Vísir - 06.01.1970, Síða 7

Vísir - 06.01.1970, Síða 7
V l S IR . Þriðjudagur 6. janúar 1970. í MORGUN ÚTLÖNDÉ MORGUN ÚTLÖND f MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND Hyggjast Frakkar selja Áröbum vopn? ■ ísraelsmenn sökuðu Frakka í gærkvöldi um fyr irætlanir að selja Egyptum og öðrum Arabaríkjum Ný átök yfirvofandi i Líbanon mikið vopnamagn, þrátt fyrir yfirlýst bann frönsku stjórnarinnar við slíkum sölum til hinna stríðandi aðila í Austurlöndum nær. Segja ísraelsmenn sannað, að Frakkar hafi selt mikið af vopnum til íraks. — Franska stjórnin vísaði þessum ásökunum á bug. □ Agreiningurinn í Líbanon vex óðum vegna athafna skæruliða Palestínuaraba þar í landi. Hefur hann magnazt, eftir að skæruliðar og ísraelsmenn hafa tekið að skipt- ast á að ræna óbreyttum borgur- um beggja vegna landamæranna. Innanríkisráðherra Líbanon hef- ur ráðizt gegn skæruliðum og sak- að þá um að hafa rofið samninga, er náðust á dögunum milli þeirra og ríkisstjórnarinnar. Svo sem menn munu minnast, rambaði Lib- anon á barmi borgarastyrjaldar, og jafnvel var óttazt, að hersveitir frá Sýrlandi mundi gera innrás til stuðnings skæruliðum. Talið er, að ríkisstjórnin hafi gef ið mikið eftir í samningum þeim, sem þá náðust. Skæruliðar fara sínu fram sem fyrr, og Gyðingar svara í sömu mynt. Frú McKay finnst ekki Frú Muriel McKay, eiginkona blaðsstjóra News of the World, hafði enn ekki fundizt í morgun, þrátt fyrir mikla leit. Var jafnvel óvíst, hvort henni hefði í raun og vera verið rænt, þótt líkur bentu til þess. Borizt hafði bréf með rithönd frúarinnar, þar sem sagt var: ,,hvers vegna hefur þetta komið fyr ir mig?“ Hins vegar var þar engin skýring gefjin á hvarfi hennar og ekki krafizt lausnargjalds. „Sumir sam- fangarnir vilja myrða Ray44 • Sálfræðingur i fangelsi því í Tennesse-fylki, þar sem dæmd ur morðingi' Martin Luther Kings, James Earl Ray, dúsir, hefur upplýst, að margir sam- fangar Rays vilji ráða hann af dögum. Hafi það komið fram, að þeir mundu vilja gera það til aö vekja á sér athygli og öðlast „frægð“. Þetta kom fram í sambandi við þá kröfu Rays, að honum verði leyft að umgangast aðra fanga í fangelsinu. Ray hefur verið algerlega einangraður, frá því að hann var dæmdur, og situr í fangaklefa, sem er tæpir tveir metrar á annan veginn og tæpir þrir metrar á hinn. Ray segist fremur vilja hætta á, að sér verði styttur aldur en að sitja áfram í þessari ein- angrun. Hann var dæmdur til 99 ára fangelsisvistar fyrir morð ið. MiKILL HÁVAÐI GETUR SKAÐAÐ ÓFÆDÐ BÖRN Mikill hávaði, svo sem af sprengingum, getur valdið varanlegum skaða fyrir ó- fædd börn, að sögn banda- rísks vísindamanns, dr. Lester W. Sontag frá Ohio- fylki. Sannað er, að of mikill hávaði veldur heyrnarskemmdum meðal fullorðinna. Ennfremur hafa geð- truflanir og hjartveiki verið rakin til hávaða i ýmsum tilvikum. Fóstrið er ekki jafn vel varið í móðurlifi og jafnan var álitið. Það verður fyrir áhrifum til dæmis af fiugi þotu. Sagt er, að þota, sem