Vísir - 06.01.1970, Síða 6

Vísir - 06.01.1970, Síða 6
Hafnarstræti 18 Laugavegi 84 og 178. V1SIR . Þriðjudagur 6. janúar 1970. cTMenningarmál Gylfi Gröndai skrifar um sjónvarpið: Listin og lífsbaráttan bæöi í skáldskap sínum, blaða- mennsku og skopteikningum. Hún er einföld, en heiðarleg, hugrökk og hreinskilin og býr yfir óforbetranlegri seiglu. Ef til vill er myndasagan um Siggu Viggu kunnasta dæmið um þetta, en Gísli hefur víðar og betur lofsungið þessa hetju hversdags- lífsins, meðal annars í sinni á- gætu skáldsögu, „Brauðinu og ástinni". Ádeila hans hefur aftur á móti gjaman beinzt að and- stæðu þessarar persónu: hinum mýmörgu, sem telja sig hafna yfir sauðsvartan almúgann. Hann hefur skopazt eftirminni- lega en með nokkuð ýktum hætti að sýndarmennsku, hé- gómaskap og drýldni þeirra, sem annaðhvort eru svo finir og rík- ir eða svo gáfaðir og menntaðir, að þeir þola ekld að finna lykt af físki. í „Einleik á ritvél*' er fjafíað um svipað efni, og að þessu sinni tekst Gísla að ná á því fastari tökum en áður. Hann stillir skopi sínu mjög f hóf og fyrir bragðið varð leikrit hans raunverulegt og trúverðugt Mörg atriði þess voru sem tekin. beint úr daglegu lffi íbúa höfuð- staðarins. Sólrún á Sunnuhvoli hefur unnið baki brotnu til að létta manni sfnum, Ríkharði. Iífsbar- áttuna en hann er pfanóleikari og orðinn „þjóðkunnur" maður. Hún faer þá hugmynd að skrifa ævisögu hans til þess að rétta við efnahag þeirra hjóna í eitt skipti fyrir öll. Auðvitað búa þau i eigin fbúð f blokk, hurðar- lausri og hálfkaraðri. Hún fer á stúfana til að afla upplýsinga hjá foreldrum Rfkharðs, sem alltaf hafa dýrkað son sinn, bróður hans, Bimi sem er bfla- viðgerðarmaður og öfundár snillinginn, og siöast en ekki sfzt gagnrýnanda, sem hefur þann eiginleika að geta spunnið upp úr sér endalausan orðalopa. Þegar bókinni er lokið er farið til útgefanda, sem „þekkir ekki sónatfnu frá berjatfnu", en veit hins vegar hvað fólk vill lesa. Og þá fellur dómurinn. Útgefandinn vill gjaman gera samning, en með einu skilyrði þó: að Sólrún breyti bókinni í eigin ævisögu; skrifi manninn sinn út úr henni, en sjálfa sig inn f hana f stað- inn, eins og hann kemst að orði. Leikritið er vel uppbyggt. Smátt og smátt skýrist myndin af snillingnum, sem má ekki skemma á sér hendumar, og trygglyndu alþýðustúlkunni, sem vinnur hörðum höndum. Fljót- lega vaknar sú spuming og helzt leikinn á enda. hvort Rfkharður sé sá snillingur, sem af er látið, bótt hann sé „þjóðkunnur”. En hennj er aldrei svarað beinlfnis, enda skiptir hún ekki höfuð- máli. Það er einmitt kostur verksins, að fjallaö er um efnið á hlutlausan hátt og áhorfand- inn hefur hæfileea samúð með beim hiónum háðttrn T.eíkHtíð letðir vel f liós hað res’ndiúp, sem er á milli svokal'aðrar al- þýðu og svokallaðs kúltúrs, og er jafnframt nýstárleg og snjöll lýsing á hinni gamalkunnu tog- streitu milli listar og lífsbaráttu. Leikritið var vel sviðsett og bar greinilega þess merki, að Gísli hefur kynnt sér þá mögu- leika og tækifæri, sem sjónvarp- ið hefur upp á að bjóða. Leik- stjóri var Baldvin Halldórsson og á stóran þátt í hversu vel tókst. Og ekki var hlutur leikara sfðri, Einkum kom Jóhanna Noröfjörð á óvart með eðlileg- um og hófsömum leik f hlut- verki Sólrúnar. Mörgum sviðs- leikurum hættir til að leika of sterkt f sjónvarpi, brýna raust- ina og ýkja svipbrigði um of. Slikt er nauðsynlegt á sviði, en sjónvarpið krefst nákvæmari og mildarj leiks. Að þessu sinni tókst öllum leikurum venju fremur vel að verða við þessari kröfu og Jóhönnu Norðfjörð sér- staklega. Það er sannarlega ástæða til að hvetja Gfsla J. Ástþórsson til að skrifa meira fyrir sjónvarp. Ef honum tekst að semja fleiri leikrit á borö við „Einleik á ritvél" verður hann vafalaust þjóðkimnur maður — án gæsa- lappa — ef hann er ekki þegar orðinn það. Sannleikurinn um Apaspil \7'egna greinar Guðlaugs þjóð- leikhússtjóra Rósinkranz, sem birtist f blaðj yðar laugar- daginn 3. janúar, vil ég biðja yður, hr. ritstjóri. að birta eftir- farandi línur. Hinn