Vísir - 23.12.1969, Qupperneq 8
V í SIR . Þriðjudagur 23. desember 1969.
Útgefandi: Reykjaprent h.f.
Framkvæmdastjóri: Sveinn R. Eyjólfsson
Ritstjóri: Jónas Kristjánsson
Aðstoöarritstjóri: Axel Thorsteinson
Fréttastjóri: Jón Btrgir Pétursson
Ritstjórnarfulltrúi: Valdimar H. Jóhannesson
Auglýsingar: Aöalstræti 8. Simar 15610, 11660 og 15099
Afgreiðsla: Aöalstræti 8. Simi 11660
Ritstjóm: Laugavegi 178. Simi 11660 (5 línur)
Askriftargjald kr. 165.00 á mánuöi innanlands
I lausasölu kr. 10.00 eintakið
Prentsmiöja Vísis — Edda h.f.
Friður annað kvöld
^nnasamasti dagur ársins er í kvöld. Verzlanir verða
opnar til miðnættis, troðfullar af fólki, ef að líkum ^
lætur. Flest verzlunarfólk og raunar flest annað fólk
mun ganga örþreytt til hvílu í kvöld. Tíminn við
jólaundirbúninginn vill verða ódrjúgur og margir
þurfa undir lokin að ljúka miklu verki á skömmum
tíma.
Hvorki friður né rósemi hugans ríkja í dag, held- ,
ur spenna og streita. Á morgun verður gengið frá '
síðustu jólagjöfunum, jólatrén verða skreytt og síð- '
degis hefst hin sérkennilega aðfangadagsumferð 1
heimilisfeðra milli húsa með jólagjafir. í eldhúsum |
mun matargerðin standa yfir fram að kvöldi, og það er
ekki fyrr en að því loknu, að það slaknar á spenn-
unni og jólin sjálf taka hugi manna.
i
Og þó munu þeir verða margir, sem verða upp-
teknir af jólamatnum, opnun jólapakkanna, kaffinu
á eftir og fara síðan beint í háttinn með einhverja jóla-
bókina. Hjá þeim er lítið eftir af hinum kristnu jól-
um, en í þess stað ef til vill meira af hinum fornu,
heiðnu jólum.
Óþarfi er að hugsa af angurværð um liðna tíma,
en hins vegar munu margir láta hugann reika til
gömlu jólanna, þegar þjóðin var fátæk og hin verald-
lega dýrð jólanna minni. Óneitanlega eru jólin orðin
býsna ólík jólum fyrri tíma, rólegum og friðsömum
sveitajólum. En við verðum að telja, að þjóðin hafi
gengið til góðs götuna fram eftir veg.
Tölfróður maður hefur reiknað út, að jólahaldið kosti
20.000 krónur á meðalfjölskyldu. Þannig er hin ver-
aldlega dýrð mikil, en víða skortir nokkuð á hina
andlegu dýrð. En hitt er svo staðreynd, að velmeg-
un nútímans ryður gömlum verðmætum úr vegi og
setur ný í staðinn. Jólahaldið hlýtur að endurspegla
lífskjörin og þjóðlífshraðann. En vissulega er ósk-
andi, að sem fæstir fari á mis við rósemi hugans og
friðinn á jólunum sjálfum.
Margir frídagar fara nú í hönd hjá flestum stétt- f
um þjóðfélagsins. Vonandi jafna menn sig eftir æði V
jólaundirbúningsins, svo að þeir fái notið þessara
daga, Jólin hafa í kristnum sið verið og eiga að vera
friðarhátíð. Hinn rétti jólaandi þarf að ríkja sem
víðast á heimilum manna.
í þeirri von óskar Vísir lesendum sínum og öllum
landsmönnum
gleðilegra jóla
Hugh Joseph Addonizio
Borgarstjóri í klípu.
skipulagt þetta eða hitt moröiö,
en ógerlegt er aö hafa hendur i
hári þeirra, Ekkert fæst sann
aö á þá, og þeir ganga um frjáls
ir menn, leika golf og sitja veizl
ur.
Mafían „á kjördæmi“
Óvíst er hversu mikil tök fé-
lagið hefur á borgarstjóminni í
Chicago. Borgarstjórinn, Daley
virðist lítt vinveittur féiaginu,
og ríkisstjórj Illinois er í hópi
svarinna fjandmanna þess. —
Hins vegar má segja að glæpa-
félagið „eigi“ nokkur kjördæmi
í Illinois og ráöi því, hverjir
veröa valdir þingmenn og borg
arfulltrúar þar.
Glæpafélagið ástundar helzt
morð á sínum eigin meðlimum
í skefjalausri baráttu um ráns-
fenginn og yfirráö í félaginu.
Þá verða önnur samtök glæpa-
manna fyrir barðinu á Mafíunni
veröi þau of fyrirferöarmikil.
Hinn almenni borgari telur sig
hins vegar að mestu óhultan
fyrir starfsemi þess í daglegu
lífi sínu.
Ný sókn hafin
Mafíunni
Þeir fá þann jólaboðskap
í New Jersey-fylki í
Bandaríkjunum, að loks-
ins hafa yfirvöld hafizt
handa gegn ógnvaldin-
um, Mafíunni. Mafían er
voldug í Bandaríkjun-
um. Segja má, að hún sé
byggð upp af mönnum
af ítölskum uppruna,
sem ásælast eigur
annarra og taka þær ó-
frjálsri hendi. Glæpafé-
lög Mafíunnar eru starf-
andi um öll Bandaríkin.