ísraelsmenn munu áfita, að Frakkar grípi til þessara ráða f ,,hefndarskyni“ vegna herbragðs ísraelsmanna á dögunum, er þeir sigldu fimm fallbyssubátum frá franskri hafnarborg til heimalands síns, þrátt fyrir bann Frakka. Arabar leita nú eftir vopnum í ýmsum áttum. Hins vegar er sagt, að Sovétmenn hafi reiðzt, þegar ísraelsmönnum tókst fyrir nokkr- um dögum að ræna i heilu lagi stöð einni, sem Egvptar höfðu fengið hjá Rússum. Vilja Sovét- menn nú reyna að tryggja það, að slikt komi ekki fyrir aftur. Flngfélög sant- einast uttt bótelbyggingor FIMM stór flugfélög hafa nú sam- vínnu um byggingu glæstra gisti- húsa í stórhorgum Evrópn. Þetta eru félögin BEA, BOAC, Lufthansa og Alitalia, brezk, þýzk og ítölsk. Fjórir stórbankar í Evrópu veita- stuðning til framkvæmdanna, og verða gistihús til dæmis reist i London, Paris, R6m, Frankfurt og Zúrich. Þessi samsteypa mun nefnast European Hotel Corporation, „Evr- ópska hótelfélagið“. Verkalýðsforingi myrtur • Einn foringi námumanna í Bandarikjunum, Yablonsky, fannst í nótt myrtur ásamt konu sinni og dóttur. Er talið, að morðið hafi ver- ið framið á nýársdag. Likin fundust í íbúð þeirra hjóna. • Yablonsky hafði boðið sig fram til formanns í sambandi námuverka manna en fallið f kosningunum. Segja synir hans, að hann hafi jafn- an óttazt um lif sltt, frá þvi að hann bauð sig fram. Voru öfl innan sambandsins mjög andsnúin hon- um, en Yablonsky var gagnrýninn á það, sem hann taldi spillingu í stjóm sambandsins. Kennedy ánægður Edward Kennedy, öldungadeild- armaður, svaraöi spurningum i tvær klukkustundir samfleytt við réttarhöldin í Kopechnemál- inu í gær. Réttarhöld þessi, eða rannsókn, eru leynileg og al- menningi ekki gefnar skýrslur um, hvað þar gerist jafnóðum. Þó er sagt, að Kennedy hafi í einu og öllu staðiö við málflutn- ing sinn frá því aö hann fhitti sjónvarpsræðu sína í sumar. Kennedy sagði eftir vitnisburð sinn, að hann væri „ánægður" með gang réttarhaldanna. Bjóst hann ekki við að þurfa að koma aftur fyrir réttinn. Úrskurðar mun vera að vænta í næstu viku. HQItMN SKEIFUWM117 Opif alla daga Sfmi B437T Aðgangseyrir kL 14—19 kr. 35. kl. 19.30—23.00 Rr. 45 Sunnud. kl. 10—19 kr. 35 fcl. 19.30—23.00 kr. 45.00 U 10 miöai ict '100 00 20 -niðar kr 500.00 Ath. Aísláttarkortin gilda allt daga iafnt. Skautaleiga kr 30.00 Skautaskerping kr 55.00 Iþrótt fvrir alia 'iölskvld- una flýgur vfir meginlönd Ameríku, valdi hávaða 25 mílur á hvora hliö sína, sem 50 milljónir manna verði að þola. Þá þykir sannað, að börn mæðra, sem reykja, verði minni en börn þeirra, sem ekki reykja. Svo segir dr. Sontag. Verzlunarmannafélag Reykjav'ikur Framboðsfrestur Ákveðið hefur verið að viðhafa allsherjar atkvæðagreiðslu um kjör stjórnar trúnaðar- mannaráðs og endurskoðenda í Verzlunar- mannafélagi Reykjavíkur. Listum eða tillög- um skal skila á skrifstofu VR eigi síðar en kl. 12 á hádegi föstudaginn 10. jan. n.k. Kjörstjórnin. i

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.