Vísir


Vísir - 19.11.1969, Qupperneq 13

Vísir - 19.11.1969, Qupperneq 13
VÍSIR . Miðvikudagur 19. nóvember 1969. d Eggið inniheldur mikið af næringarefnum og fjörefnum. Egg til margra hluta nytsamleg — og hafa fengizt mjög ódýrt TTndanfarna mánuöi hafa egg verið með ódýrari fæöuteg- undum. Kílóið af eggjum hefur kostað 90 krónur í verzlunum og enn minna þegar þau hafa verið boðin til sölu- af eggja- framleiðendunum sjálfum, sem hafa gengið í hús með egg til sölu. Hefur kílóið jafnvel kom- izt niður 1 75 krónur. Nú hefur framboðið minnkaö og verðið aftur stigið og kostar kílóið af eggjum nú 112 krónur í verzl- unum. Þó eru eggin ekki dýr á þessu verði miðað við sumar aðrar vörur, ef miðað er við nær ingargildi þeirra. Ódýr egg í kílóinu eru yfirleitt 16—17 egg. Ef miðað er við það að eggjakílóið fáíst á 80 krónur og í kílóinu séu 16 egg, kostar hvert egg 5 krónur. Egg eru ó- dýrara álegg en margt annað. Hálft egg á brauðsneið kostar þvi 2.50, en til samanburðar kostar ein sneið af roast beef 10 krónur, ein sneið af malakoff pylsu 7 krónur, ein sneið af rúllupylsu rúmar fimm krónur, sömuleiðis hangikjötssneiðin. Eitt kíló af súpukjöti kostar 120 krónur. Fjörefnarík Ýmislegt má tína til, þegar rætt er um kosti eggjanna. Þau eru næringarrík og innihalda mikið af fjörefnum, einnig eru þau auömelt og því ágætis sjúkrafæða. I eggjarauðunni er jám, fosfór, önnur sölt, A, B og D-vítamín, einnig kalk og fita. Konur skortir yfirleitt járn og er þetta því mjög góð fæða fyr- ir þær. í eggjahvítu eru hvítu efni, B-vítamín og svolítið af söltum. Skemmtileg Egg eru skemmtileg fæöa, því að það er hægt að nota þau á svo margvíslegan 'hátt, þau ættu þvi seint að verða leiði- gjörn, þeim sem borða þau. Mikla áherzlu má leggja á það, að fjölskyldan fái sér linsoðin egg í morgunmat, áður en vinnu dagurinn hefst. Egg eru góð und irstaða fyrir vinnudaginn og skélasetu þeirra yngri. Einnig er mjög fljótlegt að matbúa egg. Linsoöið egg er yfirleitt soöið í 31/2 mínútu. Egg hafa margvíslega eigin- leika, Þau lyfta og eru því höfð í kökur, bakstra o. fl. Þau binda, sem dæmi má nefna hrærð egg og pönnukökur, þar sem eggjum og hveiti er blandað saman. Þau jafna og mýkja, en ein eggjarauða jafngildir 5 gr. af hveiti, þegar gera skal sósur t. d. Eg'gjarauður blandast fitu og eru því notaðar í majones. Egg skíra því eggjahvítan hleyp ur við upphitun. Ef hún er hit- uð í soði verður soðið tært, því gruggið fellur út með eggjahvít unni þegar hún hleypur. Hægt er aö nota egg í eftir talda rétti og til þessara nota m.a.: í,eggjadrykki, hrá á brauð sneiðar og í rétti, soðin, lin- soðin, harðsoðin, með súpum, sem álegg, sem hleypt egg, steikt egg, hrærð egg, í eggja- köku, í sósur, í eftirrétti, í bakstur og til snyrtingar. Geymsla Geymsla eggja er mikilvægt atriði. Eggin geymast bezt á köldum stað við 3 — 12 stiga hita. ísskápurinn er góður geymslustaður, en eggin þurfa að vera aöskilin frá öðrum mat vælum. Ef ekki er sérstök eggja geymsla í skápnum er betra að leggja plasthimnu yfir eggin þar sem þau geta að öðrum kosti tekið í sig önnur bragð- efni. Einnig er bezt að geyma eggin þannig að mjórri endinn snúi niður, vegna þess að rauð urnar stíga upp og í mjórri end anum komast þær frekar í snert ingu við eggjaskurnina. Hvítan í nýjum eggjum er tær og seig, en í gömlum eggjum er hún þunn og gruggug. í nýorpnum eggjum fylla eggjahvítan og rauðan næstum alveg út í skum ið. En við geymslu gufar vatn burt úr egginu, vegna þess að eggjaskumin er óþétt. í staðinn safnast loft i breiðari enda eggs ins. Egg þola meiri geymslu en fólk ímyndar sér almennt. — Geymslutími eggja er miðaður við það, að þau séu ný. Hægt er