Vísir - 06.01.1970, Blaðsíða 1

Vísir - 06.01.1970, Blaðsíða 1
Fáir kunna að beita iínuna — Mikill hórgull á vönum beitingamónnum i verstóbvum. — Akkorbsmónnum boðið upp á 250 krónur á bjóð Mikill hörgull er nú á beit- ingamönnum víöa í ver- stöðvum, þar sem flestir bátanna fara á línuveiðar. Vanir menn í beitingum eru ekki á hverju strái, þar sem línuveiðar hafa lítið verið stundaðar síðustu árin. Reynt er að bjóða mönnum upp á góð akkorðskjör, til daemis mun vera boðið þetta 225 til 250 krón- ur fyrir hvern bala, sem beittur er með því líka að koma honum um borð í skipið. Vanir beitinga- men: beita allt upp í tíu bjóð. á dag og eru ekki nema klukkutma með bjóðið, þegar vel gengur. í Ólafsvík eru tíu bátar tilbún ir á línu, en fjórir fóru á sjó í gær, þar vantar tilfinnanlega beit- ingamenn. — Átta bátar eru byrj- aðir línuróðra frá Akranesi og fleiri munu bætast við. Afli Akra- nesbátanna var mjög sæmilegur í gær, þetta 6 og upp í 9 tonn. Mikið hefur verið auglýst eftir beitinga- mönnum til Suðurnesjahafna, en þar hefur línuveiði lítið sem ekk- ert verið stunduð á vetrarvertíð [ síðustu árin, svo að beitingakunn- átta er orðin sjaldgæft fyrirbrigði. í gönguferð frá Húsa- vík til Akureyrar Þýzkur sjómaður tekinn á burru landi og sendur á sjóinn aftur ■ Ökumaður, sem var á leið eftir þjóðveginum í Aðaldal fyrir helgi, rakst þar á þýzkan sjó- Spáð 3-4% aukningu þjáðarframleiðslu Þrátt fyrir síldarleysi. Þjóðarframleiðslan jókst aðeins um I°jo á nýliðnu ári • Á þessu ári er því spáð, að þjóðarframleiðslan aukist um 3—4%, þó að síldin svíki okkur eitt árið enn. Þetta kom fram hjá Jónasi Haralz, Lands- bankastjóra, í útvarpsþætti á laugardaginn, þar sem hann á- samt fleirum spáði fyrir um þróun efnahags og atvinnumála á þessu ári. Jónas Haralz sagði, að vinnu- stéttimar gætu farið fram á nokk- uð hærri almennar launahækkanir á þessu ári, en aukningu þjóðar- framleiðslu nemur, þó að þar megi ekki muna verulega án þéss að verðbólga muni af hljótast. Kaup- hækkanir hafa haft tilhneigingu til að fylgja aukningu í þeim greinum þar sem framleiðsluaukningin verð- ur mest og þess vegna hafi ávallt verið nokkur verðbólga f hinum vestræna heimi. Aukning þjóðarframleiðslu nam aöeins 1% á nýliðnu ári, þó aö aukning í sjávarútvegi og iðnaði hafi verið miklu meiri. Á móti vó, aö töluverður samdráttur varö f byggingariðnaði, en láta mun nærri að um 2000 manns úr byggingar- iðnaði hafi þurft að leita í aðrar at- vinnugreinar. Þá varð einnig mikill samdráttur í landbúnaði. Komi veruleg síld aftur á móti á næsta ári, sem fáum dettur i hug, mega íslendingar hins vegar búast við verulegr,- aukningu í þjóðar- framleiðslu. — Þessi spá er við þaö miðuð, aö þorskafli og loönuafli veröi svipaður og á nýliðnu ári. mann, sem var á leið frá Húsavík til Akureyrar — fótgangandi! Reyndar var Akureyri aðeins áfangi á leiö mannsins, sem y ætlaði sér að skreppa aðeins til Reykjavíkur. meðan skip hans, danskt flutningaskip, sem lestar núna kísilgúr á Húsavík, biði vegna lestarhreinsunar. Sjómaðurinn hafði einhvem veginn fengið þá flugu í höfuðið, að til Reykjavíkur væri rétt bara bæjarleið frá Húsavík, en komst að raun um hið sanna á Akur- eyri, og ætlaði þá með áætlunar- bifreiö þaðan suður, þegar lög- reglan stöðvaði hann aö beiðni útlendingaeftirlitsins. Maðurinn hafði nefnilega orð- ið eftir í Reyk.iavík þegar þýzk- ur togari, sem hann var ráðinn á, sigldi á miðin. en bauðst þá tækifæri til þess aö vinna sér fyrir fari í skipsrúmi í danska flutningaskipinu til Kaupmanna. hafnar Þótti mönnum oröið nóg um, hve illa hann tolldi í „pláss- um“ þótt prúður væri annars i öllum samskiptum við menn; og var hann fluttur í flugvél til Reykjavikur og settur um borð í þýzka eftirlitsskipið, Poseidon, sem flutti hann á miðin um borð í þýzka togarann í gærkvöldi. Framtíðardraum- ur — úr sykri! Framtíðardraumur Loftleiða í hótelmálum litur svona út, — en enn sem komiö er er hann bara úr sykri! Einhvem tíma kemur örugglega að því að IJót- el Loftleiðir þurfa að stækka við s?g húsakynnin og þá mun hóteliö líta svona út, en bakara- meistari hótelsins, Sveinn Krist- dórsson frá Akureyri, kunnur íþróttamaður úr ísknattleik, gerði þessa snjöllu borðskreyt- ingu fyrir áramótagleði starfs- mannanna. „Þetta er sætasta hús á íslandi,“ sagði einn starfs- mannanna í morgun“, og það er nokkuð til í því. Walter, hljómsveitar- stjóri: „Ummæli mín gætu valdið skaða“ Það hefur verið mér algild regla í þau 20 ár, sem ég hef verið hljómsveitarstjóri i mörg- um löndum að láta ekkl hafa em- ir mér ummæli um verk, sem ég hef sjálfur komið nálægt, sagði Alfred Walter, hljóm- sveitarstjóri, þegar Vísir leitaði til hans í gær til að leita álits hans á þeirri gagnrýni, sem Brúðkaup Fígarós hefur hlotið. í þessu tilviki gætu ummæli mín valdið skaða mörgu fólki, sem ekki ætíi slíkt skilið, og ég verð því að halda mig við þá reglu, sem ég hef sett sjálfum mér. „Viljum skýrari samninga — segja sjómenn i Eyjum og visa samkomulaginu frá Sjómenn í Vestmannaeyjum hafa krafizt ýtarlegri viöræðna um nýju bátakjarasamningana, til þess að Byrjað að vinna við nýtt hótel á Suður- landsbraut — sjá bls 16 skýra ýms atriði þeirra, sem eru óljós. — Vísuðu þeir samkomulag- inu frá á fundi á sunnudaginn, en felldu það þó ekki og fara þeir fram á nýjar samningsviðræður án verkfalls. Það voru Sjómannafél. Jötunn og Vélstjórafél. Vestmanna- eyja, sem að fundi þessum stóðu. Nýja samkomulagið hefur verið samþykkt víðast hvar annars stað- ar.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.