Vísir - 06.01.1970, Síða 3
V1SIR . Þriðjudagur 6. janúar 1970.
Peningar, peningar ...
Peningar, peningar, peningar.
Allt gengur fyrir peningum,
— líka íþróttir hreinustu á-
hugamanna í heimi, íslend-
inga. Og þetta vita forystu-
menn félaga og iþróttasam-
banda manna bezt. Áhorfend
ur að leikjum skilja þetta Iíka
mæta vel, a. m. k. er ekki
annao að sjá, þegar Iandsliðið
leikur. Hér er Albert Guð-
mundsson, form. KSÍ, ásamt
Sveini Zoéga, stjórnarmanni
í KSl, að selja styrktarmiða
KSÍ þegar landsliðið var að
leika, og er einn áhugasam-
ur vallargestur að kaupa af
þeim félögum.
Bezta lið
áratugsins
Manch. Utd.
Enska blaðiö „Daily Express"
lagöi þrjár spurningar nýlega fyrir
55 framkvæmdastjóra ensku deilda-
liðanna og voru þær þessar: Hvaða
lið var bezt áratuginn 1960—1969?
Hvaða framkvæmdastjóri? Hvaða
leikmenn ?
Niðurstaðan varð sú, aö Man-
chester United var kosiö lið ára-
tugsins, og framkvæmdastjóri þess
Sir Matt Busby framkvæmdastjóri
áratugsins. Þetta kemur sennilega
engum á óvart. Tottenham var í
öðru sæti og Leeds í þriðja. Beztu
leikmenn álitu þessir framkvæmda-
stjórar Gordon Banks sem mark-
vörð, Ray Wilson bakvörð, Jackie
Charlton miðvörð, Bobby Moore
framvörð, Bobby Charlton „tengi-
lið“ Georg Best kantmann og
Jimmy Greaves sóknarmann. Lið
áratugsins samkvæmt þessu var:
Gordon Banks (Stoke), George
Cohen (Fulham), Ray Wilson
(Everton), Billy Bremner (Leeds), J.
Charlton.;(I.eeds), B. Moore (West
Ham), George Best (Manch. Utd.),
Jimmy Greaves (Tottenham), B.
Charlton (Manch. Utd.), Geoff
Hurst (West Ham) og Peter Thomp-
son (Liverpool). AUt enskir heims-
meistarar nema Skotinn Bremner,
írinn Best og Thompson, sem ekki
komst í enska heimsmeistaraliðið.
GÓLFTEPN
WILTON
TEPPADREGLAR
TEPPALAGNIR
EFTIR MÁU
Laugavegi 31 - Simi 11822.
SKR
SKR
ALFABRENNA
ÞRETTÁNDASKEMMTUN
I SKAUTAHÖLLINNI kl. 20.oo í kvöld
Skemmtunin hefst með álfabrennu og flugeldasýningu
fyrir framan Skautahöllina kl. 20.00.
Þar koma fram álfakóngur og drottning með álfum
og púkum.
Kl. 8.30 hefst skemmtun í Skautahöllinni.
1. Álfakóngur og drottning stjórna söng og dansi.
2. Skemmtiþáttur: Bessi og Gunnar.
3. Fimleikamenn úr KR sýna í gerfi púka.
4. Álfadansar: Þjóðdansafélagið
5. Ómar Ragnarsson
6. Álfakóngur og drettning stjórna fjöldasöng og dansi.
Kynnir: Jón Gunnlaugsson. Álfakóngur og drottning:
Ólafur Magnússon, Unnur Eyfells.
Hjálparsveit skáta aðstoðar.
Aðgangseyrir kr. 100 fyrir fulorðna. Kr. 50 fyrir börn.
Skemmtun ^yrir alla fjölskylduna