sérstæði tónn, sem Rós- inkranz notar, svo og alger vöntun á málefnalegum „sam- talsgrundvelli", eru hvort tveggja f harla litlu samræmi við hið háa embætti hans. Þar sem ég kann ekki á þess konar „tón- tegund", mun ég aðeins svara þvf, sem hægt er að svara á mál- efnalegum grundvelli. Stærsti hluti greinarinnar er helgaður mér, en einnig veitist Rósinkranz að öðrum aðilum um leið. Ég hygg, að sumu af því sem þjóðleikhússtjóri skrifar, t. d. um íslenzka söngvara, verði svarað sfðar, og verður það þvf ekki gert að umtalsefni hér. Rósinkranz staöhæfir, að gagnrýni mín um „Brúðkaup Figarós", sem birtist f Vísj 29. desember 1969, sé persónuleg hefnd til að ná mér niðri á sér (eða eiginkonu sinni) vegna þess. aö hann hafi ekki tekið til flutn- ings bamaóperuna „ApaSpil" eftir Þorkei Sigurbjömsson (sem samin var fyrir Bamamúsfk- skóla Keykjavíkur) á sfnum tfma, eftir að hún hafði verið sýnd f Tjamarbæ og „gengið illa, að sögn". Þjóðleikhússtjóri fer hér all frjálslega með sannleikann, svo vægt sé til orða tekið. Sannleikurinn er sá, að Bama- músfkskólinn sýndi „Apaspil" af eigin rammleik sem vorskemmt- un skólans f Tjamarbæ i maf 1966. Ákveðið var að ha*fa fjórar sýningar, eingöngu fyrir nemendur skólans og aðstand- endur þeirra. eins og venja er með vorskemmtanir skólans. Sýningar tókust hins vegar svo vel og fengu það iákvæðar und- irtektir (m. a gaenrtfnendaV að ákveðið var að bæta tveim sýn- ingum við Af he«sum 6 svnine- um varð meira að segja hagnað- ur. Það get.ur þvf varla verið um það að ræða. að ég hafi viljað láta „Þjóðleikhúsið borga brús- ann". Snemma næsta vetur, eða síðla hausts (það er u.þ.b. hálfu ári eftir að vel heppnuðum sýning- um lauk) bauð ég Rósinkranz verkið til sýningar f Lindarbæ (ekki í sal Þjóðleikhússins), þar sem ég taldi ekki óeðlilegt, að Þjóðleikhúsið fengi tækifæri til að sýna íslenzka bamaópem, sem þegar hafði fengið jákvæðar undirtektir. Viðstaddur fund okkar var Baldvin Halldórsson, sem hafði haft leikstjóm með höndum í Tjamarbæ vorið 1966. Þjóðleikhússtjóri hafnaði boðinu af fjárhagsástæðum, og var sú saga ekki lengri. Hinsvegar gerði Rfkisútvarpið upptöku á „Apaspili" i maí 1966, og samkvæmt beiðnj sjónvarps- ins var söngleikurinn æfður að nýju í sumar sem leið og tekinn upp f september s.l. Munu fs- lenzk böm og foreldrar þvf sjálf geta dæmt um gæðin, þegar „Apaspil" verður sýnt í sjón- varpinu á þessu ári. Af þessu má öllum vera ljóst, að grundvöllurinn (þ.e. „hefnd- arhugur" minn) undir grein Rós- inkranz em hugarórar hans einir. Athugasemdum þjóðleikhús- stjóra um mig sem „misheppn- aðan listamann", sem „hafi lært einhverja músfk til að geta kennt byrjendum að spila", svo og öðrum aðdróttunum f minn garð, hirði ég ekki um að svara. Stefán Edelstein. (Stefán Edelstein er Revkvfk- ingum kunnur sem skólastjóri Bamamúsíkskólans. Hann er einnig kennari við Kennaradeild Tónlistarskólans. Sem píanóleikari hefur hann t.d. komið fram á vegum Sin- fónfuhliómsveitar fslands og hjá Tónh'starfé'aeinu svo og f út- vam! ne cirtnvnmi Árið 1962 lauk hann háskóla- prófi f tónlistarupneldisvísindum frá Tónlistarháskólanum í Frei- burg í Þýzkalandi.) Cjónvarpið kvaddi árið með þvf að sýna eitt bezta innlenda efni sem þaö hefur lengi flutt: „Einleik á ritvél", nýtt leikrit eftir Gísla J. Ástþórsson. Þetta er annað en ekki fyrsta íslenzka leikritið, sem samið er gagngert til flutnings f sjónvarpi. Hið fyrsta var „Romm handa Rósa- lind“ eftir Jökul Jakobsson. Hins vegar má segja, að mögu- leikar sjónvarps hafi verið betur nýttir hjá Gísla, og alténd er verk hans fyrsta sjónvarpsleik- ritið, sem gerist í Reykjavík nú- tímans og fjallar um lífsstríð hversdagsfólks á okkar dögum. Hin óbrotna alþýðustúlka hef- ur löngum verið Gísla J. Ást- þórssyni hugleikið yrkisefni, Aur VQlrður í focf og Yégfut... LEITZ skjalabindli eru í sérfíokici Þau eru handhægarí, endingarbetri, fallegrí og vandaðri. Ath. Magnafsláttur: 100 bindi 10% afsláttur 50 bindi 5% afsláttur

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.