í efnahagslífi þjóðanna. Þetta
eru ekki ný sannindi. Rómverjar hinir fornu gerðu
sér mætavel grein fyrir þeirri staðreynd, enda var
vegagerð þeirra, sem enn sér minjar um, forsenda
þess að unnt reyndist að halda heimsveldi þeirra
saman, þegar það var stærst og mest. En það þarf
ekki rómverskt heimsveldi til að sjá mikilvægi
góðra samgangna. íslendingar fengu eftirminnilega
að kynnast því, hvaða þýðingu samgöngur hafa,
þegar landið komst undir Noregskonung, beinlín-
is, að því er haldið hefur Verið fram, vegna þess
að skipaeign landsins féll saman.
styttazt milli Reykjavíkur og
Akureyrar fram og til baka.
Talið er, að um 30 stórar vöru-
flutningabifreiðir fari á milli
Suður- og Suðvesturlands ann-
ars vegar og svæðisins frá Eyja-
firði til Hornafjaröar hins vegar
daglega ’yfip i1 súmdrfriáhuðina.
Yfir vetrarmánuðina er talan
áætluð um 10 bílar. Ef aðeins
sparnaðurinn á vöruflutningun-
um væri reiknaður út, kæmu út
úr því dæmi 80—90 milljónir
króna árlega eða tvisvar til
þrisvar sinnum hærri upphæð,
en vegurinn gæti hugsanlega
orðið ódýrastur,
Tjetta er auðvitað afar gróft
reiknisdæmi, en það á einn-
ig eftir að bæta við þessa upp-
hæð spamaðinum af akstri
einkabifreiða, aukningu á mögu-
leikum fyrir ferðamannaiðnað-
inn og þá örvun, sem efnahags-
og atvinnulíf landsins gæti
hugsanlega orðið aðnjótandi
vegna þessara samgöngubóta.
Það væri ekki lítill ávinningur,
ef leiðin milli Suður- og Suð-
vesturlands og Norður- og
Austurlands styttist um 100—
130 km og er erfitt að meta
slíka örvun til fjár.
Þá er eftir að meta sparnað-
inn af því, að þessi vegur gæti
hlíft núverandi vegum norður í
landi á vorin, þegar frost er að
fara úr jörð, en þungaumferð
veldur ávallt miklum spjöllum
á vorin, einmitt á þeim tíma,
sem oft er mikil þörf fyrir slfka
flutninga. Þar sem frost fer úr
jörö mun seinna uppi á há-
lendinu en í byggð, er enn frost
í jörö á Sprengisandi meðan
byggöarvegir eru hvaö við-
kvæmastir.
Séu öll þessi atriði rétt má
halda því fram grínlaust, að
vegur yfir Sprengisand kostaði
minna en ekki neitt eða svo
mætti segja um veg sem borg-
aði sig upp á skemmri tíma en
einu ári í beinum útreiknanleg-
um kostnaðartölum.
V. J.
Á mánudag verður álit
nokkurra valinna manna
um þetta efni birt í Vísi.
Unnur Símonar, húsfrú: „Nei,
alls ekki. Og mér finnst aö
herða ætti allt eftirlit með inn-
flutningi, ef reynist rétt, aö
unglingar séu famir að neyta
þessa hér heima. Maður hefur
heyrt um þvflíkar hörmungar
og eymd sem fólk lendir í vegna
alls konar eiturlyfjanotkunar, að
rtiér finnst skylda okkar að
gera allt til að útiloka ísland
frá þeim hörmungum."
Haraldur Hrafnkelsson, bif-
vélavirki: „Ég held að þaö væri
ekki rétt. Þetta er allt of
sterkt.“
Þorvaidur Jónsson, prent-
myndasmiður: „AIls ekki. Mér
finnst tvímælalaust, að allt eigi
að gera til aö hindra innflutning
á þessu skaöræði.“
Sigríður Ámadóttir, skrif-
stofustúlka: „Nei, ég er algjör-
lega á móti því. Mér finnst
frekar að við ættum að setia
strangara eftirlit í sambandi við
innflutning frá útlöndum, til að
hægt sé að koma í veg fyrir
eiturlyfjasmygl, ef eitthvað er.“
— Rætf um hugmynd um jboð oð gera veg þvert yfir hálendið
Teljið þér að leyfa eigi
innflutning á hassi?
Hólafjall í uppdölum Eyjafjarðar er einn mesti þröskuldurinn
á leiðinni, en þó ekki meiri en svo, að nú þegar liggur akfær
ruðningur yfir fjallið.
í öllum tilvikum er erfitt að
reikna nákvæmlega út
hvaða fjárhagslegt gildi sam-
göngur hafa, en stundum er
hægt að reikna út beinlínis
hagkvæmni þeirra að hluta. —
Þannig kann að vera um hug-
mynd, sem nú hefur komið fram
m. a. hjá Valdimar Kristinssyni,
viðskiptafræðingi, um gerð veg-
ar yfir Sprengisand.