Þau eru enn í blóma,
þótt frægust hafi þau
orðið á dögum A1 Cap-
one í Chicago.
Enn í dag er í Chicago starf-
andi hiö svonefnda „glæpafélag"
(Crime syndicate) títt umræöu-
efni manna og daglega getið í
blööum. Blöð skýra frá því,
hverjir séu foringjar félagsins,
og nefna menn eins og Tony
Accordio og Guancana. Er sagt
frá því, að þessir foringjar hafi
A1 Capone
Taka „skatt“
af fyrirtækjum
Félagiö tekur „skatt“ af fyrir
tækjum. Stofni maður nýtt, lítið
fyrirtæki í Chicago svo sem rak
arastofu eöa veitingastofu, má
búast viö „heimsókn" fulltrúa
glæpafélagsins. Þeir bjóöa at-
vinnurekandanum „vernd“, þaö
er hann greiöi þeim „skatt“ til
þess aö verða ekki fvrir barðinu
á glæpamönnum, eins og þeir
segja. Neiti ha-nn þessari
greiöslu, koma sendimenn Mafí
unnar aö næturlagi og varpa
sprengju í fyrirtæki hans. —
Þrjózkist hann enn við, verður
sprengjan öflugri, og aö lokum
má hann búast viö meiöingum
og jafnvel lífláti. Á þennan hátt
„rökstyðja" glæpamennirnir
„vernd” sína Þegar atvinnurek
andinn fer að borga, hætta
öll spjöll á fyrirtækinu.
Borgarstjóri svarar
til saka
Mafían hefur farið sínu fram í
Stórborgum Bandaríkjanna um
iangt skeið, og borgarar oröiö
að sætta sig við tilveru hennar
og starf. Nú hefur þaö gerzt 1
Néw Jersey-fylki, sem sjaldgæft
er, að rétt fyrir jólin snerust
yfirvöld af alefli gegn Mafí-
unni. Fjöldi leiðtoga hennar var
handtekinn, og jafnvel borgar-
stjórinn í Newark varö að svara
til saka.
Addonizio, borgarstjóri, haföi
frá upphafi verið sakaöur um að
vera „sendisveinn Mafíunnar".
Nú var hann spuröur um viö-
skipti sín við hana, og greip
hann til ákvæða stjórnarskrár
Bandaríkjanna og neitaöi aö
svara spurningum. Óvíst er, aö
borgarstjórinn hafi bitiö úr nál
inni meö þessu. Yfirvöld í New
Jersey munu staöráöin aö láta
kné fylgja kviði gegn Mafíunni
í fylkinu Þeir tugir foringja.
sem voru handteknir, hafa verið
látnir lausir gegn tryggingu,
eins og tíðkast þar í landi. Hins
vegar munu þeir væntanlega all
ir koma fyrir rétt. Veröur þá úr
því skorið, hvort bandarísk vf-
völd eru magnþrota gegn glæpa
félagmu eða ekki, þegar á hólm
inn kemur.
Jóla
w Á mörg þúsund heimil-
um í Reykjavík er kveikt
á ótal suðuhellum á eldavél-
um, pottar og pönnur dregn-
ar fram, og eldamennska
hefst síðdegis á morgun. Og
mennirnir hjá Rafmagnsveit-
unni fylgjast áhyggjufullir
með álaginu.
w Skömmu seinna ganga
jólin í garð með tilheyr-
andi hátíðahöldum, og hver
fjölskylda hefur sinn jólamat
og sína heimilissiði i sam-
bandi við jólahaldið. Hér á.
eftir segja fimm manns frá
jólamatnum og heimilissið-
unum.
Miðnætursúkkulaði
með fjölskyldunni
IZonráð Guömundsson, hótel-
stjóri, tekur sér bvfld frá
hugleiöingum um matseöla og
eldamennsku á aöfangadags-
kvöld, og lætur eiginkonunni '
það eftir að útbúa jólamatinn.
— Rjúpu borða ég alltaf á aö- ,
fangadagskvöld og ef desert er,
þá höfum við alltaf eitthvert .
fromage meö möndlu og tilheyr ,
andi möndlugjöf og súpu á und- ,
an aðalréttinum. Meö þessu höf-
um viö jólaöl fyrir bömin og ,
rauövín fyrir fullorðna fólkið. ,
Svo er þaö ófrávíkjanleg regla ,
hjá okkur seint á aöfangadags- ,
kvöld aö drekka súkkulaði og ,
boröa fullt af fínum kökum meö, .
og kemur mjög gjarnan einhver
úr fjölskyldunni og drekkur meö
okkur miönætursúkkulaðiö.
Á jóladag boröum við alltaf
hangikjöt og flýtum okkur allt-
af að vera búin að því áður en
jólakveöjumar frá íslendingum;
erlendis byrja og hlustum á þær.
Aö gefnu tilefni, vegna yfirlýs-
ingar útvarpsráös um jólakveðj-
urnar, myndi ég skora á alla
foreldra, sem éiga námsmenn
erlendis, aö sameinast í mótmæl
um gegn þessari ákvörðun út-
varpráös.
Annan jóladag kemur fólk tii
okkar í hádegisverö, og þá höf
Konráð Guðmundsson „.hlust
um alltaf á jólakveðjur frá
íslendingum erlendis ..
ea