Vísir - 04.12.1969, Síða 5

Vísir - 04.12.1969, Síða 5
VfSIR . Fimmtudagur 4. Æesember 1969. Ný köf unartækoi veldur byltingu í djúpköfun Gerir fært að vinna 8 stundir samfleytt á 60 metra dýpi Tpwda þött margar tækniþróað- ar þjóðir — með Banda- ríkjamenn óneitanlega í farar- broddi — leggi nú ríka áherzlu Meö tilkomu þessa tækis geta kafarar nú unnið 8 stunda vaktavinnu vikuna út á því dýpi, þar sem þeir gátu áður ein- ungis hafzt við í 20 mínútur í senn. á það, sem kalla mætti landnám á hafsbotni, og oft hefur verið á minnzt í þessum þáttum, á maðurinn mörg og margvísleg erindi önnur ofan í djúpin en aö setjast þar að um lengri eða skemmri tíma. Má þar meöal annars tii nefna björgunarstarf- semi í sambandi við sokkin skip, gerð alls konar djúpvatns- mannvirkja — stíflur, lagnir j alls konar á vatns eða hafsbotni | og hafnarmannvirki — og við- geröir á þeim og viðhald. Þessi störf hafa verið unnin af köfur- um, og hafa verkefni þeirra auk- izt mjög á síðustu áratugum — einkum í sambandi við olíubor- un og virkjun olíulinda á hafs- botni. Þótt allri tækni varðandi gerð djúpköfunarbúninga hafi fleygt mjög 'fram á síðustu áratugum, svo og kunnáttu og tækni í sam- bandi við blöndun og stillingu þeirra lofttegunda, sem dælt er niöur til kafarans, hafa afköst kafaranna á miklu dýpi verið mjög takmörkuð til þessa. Há- marksafköst þjálfaðra kafara hafa hingað til verið talin 20 mínútur á dag þegar kemur nið- ur á 60 m dýpi. Svonefndir ,,froskmenn“ geta komizt niður á það dýpi, séu þeir þrautþjálf- aðir og búnir fullkomnustu tækj- um, en ekki dvalizt þar lengur en í 2 mínútur. Þessi takmörkuðu afköst hafa seinkað mjög öllum framkvæmd -um, sem vinna verður að á miklu : dýpi, og gert þær að sama skapi dýrar, eins og gefur að skilja. Það er því ekki að undra þótt sleitulaust hafi verið að þvi unn- ið að finna nýjar köfunaraöferö- ir, sem geri kafaranum klei-ft að vinna mun lengur í einni lotu á rnikiu dýpi. Ti-1 merkis um það, hve tafsamt það er að vinna að ýmsum framkvæmdum á svip- uöu dýpi og áður er nefnt, að áætiað var að viðgerð á síu viö innstreymispípu neðst á stíflu við raforkuver eitt í Bandaríkj- unum, og er til þess ætluð að koma veg fyrir að aðskotahlutir berist inn í hverfiana, tæki ekki minna en ár með þeim fullkomr,- asta köfunarútbúnaðí, sem nú er almennt notaður. AMt útlit er þó fyrir að siíkar viðgeröir taki mun skemmri tíma í framtíðinni — að minnsta kosti fór svo að það tók flokk átta kafara ekki nema 40 stundir að vinna þetta verk. Þar var í fyrsta skipti beitt nýrri, tækni- legri aðferð og tækjum, sem verkfræðingar við Westing-house Electric Corp. hafa unniö að um nokkurt skeiö, og tekizt að full- komna svo, að ekkert virtist því til fyrirstööu i sambandi við þessa fyrstu tilraun, að kafar- amir'gætu unnið samfleytt átta stundir á sólarhring á allt að 60 m dýpi, hviit sig í sextán stund- ir og síðan unnið aftur í átta stundir; með öðrum orðum, unn- ið þrískiptar vaktir vikunaút.Og ekki nóg með það, heldur gera verkfræðingarnir sér vonir um að áður en langt um líður hafi þeir fullkomnað þessa tækni svo að kafararnir geti unnið áhættu- laust þrískiptar vaktir jafnlang- an tíma á allt að 135 m dýpi. Þessi nýja aðferð byggist á tækj nokkru, eins konar þrýsti- klefum, samtengdum, sem verk- fræöingarnir hafa skírt „Cacha- lot“, en svo nefna enskumælandj þjóðir — og raunar fleiri — búr- hvelið, sem eins og kunnugt er, kafar dýpst allra spendýra. Við köfun er annar þrýstiklefinn við yfirboröið, en hinn