Vísir - 23.12.1969, Side 4

Vísir - 23.12.1969, Side 4
☆ Það var hinn kunni Fritz Ruz- icka, milligöngumaður margra frægra listamáuna, sem kom þess ari sænsku stúlku fyrst á fram- færi í Danmörku, þar sem hún settist að á sínum tíma. Féll Dön um það vel í geð, þegar þessi sænski gestur þeirra keypti sér íbúð í Kaupmannahöfn og gerð- ist ein af þeim. Ingela Brander eirir ekki leng- ur í Sviss Þjóðlagaþáttur í sjónvarpinu Ingela Brander, kynbomban, rafmagnsverkfræðingurinn, sem eitt sinn skemmti hér í samkomu húsi í Reykjavík með saxófón- spili o. fl., dalaöi á vinsældalist- anum í Danmörku, þegar hún flutti til Sviss og settist þar að, en seldi ailt sitt i Kaupmanna- höfn. Frá Sviss hefur hún svo ferðazt víöa með saxófóninn sinn og skemmt. Nýlega kom hún fram á hljómieikum í Basel, sem haldn ir voru til ágóða einhverri góð- gerðarstofnun, og eftir því, sem fram kom í blööum í Basei, ger- sigraði hún hjörtu allra við staddra. Hins vegar féll það í miður góðan jarðveg hjá þeim, þegar hún flutti alfarin til Sviss, þar sem hún um skeið kom oft fram og hafði um leið nokkurs konar mið stöð, en hún er mikið á ferðalög- um um hin ýmsu lönd Evrópu, aöallega hin suðlægari, og var þá Kaupmannahöfn dálítið úr- leiðis. Nú hefur aftur á móti spurzt út, að hún sé á höttunum eftir íbúð í Kaupmannahöfn og hafi í huga að flytja þangað aftur. Hef- ur hún beðið vini sína, búsetta þar, að svipast um eftir hentugu smáhýsi fyrir sig. Ungt fólk hefur ekki um auð- ugan garð að gresja á jóladag- skrá sjónvarpsins að þessu sinni, en við viljum þó benda á þjóð- lagaþátt, sem sýndur verður að kvöldi laugardagsins 27. desem- ber. Þar koma fram (t.v.): Fiðr- ildi, Hörður Torfason, Árni John sen og Árið 2012. Þátturinn ber nafnið „Gekk ég í grænan skóg“, og stjómaði Andrés Indriðason upptökunni. Að lokum má geta þess, aö Monkees láta til sín heyra kl. 3 á aðfangadag og ber sá þáttur heitið „í jólaskapi." Ingela Brander hefur nú aftur fengið augastað á Kaupmanna höfn til búsetu. „Það verður að ávana að gefa út blöð44 — Viðtal við ritstjóra pop-blaðs A þessu ári, sem senn er á enda hafa mörg pop-biöö litið' dagsins ljós og jafnmörg hafa liðið undir lok, og bera útgefend urnir ýmsu við, þegar spurt er um ástæöuna. Pop-punktar litu inn á ritstjórn arskrifstofu eins táningablaðsins í síðustu viku og var tilgangurinn sá, að heyra afsökun einhvers rit stjórans á því hléi, sem orðið hef- ur á útgáfu pop-blaðanna hér í borg. Sá ritstjóri. sem varð fyrst fyrir því óláni, að verða á vegi okkar, var enginn annar en Ottó sjálfur Ólafsson, en hann hef- ur starfað viö þrjú pop-blöð og eru það blöðin Topp Korn, Jón Hreggviðsson Fæðingin Fyrsti kafli og nú síðast Samúel. Afsökun Ottós hljóðaði á þessa leið: „Það sem lamaði pop-blöðin að þessu sinni, var það, að þau geystust öll fram á markaðinn um sama leyti og áttu ungling- arnir erfitt með að velja og hafna, og urðu að nota happa og glappa aðferðina við að velja sýn ishom úr þeim fjölda, sem á boð stóium var, — en eins og gefur að skilja höfðu þeir ekki efni á aö kaupa öll blööin. Afleiðing- in varð sú, að kaupendafjöldinn dreifðist það mikið, að hvert blað fyrir sig hlaut ekki nægilega sölu til að geta haldið áfram.