að geyma egg við 25 stiga hita i allt að því mánuð, við 12 stiga hita í þrjá mánuði, en við 5 stiga hita fjóra mánuði. Það finnst strax á bragði eggja þeg ar þau eru orðin gömul. Hægt er að geyma eggjahvít- ur í a.m.k. 2 — 3 sólarhringa ef þær eru geymd í skál, sem bund ið er yfir, í ísskápnum. Eggja- rauðuna er hægt að geyma einn dag, ef hún er lögð varlega f skál og ofurlitlu vatni hellt yf- ir, rauðan má ekki bresta. ÁI- þynna er sett yfir skálina og hún sett í ísskápinn. Gæta skal þess að geyma eggin ekki í pappaboxunum, sem þau em seld í í verzlunum, þar sem pappinn veldur því að vökvinn í eggjunum gufar upp. Bezt er að slá eggin úr skum- inni á brún, sem er ekki of skörp. því rauðan má ekki fara í sundur. Bezt til þessara nota er brún á bolla eða diski. Eggiö á að slá úr snöggt, en ekki of fast. Hægt er að nota stífþeyttar eggjahvítur í marga rétti en ekki er sama hvemig eggin em þeytt. Skál og þeytari verða að samsvara hvort öðm. Bæði skál og þeytari þurfa að vera þurr og köld og það má ekki vera nein rauöa í hvítunni. Þegar rafmagns þeytarar eru notaöir á að setja þá á lægsta hraða, þar sem hrað- ari þeyting verður til þess að endist ekki eins lengi. Meö þeyt- ara, sem er ekkí rafmagnsknú- inn á að vera hægt að þeyta tvær eggjahvítur á tæpum þrem mínútum. Snyrtimeðal Eggjarauðan hreinsar, mýk- ir, nærir og yngir húðina. Ein eggjarauða er hrærð saman við 1—2 msk af ólífuolíu eða möndluolíu, ásamt 1 msk sítr- ónu-, appelsínu- eöa tómatsafa, f mjúkt krem. Þegar þessi skammtur er geymdur á köldum stað f loftþéttum umbúðum næg- ir hann f 3—4 daga. Ofurlítið af eggjakreminu er sett á húðina bæði morgna og kvölds og á að- eins að vera augnablik á. Einu sinni til tvisvar f viku er hægt að láta eggjamaskann þorna al- veg inn, áður en hann er þveg- inn af með volgu vatni. Eggjahvítan hreinsar, tekur fituna af, spennir og yngir upp húðina. Eggjahvítur hafa mjög góð áhrif á húöina og hárið. Hvítumar eru þeyttar létt sam- an með gaffl; og notaðar ein- tómar sem andlitsmaski eða að viðbættri einni msk af sítrónu- safa. Þegar maskinn er alveg þurr er hann þveginn af með volgu vatni. Hér koma svo f lokin tveir eggjakúrar. Fyrir þurrt og venju- legt hár: 2—3 eggjarauður eru hrærðar saman við 1 msk af sítrónusafa og 1—2 msk möndluolíu, og núið í hárið. Þeg- ar eggjahræran hefur þomað of- urlítið, er hún þvegin úr hárinu — fyrst úr köldu vatni og síðan úr volgu. Fyrir feitt eða mjög óhreint hár: 2—3 eggjarauður eru hrærðar saman við 1—2 msk sítrónusafa og núið f hárið. Þegar hræran er þornuð í hárinu og það skolað úr köldu vatni og þvegið aftur upp úr stífþeyttum eggjahvftum. Hárið skolað vel úr volgu vatni. í síðasta skol- vatnið má setja edik (2 msk í lítra af vatni), sem hefur þau áhrif á hárið, aö það glansar enn meira. LIIMDARPREIVT- SF KLAPÍ'AP jy L.ndor:; J >ÍMI .MS/ý ® Notaðir bílar til sölu Höfum kaupendur að Volkswagen og Land-Rover bifreiðum gegn staðgreiðslu. Til sölu I dag: Volkswagen 1200 ’56 ’59 ’65 ’68 Volkswagen 1300 ‘66 ‘67 ‘68 ’69 Volkswagen Fastback ’66 ’67 Volkswagen sendiferðabifr. ’66 ’67 ’68 Volkswagen station ’67 Land-Rover bensín ’62 ’64 ’65 ’66 ’67 ’68 Land-Rover dísil ’62 ’65 ’67 Willys ’66 ’67 Fíat 600 fólksbifr. ’66 Fíat 124 ’68. Fíat 600 T sendiferðabifr. ’66 ’67 Toyota Crown De Luxe ’67 Toyota Corona ’67 Volvo station ’55 Chevy-van ’66 Chevy Corver ’64 sjálfskiptur m. blæju. Taunus 17 M station ’66 Volga '65 Ford Bronco ’66 Singer Vogue ’63 Rússajeppi Gaz. ’66 Benz 220 ’59 Við bjóðum seljendum endurgjaldslaust afnot af rúmgóðum og giæsilegum sýningarsal okkar. Sírni 21240 HEKLA hf Laugavegi 170-172

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.