sígur með kafarann innanborðs allt að botni, þar sem kafarinn fer út úr honum til vinnu sinnar. Þeg- ar hann hefur unniö þar í átta stundir eða svo, fer hann aftur inn í neðri þrýstiklefann, sem dreginn er þá upp undir hinn og tengdur honum með loftþéttum umbúnaði. Heldur kafarinn, sem var að starfi, þá inn í efri klef- ann en annar tekur við og fer inn í þann neðr; og heldur til starfa á hafsbotni. Sá sem kom, hvílir sig svo í efri klefanum, sem er mjög rúmgóður og meö ákjósanlegasta aðbúnaöi, í sextán stundir, eða þangað til hann heldur aftur til starfa á hafsbotni. Þrýstingurinn í báöum þessum klefum er alltaf hinn sami og á því dýpi, sem kafarinn vinnur viö á botni, þannig að hann býr stöðugt við sama þrýsting vinnu- vikuna út. Sé unnið á 60 m dýpi, nemur sá þrýstingur þvi sem næst 7 kg á hvem fersm. Loft- blandan sem þeir anda að sér gegnum loftleiðslurnar, er vísindalega blönduð með tilliti til þessa þrýstings, helium, súr- efni og köfnunarefni í nákvæm- lega stilltum hlutföllum. Þegar svo vinnuvikunni lýkur, eru kaf- ararnir ,,afþrýstir“ hægt og ró- lega í efri kléfanum, þangað til þeir eru undir það búnir að fara út og heim til sín. Áður átti sú afþrýsting sér stað í hvert skipti sem komið var úr kafi, en hún reynir ef til vill öllu meira á Hffæri kafarans en sjálf köfunin, að því er taliö er. Enda þótt þarna sé um allt aðra aðferð og tæknj aö ræða, en þá sem að undanfömu hefur verið reynd í sambandi við „landnámið á hafsbotni“, getur þessi aðferð auðveldað mjög hagnýtingu ýmissa þeirra verð- mæta, sem hafsbotninn lumar á, sér í lagi mun hún koma aö gagni við olíuleit þar og virkjun neðansjávar olíu og jarðgaslinda. Einnig viö undirbúning að ýmiss konar máim- og efna- virmslu. 5 Elti þjófinn og nóði honum óður en hunn ##sf2!kk með sfræfisvugní Bíleigandinn gekk frá húsinu á- leiðis til bíls síns, en stanzaði og stóð eins og negldur ... EINHVER • var í bílnum að bauka... AÐ STELA. í stað þess að ganga aö þjófnum, kæra hann, en heyra síöan útúr- snúninga og afsakanir fyrir að hafa farið ínn í skakkan bíl og fleira þras, ákvaö bíleigandinn að draga sig í hlé og fylgjast með þjófnum úr Ieyni. Hann hafði skilið bilinn eftir ó- læstan, þessar örfáu mínútur, sem hann var inni í Tjarnarbúö, og nú sá hann, að þjófurinn var 14 eða 15 ára unglingur, sem hann hafði mætt á leiöinni í húsiö. Stuttu á eftir yfirgaf pilturinn ■ bílinn og eigandinn elti hann f hæfi legri fjarlægð, svo að þjófurinn , varö aldrei var við eftirförina, þótt hann liti oft um öxl og nær hlypi við fót. Fáir voru á ferli, enda liðið fram yfir miðnætti. Einmitt meðan bíleigandinn var að velta vöngum yfir því, hvort hann ættí að elta þjófinn heim til hans, eða stööva hann á eigin spýt- ur, sá hann tvo Iögregluþjóna á- lengdar og eftir stutta skýringu fékk hann þá í Iið með sér. Þjöfnum varö ekki líti'ð bilt við, þegar hann fann þungan arm lag- anna leggjast á öxl sér, um Ieið og hann ætlaði aö greiða fargjald- ið í Hafnarfjarðarstrætó — sjálf- sagt orðinn öruggur um, að nú væri hann sloppinn, Hann var færður á lögregluslöð- ina, en eigandinn fékk aftur þýfið — útvarpstækiö og nokkra smá- hluti, sem verið höfðu í bílnum. • RITSTJÓRN lAUGAVEGl 178 SÍMI1-16-60 & ii Magnús E. Baldvinsson Laugavegi 12. — Sími 22804. FISH & CHIPS DJÚPST. KJÚKUNGAR SILDARRÉTTIR KAFFI, KAKO, SMURT BRAUÐ, YFIR 15 TEG. HEIMABAKAÐAR KÖKUR HOFUM FAST VIKU- FÆÐI - SENDUM PANTIÐ ) SIMA 34780 SMARAKAFFl LAUGAVBGI 178

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.