“ ,.F.n telur þú vev grundvöll fyrir pop-blaðaútgáfu hér á landi? ‘ „Já, fyrir eitt vandað blaö — og þá aðeins eitt, Topp Kom hlaut mjög góðar viðtökur og seldist í stóru upplagi, enda var það eina blaöiö sinnar tegundar, sem var á markaðinum þá stund- ina.“ „Hvað varö um Jón Hreggviðs- son?‘‘ „Hann sameinaðist Samúel." „En er Samúel ekki ’’ættur?“.., „Varstu beðinn að spyrja eða hvað?“ „Nei, nei. Er þér kannski illaV- við að ræða þessi mál?“ „Já.** Þegar hér var komið sögu var Ottó orðinn það fúll í skapi, að mér þótti vissara að breyta um umtalsefni og tók þá fyrst fyrir Sam-klúbbinn, sem Ottó er ann- ar stofnandi að. „Klúbburinn hefur haldið tvo dansleiki með skemmtiatriðum og eru skráðir meðlimir nú orðn- ir hátt á þriðja hundrað", segir Ottó og þaö hýrnar yfir honum á nýjan leik. „Meiningin er að klúbbfélagar komi saman minnst tvisvar í mánuði og skemmti sér þá m.a. við dans og kvikmynda- sýningar. Einnig er í ráði að bæta ferðalögum á dagskrána. í því húsnæði sem Samúel hefur hér til umráða erum viö svo 'að koma okkur upp aöstöðu til smærri samfunda klúbbsins." „Er eitthvað sérstakt i bígerð á vegum klúbbsins?“ „Já. Næstkomandi mánudags- kvöld (29. des.) mun klúbburi - standa fyrir hljómlistarkynningu fyrir ungt fólk í Glaumbæ og koma þar fram ýmsir góðkunnir hljómlistarmenn og kynna þjóð- lagamúsík, framúrstefnumúsik, country-músík, blues og jafnvel »jazz. Einnig gerum við ráð fyrir að kynna nýjustu hljómplötulög- in eftir því sem tilefni gefur til.“ Nú er Ottó orðinn það kátur, að ég áræði að leggja fyrir spurn ingar um blöðin á nýjan leik. „Hvað er þaö sem held: - á- huga þínum vakandj á blaða- útgáfu?“ „Það er þessi árans baktería, sem maður fær þegar maöur einu sinni kynnist blaðaútgáfu og við þá bakteríu er síðan ómögulegt að losna, ekki sizt, ef við erfið- leika er aö etja við útgáfuna.‘‘ „Hver heldurðu að kostnaður- inn hafi veriö við útgáfu Jóns Hregg?“ „Ég hugsa að ég hafi greitt tæpar þrjátíu þúsund krónur fyr- ir hann. Þó var það blað helm- ingi minna en pop-blöðin eru almennt.“ „Hvenær er svo næsta blað væntanlegt á rnarkaðinn frá ykkur?“ spyrjum við að lokum. „Það gæti orðið seinnipart janúarmánaðar — okkur skortir ekki efni í það blað að minnsta kosti.“ i TILVERA á Kleppi Síðastliðinn fimmtudag geröi vistfólk Kleppsspítalans sér daga mun ög-hélt örlitla jólagleði og var ýmislegt haft til Skémmtunar. M.á. lék hljómsveitin Tilvera nokkur lög. „Þetta var ákaflega viöfelldið fólk“ segir Jóhann Kristins- son bassaleikari hljómsveitarinn ar. „Það viöurkenndi raunar, að okkar hljómlist væri ekki efst á blaöi hjá þeim, en kváðust þó hafa gaman af að sjá og heyra eina af þeim hljómsveitum, sem léki fyrir dansi á dansteikjum unga fólksins."

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.