Vísir - 06.01.1970, Síða 5
VTSIR . Þriðjudagur 6. janúar 1970.
5
^rið 1969 steig maður á tungl
ið í fyrsta sinn. Að öðru'
leyti var þetta á flestan hátt
„ósköp venjulegt ár“. Einn fór,
annar kom í hans stað. Mesta
athygli vakti afsögn de Gaulle,
en hartn hafði svo sem oft fvrr'
hötað að segja af sér, næði eitt
af hans hjartans málum ekki
fram í þjóðaratkvæðagreiðslu.
Hershöfðinginn stóö viö sín orð.
Willy Brandt sigraði í kosn-
ingum í Vestur-Þýzkalandi, þótt
flokkur hans. yrði ekki stærstur.
Sigurinn fólst í breyttum við-
horfum innan smáflokks, frjáls-
iyr.öa flokksins. Myndaði
Brandt stjórn með frjálslynd-
um, en kristilegir demókratar
urðu utan stjörnar í fyrsta sinn
frá stríðslokum. Sósíaldemó-
kratar fengu einnig kjörinn for
seta landsins.
í ársbyrjun hófst forseta-
tíð Richards Nixons í Banda-
ríkjunum. Þetta var skref til
hægri í stjórnmálunum þar í
landi.
Ho Chi-Minh, leiðtogi Norður-
Víetnama, lézt á árinu, en ekki
verð greind nein brevting á
stjórnarstefnunni. Valdaferli
Salazars lauk í Portúgal veg-ia
veikinda hans. Erlander hætti í
Svíþjóö, og við tók Olof Palme.
Svíar voru ekki vel séðir i
Bandaríkjunum.
Konungur Líbiu í Norður-Afr-
íku missti völdin og við tóku
stuðningsmenn Nassers. Nasser
átti einnig vissan stuðning bylt
ingarstjórnar í Súdan.
Margar þjóðir börðust sem
jafnan fyrr í Víetnam, við Súez,
landamæri Kína og Sovétríkj-
anna og miklu víðar. Upp úr
sauð í Norður-írlandi.
Mikið var unnið að því að
setja niður deilur án sýnilegs
árangurs. Rætt var um „kvn-
ferðisbyltingu“ eða „kynlífs-
byltingu“ og eiturlyf. Tilveru
mannkyns var ógrxið vegna
eiturmengunar andrúmslofts og
sjávar. Þetta var ósköp venju-
legt ár.
Byltíngarforinginn Ho Chi-
Minh lézt í september, og
iiópuðust foringjar komm-
únistaflokka heimsins tii út-
fyrstur manna, og fylgdust 528 milljónir með atburðinum í
sjónvarpi.
Edward Kennedy öldunga-
deildarþingmaður lenti í slysi
í júlí, og stúlka í bifreið hans
Mary Jo Kopechne lét lífið.
Var framtíð Kennedys mjög
í tvísýnu eftir það.
Leiðtogaskipti urðu í Vestur-Þýzkalandi. Hinn 5. marz var
Gustav Heinemann (til vinstri) kjörinn forseti, og 21. októ-
ber varð Willy Brandt ríkiskanslari.
Vonir brustu í Prag í apríl, þegar Dubcek (til hægri) var
vikið úr stöðu flokksforustumarins, og síðar sendi Husak (tíl
vinstri) hann til Tyrklands sem sendiherra.
De Gaulle var nær einráður í Frakklandi í áratug. Eftir 6-
sigur við þjóðaratkvæði dró hann sig í hlé, einn svipmesti
foringi sinnar samtíðar.
60 Rússar og 100 Kínverjar féllu í hörðustu átökum þeirra
í marz við Ussuri-fljót.