Valdimar hreyfði þeirri hug-
mynd nýlega, að gerður yrði
Ivegur yfir Sprengisand niður í
Eyjafjörö, en aðeins þyrfti að
leggja um 120 km veg til við-
bótar þeim vegum, sem þegar
hafa veriö gerðir eða áformaðir
eru, til að koma á vegasambandi
þvert yfir hálendið. Þetta er
leiðin yfir Sprengisand frá Þór-
isvatni niöur í Eyjafjörö.
Vegna Þjórsárvirkjana hefur
verið gerður ágætur, nýendur-
byggður vegur frá Skeiðum upp
að Búrfelli.
Efri brúin á Þjórsá, sem
var gerð vegna Búrfellsvirkj-
unar verður látin standa.
Tungnaá við Sigöldu hefur
einnig verið brúuð og verið er
að gera ágætisveg þangað, en
n eftir þessar tvær brýr eru
engin veruleg vatnsföll, sem
hindra leiðina noröur yfir. Þá
hefur verið ákveðið að gera veg
frá Sigöldu að Þórisósi við
norðurenda Þórisvatns, vegna
miðlunarmannvirkja, sem reisa á
við Þórisvatn.
Vegurinn frá Þjórsá að
Tungnaá, yfir 30 km að lengd,
mun aðeins kosta 8V2 milljón
króna eins og frægt er orðið,
en mjög hagstæð tilboð bárust
í gerð hans.
„|7 f reiknað væri með sama
kostnaði mundi vegur frá
Þórisósi og niður i vegakerfi
Eyjafjarðar kosta um 35 millj.
króna. En þótt kostnaðurinn
yrði verulega meiri mundi vega-
gerðin fljótlega borga sig,“
segir Valdimar Kristinsson, og
heldur síðan áfram: „Kunnugir
munu telja, að auðveldast sé
að gera sæmilegan veg niður í
Þormóðsdal og síðan liggur leið
in um Sölvadal niður í Eýja-
fjörð. Löng og brött brekka
verður við hálendisbrúnina að
norðanverðu, en það má líka
heita eina verulega erfiða brekk-
an alla leiðina frá Reykjavík.
Nýja stutta brú þyrfti á
Köldukvísl, en þar fyrir utan
mundu ræsi víðast hvar duga,
enda er leiðin um Sprengisand
þurrlend, og á þessum slóöum
mun úrkoma ekki mjög mikil.
Búast mætti við aö blása mundi
af upphleyptum vegi á vetrum
og yrði leiðin því væntarilega
snjólétt, nema þá helzt þar sem
farið væri niður í Eyjafjörð.
Reynist þetta rétt, þá mundi
opnast þarna greiðfær sumar-
Ieið öllum bílum og vetrarleið
fyrir stóra bíla. Þungu bílarnir
gætu ekið mun greiðar en í
byggð, þar sem þeir þyftu ekki
oft að fara upp á heiðar og nið-
ur af þeim aftur, og langir kafl-
ar á Sprengisandsleið eru renni-
sléttir."
„Þarna mundi leiðin Reykja-
vík—Akureyri verða rúmir 350
km eða nær hundraö km styttri,
en þegar farið er um byggðir.
Þegar svo væri komið mundu
einhver ráð veraö til að laga
leiðina niöur í Bárðardal og þá
yrðu ekki nema rúmir 400 km
til Húsavíkur og leiðin frá
Reykjavík þar með 130 km
styttri en nú er.“
„Sé hugsað enn lengra fram
í tímann og miðað við stór-
virkjun á Austurlandi, sem nú
er farið að ræða um, þá mynd-
aðist þar ný leið austur á bóg-
inn sem yrði um 450 km milli
Reykjavíkur og Egilsstaða eða
hátt í 300 km styttri en núver-
andi leið. Þegar svo væri komiö
mætti meö sanni segja, að landið
væri ekki hið sama og áður.“
A/’egna þessarar hugmyndar
Valdimars leitaði Visir álits
nokkurra valinna manna á
henni, en álit þeirra verður birt
hér í blaöinu á mánudag. Við
ákvöröun um gerð svona vegar
er að sjálfsögöu margs að gæta
og er því ekki við því að búast
að svörin geti að fljótt athuguðu
máli verið alveg einhlít Það
kemur þó fram, að umferð t. d.
stórra vöruflutningabifreiöa yfir
Spreng;sand þyrfti ekki að vera
ýkjamikil til þess að vegurinn
borgaði sig fljótt. 10 tonna
vöruflutningabifreiö kostar um
15 þús. kr. á 200 km eða á jafn-
mörgum km og ieiðin myndi
Greiðfær vegur liggur nú þegar aö Búrfelli 130 km frá Reykja-
vík, en fljóílega verður vegurinn aö Þórisósi 185 km frá Rvík
tuilgerður. Þaöan eru 120 km niður í vegakerfi Eyjafjarðar.
Á kortið eru einnig dregnar punktalínur, sem sýna hugsan-
legan veg austur á land.