Vísir - 23.12.1969, Síða 9

Vísir - 23.12.1969, Síða 9
V1S IR . ÞriSjudagur 23. desember 1969. 9 maturinn og heimilissiðirnir um við einhvern góöan forrétt, en að öðru leyti verða á mat seölinum heilsteiktar uxalundir með einhverju góðu og svo ætla ég aö vígja eldsteikingartaeki, sem var verið aö gefa okkur, og búa til góðan desert. Ananasbúðingur gengur betur í börnin en hrísgrjónabúðingur, segir Konráð ennfremur og gef- ur okkur upp uppskrift fjölskyld unnar að aöalábætisréttunum um jólim ★ Ananasbúöingur V2 dós ananas, * l/2 1 rjómi, 5 eggjarauJur, 5 msk sykur, 8 blöð matarlím, sítrónusafi, van- illudropar, rifið súkkulaði og ein heil mandla. Búðingurinn bú inn til á venjulegan hátt. ★ Eldsteiktur ábætir Þessi ábætir er nýr af nálinni og hugmyndaflugið notað við hann. Búin til sósa úr safanum af pressuðum, nýjum ávöxtum, söxuöum möndlum, sykri og smjöri. Sykurinn og smjörið brætt saman, ávaxtasafinn og möndlurnar sett út x og bragð- bætt meö Kirsch-líkjör. Ananas inn settur út í og kveikt í sós- unni. Ábætirinn borinn fram með ís. Jólahát'iðin góð hátið P uðrún Helgadóttir, ritstjóri ,'r segir: Ætli viö borðum ekki svipaðan mat og aðrir um jólin, mikið af hangikjöti og laufa- brauði. Því kynntist ég ekki fyrr én hjá tengdafólki mínu, sem er úr Skagafirði, og nú finnst mér það alveg ómissandi. Annars reynum við að eyða sem minnst um peningum um þessi jól. Bæöi er að við erum nýkomin heim frá námsdvöl erlendis, og svo er dýrtíðin hér svo gífur- leg, að þaö er ekki á færi nema auökýfinga að kaupa sér mat eins og maginn gimist, og svo er mér hulin ráðgáta, hvemig láglaunafólk meö stórar fjöld- skyldur fer aö því að bera á borð íburöarmikinn mat. Okkar fjölskylduhefð um jóla hald er mestan part I því fólg- in að gera jólin að notalegum hvíldartíma. Við reynum aö eiga góðan mat og góð vin til að renna honum. niður með. Per- sónulega finnst mér jólahátíðin góð hátíð. Inntak hennar er að því leyti sammanneskjulegt, sem barnsfæðing vekur svipaöar kenndir hjá flestu fólki hvort sem þaö hiröir um trúarlega hlið sögunnar um barnið frá Betlehem eöa ekki. Viö erum ekki trúfólk svo við látum kirkjugöngur alveg vera. Það sem prestar hafa fram aö færa hljómar oftast í mínum eyrum eins og það komi úr hömrum. Prestar virðast ein hvern veginn vera slitnir úr tengslum við samtímann. Nú, jólasóttina, sem grípur marga í byrju'n desember og fer eins og Kínaflensa yfir bæ- inn, reynum við aö leiöa hjá okkur. Það verður enginn auð- ugri af jólagjöfum okkar. Eitt- hvað bý ég til sjálf, hitt fer eftir efnum og ástæðum. Ég veit ekki af hverju kaupmönn- um er alltaf kennt um alla vit- leysuna, fólkið, sem kaupir frá sér ráð og rænu er snöggtum verra en þeir — og óskir okkar verða hinar sömu nú op öll önn ur jól: að næsta frióarhátíð verði haldin á friöartíma, en sú ósk hefur ekki enn verið upp fyllt og ekki miklar horfur á að mannkindin hætti að grafa sér sína eigin gröf. Við höfum engar sérstakar siðvenjur um jólin. Maöur les alltaf jólabækurnar, sem maöur fær í jólagjöf, það er það, sem er aðallega gert um jólin. Svo kemur hér uppskrift að hrísgrjónabúðingnum, sem fjöl- skyldan hefur á aöfangadags- kvöld og Tryggvi segir, að sé voðalega góöur. ★ Hrísgrjónabúðingur með ávöxtum Fyrir 10 manns.: 150 g hrís- grjón, sem eru skoluð í köldu vatni, forsoðin og síöan soð- in í einum lítra af sjóð- heitri mjólk, sem er söltuð lítið eitt, í um þaö bil 30 mínútur. Kælt og 200 g af smáttskorn- um, niðursoðnum ávöxtum, sem eru bragðbættir með kirsuberja líkjör, eru settir út í hrísgrjón- in. Síðan er lagað krem út 12 eggjarauöum og sykursírópi, sem er lagað úr 200 g af strá- sykri og 1 dl af vatni. Sykur- Tryggvi Þorfinnsson „... maður les alltaf jólabækurnar, sem maður fær í jólagjöf....“ „Smörgásbord" oð sænskum hæfti T’ryggvi Þorfinnsson, skólastj. Matsveina- og veitingaþj.skól ans segir: Venjulega er það kon- an sem býr til jólamatinn. Við erum alltaf vön að hafa rjúpur á aðfangadagskvöld og matseð- illinn er þá svona: Rækjur f tómatsósu, rjúpur með rjóma- sósu og hrísgrjónabúöingur með ávöxtum, sem við höfum alltaf á jólum og náttúrlega er alltaf í honum mandla og tilheyrandi möndlugjöf fylgir henni. Á jóladag höfum við venju- lega eitthvað kalt í hádeginu, „Smörgásbord" að sænskum hætti, en konan mín er sænsk. Þar verða síldarréttir og köld skinka og alltaf hangikjöt. Það er ekki búið að ákveða matseð- ilinn á annan jóladag. Guðrún Svava Bjamadóttir „ .. .öll fjölskyldan vakti við lest- ur langt fram á jólanóttina...“ Guðrún Helgadóttir „.. .óskir okkar verða hinar sömu nú og öll önnur jól: að næsta friðarhátíð verði haldin á friðar- tíma....“ sirópinu er hellt sjóðheitu út í eggjarauðurnar og þeytt unz eggin eru köld, þá eru um 15 blöö af bræddu matarlími sett út í, bragöbætt meö vanillu og y2 lítra af þeyttum rjóma blandað út í. Síðan er þessu blandað gætilega út í hrisgrjón- in. Botn á hringmóti er þakinn hindberjahlaupi og hrísgrjóna- búðingurinn settur ofan á, skreytt með þeyttum rjóma og ávöxtum. Rétturinn er framreidd ur með apríkósusósu, sem er búin til á þann veg að apríkós- umar eru mauksoðnar með sykri og vanillu, marðar í gegn- um sigti og sósan aðeins jöfn- uð meö . ofurlitlu af kartöflu- mjöli. Rauður litur settur í til að fá fallegri lit Bezt er að laga búðinginn degi áður en hann er borinn fram og sósuna einnig Hvit jól fullkomna hátiðablæinn G uðrún Svava Bjarnadóttir, kennari segir: — Á jólunum eiga flestir frí frá störfum og finnst mér þá eðlilegt, að heima fyrir séu jóla dagarnir einnig hvíldartími. Er því sjálfsagt aö haga nauösyn- legum heimilisstörfum þannig, að þau séu sem auðveldust, hvort sem þau mæða á húsmóð- urinni einni eða öll fjöJskyldan tekur þátt í þeim. Ég reyni þess vegna að hafa matreiðsluna þægilega og þannig, að sem minnstur tími fari í uppþvott og frágang í eldhúsi. Aðalmáltíð jójanna hef ég á aðfangadags- kvöld, en hina jóladagana mat, sem hægt er að útbúa að mestu fyrirfram. Á aðfangadagskvöld ætla ég að hafa sem forrétt soðinn lax í olíusósu, bragöbættri meö þeyttum rjóma, tómatsósu og sítrónusafa. Síðan borðum við ofnsteiktan kjúkling með gul- róta- og ananassalati og á eftir hrísgrjónabúðing með möndlu. Á jóladag borðum við kalt hangikjöt með kartöflum og grænum baunum og á eftir kaffi- ís. Þessu vandist ég í fööurhús- um, þar sem öll fjölskyldan vakti við lestur langt fram á jóla nóttina. 2. jóladag verða kaldir réttir, sem útbúnir eru fyrirfram aö svo miklu leyti sem hægt er, svo sem salöt og síld með ýmsum sósum. Laufabrauð er ómissandi á' jólabbröið.' : ‘ÍÍBHA^1' '> Við förum oft I kirkju 2. jóla-: dag, en kjósum annars helzt að vera sem mest heima við lest ur spil og leiki. Þó skreppum viö gjaman eitthvað út fyrir bæinn í gönguferð eða á skíði 2. jóladag, ef veður verður gott og snjór. Hvít jól fullkomna há- tíðablæinn. Engin „heimbrá" til Bandarikjanna um jólin ^ancy A. Helgason, húsmóðir segir: — 1 Bandaríkjunum höfum við alltaf kalkún á jóladag, en nú er það íslenzka hangikjötið. Á aðfangadagskvöld höfum við hamborgarhrygg og lambakjöt annan í jólum. Ég byrjaöi að baka á föstudag og er .búin aö baka einar 200 smákökur og svo bananabrauö og hoagy- köku og astoria-köku. Viö verðum hjá tengdamóður minni á aðfangadag og opnum gjafapakkana, en svo veröa tengdamóöir mín og mágkona hjá okkur á jóladag. Á annan í jólum bjóðum við ef til vill heim kunningjum. Við höfum í Bandaríkjunum siöinn með mist ilteininn. Allir, sem ganga undir mistiltein eru kysstir. Sumar stúlkur hafa því mistiltein í hár inu, og fá marga kossa um há- tíðina. Mér finnst aöalatriðiö, að jólin séu friðsamleg hvíld og hátiðleg og ekki of mikið umstang. Satt að segja hef ég enga „heimþrá“ til Bandaríkjanna um jólin. Ég held, að ég sé að verða íslendingur.. Og hér kemur uppskrift að bandarískri köku. ★ Hoagy-kaka 190—250 g sykur, 115 g smjör 1 dl súr mjólk, 2 egg, 1 tsk. natr on, y2 tsk. salt, 1 tsk lyftiduft 210 g hveiti, y2 bolli saxaöarval hnetur, rifiö hýöi af tveimur appelsínum. Sósa: 190 g sykur, safi úr tveim appelsínum og safi úr einni sítrónu. Hrærið saman smjör og sykur og bætið við vel þeyttum eggj- um. Blandið saman natroni, lyfti dufti, salti og hveiti, og síið þrisvar og hrærið súru mjólk- inni út í smám saman. Bætið viö hnetunum og appelsínuhýðinu. Setjið í aflangan kökuform eða hringform. Bakið í 45 mín. viö 176 gráöa hita. Hrærið sykrinum saman við ávaxtasafann og sjóðið í 5 mín. Meöan kakan er enn í forminum, hellið þið sósunni yfir. Kakan borin fram strax. Nancy A. Helgason „... .aöalatriðið, að jólin séu friösamleg hvíld og hátíðleg, og ekki of mikið umstang...“ Fjölskyldan og Ijpimilid

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.