Vísir - 06.01.1970, Síða 8
ocB
Otgefandi: Reykjaprent h.f.
Framkvæmdastjöri. Sveinn R. Eyjólfsson
Ritstjóri: Jónas Kristjánsson
Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinson
Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson
Ritstjórntrfulltrúi: Valdimar H. Jóhannesson
Auglýsingar: Aðaistræti 8. Símar 15610. 11660 og 15099
Afgreiðsla: Aðalstræti 8. Sími 11660
Ritstjórn. Laugavegi 178. Slmi 11660 (5 linur)
Askriftargjald kr 165.00 ð mánuði innanlands
I lausasölu kr. 10.00 eintakið
Prentsmiöja Visis — Edda h.f.
Gleðjumst yfir framförunum
|Torseti íslands, dr. Kristján Eldjárn, vitnaði í ára-
mótaræðu sinni í dr. Guðmund Finnbogason, sem
sagði fyrir hálfri öld, að markmið íslendinga eigi að
vera, „að þjóðin eflist sem bezt af landinu og landið
af þjóðinni, en menningin af hvoru tveggja."
Forsetinn lagði áherzlu á nauðsyn þess, að íslend-
ingar sýni mögnum lands og náttúru tillitssemi og
virðingu:
„Hafa margir orðið til þess að hvetja þjóðina til
að vaka yfir landinu, vernda það fyrir spjöllum af
mannanna hendi og eyðandi öflum þess sjálfs, til að
fara vel með landið, bæta fyrir yfirsjónir liðinna tíma
og gæta varúðar í öllu, sem varanleg áhrif hefur á
náttúru landsins. Á alþjóðaþingi hafa íslenzkir full-
trúar borið fram tillögu um verndun fiskistofna haf-
svæðanna gegn ört vaxandi mengun hafsins, í endur-
skoðun eru lög um náttúruvernd og síðasta Alþingi
samþykki lög um verndun þeirra mannaminja í
landinu, sem vér viljum, að verði hluti af þjóðararf-
inum á komandi tímum. Þetta er allt af 'Söiiiii fót
runnið."
Síðan vék forsetinn að öðru atriði, sem eyðir byggð-
um á íslandi, flótta fólks úr strjálbýli í þéttbýli. Hann
taldi, að einnig á því sviði væru merki þess, að þjóð-
in veitti nauðsynlegt viðnám:
„Það er ástæða til að vona, að undanhald byggð-
anna hafi runnið sitt skeið á enda og jákvætt viðnám
sé hafið. Bændabyggðir munu sennilega ekki mikið
dragast saman úr þessu, en kaupstaðir og sjávarþorp,
þéttbýli landsbyggðarinnar, mun eflast. Ég kom aft-
ur úr ferð minni í sumar efldur að trú á framtíð þeirra
byggðarlaga, sem við fórum um.“
Loks mat forsetinn í ræðu sinni árangurinn af við-
leitni okkar við að efla menninguna af landinu og af
þjóðinni:
„Rétt er og skylt að hafa á sér andvará, en ég get
ekki séð, að íslenzk menning sé á neinu undanhaldi,
nema síður væri. Og ég sé ekki betur en í landinu sé
ung kynslóð, sem sé til alls annars líkleg en að af-
rækja menningararfleifð íslendinga.“
Eins og rauður þráður í ræðu forsetans var bjart-
sýni hans á, að þjóðinni tækist að halda sér á réttri
braut í leið að markmiði því, sem Guðmundur Finn-
bogason setti fram á sínum tíma. Forsetinn sagðist
ekki vilja gera lítið úr hinum mörgu og erfiðu vanda-
málum, sem þjóðin ætti við að stríða:
„Alls staðar og ævinlega er við einhver vandasöm
úrlausnarefni að fást. Bölmóður stoðar lítt, heldur
það eitt að snúast við vandanum í góðum hugum og
gleyma þá ekki að gleðjast yfir því,.sem rétt horfir
og fram stefnir. Það er, sem betur fer, alltaf margt.“
Viðhorf þau, sem mótuðu ræðu forseta íslands,
eiga erindi til okkar allra. Við eigum að gera okkur
grein fyrir vandamálunum, en gleðjast jafnframt yfir
því, hve vel okkur miðar, þrátt fyrir allt.
V1 S IR . Þrlðjudagur 6. janúar 1970.
r n ■Miiii nwmiMumtfM’iiwwiirrnHriiHT-twtti' ii ii i i
Friðsamlegt hefur verið I Londonderry um skeið.
Dómurinn yfir Demadette
verkar sem oila á eldinn
Valkyrja Norður-ír-
lands, ungfrú Berna-
dette Devlin, hefur hlot-
ið sex mánaða fangelsis
dóm í Londonderry. Hef
ur ungfrúin áfrýjað
dómnum. Sakir hennar
voru þær, að hún hefði
rofið friðinn í Norður-ír
landi og staðið fyrir upp
þotum. Hafi hún sjálf
gengið harðast fram í
slagnum við lögregluna.
Segist ekki verða í
framboði.
Jafnframt er þaö að frétta af
Bernadette, aö hún lýsir því yfir
statt og stöðugt aö hún muni
ekki bjóöa sig fram til þings í
næstu kosningum. Hún á sem
kunnugt er sæti á brezka þing
inu, sem fulltrúi kjördæmis I
Noröur-írlandi.
Dómurinn yfir Bernadette er
talinn stofna í hættu því tiltölu
lega friösama ástandi, sem ríkt
hefur síðustu mánuði í hinu
hrjáöa Noröur-Irlandi. Það er
ekki sakfellingin, sem þvl veld-
ur. Málssóknin sjálf var líkleg
til að efla andstæðurnar. Hvern-
ig sem dómsniðurstaða hefði
hljóöað, hefði mikill fjöldi
manna látið á sér kræla til mót-
mæla. Enginn rómversk-kaþólsk
ur fbúi í Norður-írlandi vildi sjá
hana sakfellda, hvorki hinir rót
tækari eöa hægfara kaþólikkar.
Enginn mótmælendatrúarmaður
hefði hins vegar sætt sig við, aö
hún yrði úrskuröuö saklaus, auð
vitað allra sízt stuöningsmenn
Bernadette leggur til atlögu
við Iögregiuna.
ItlIIIIIIlE!
SlllBSBBIiBn
séra Paisley úr róttækasta armi
þeirra. t>að fer algerlega eftir
stjórnmálaskoðunum fólks i
landinu, hvort því finnst hún
hafa unnið til dóms eöa ekki
Þelr segfa...
Harðar deilur um
vopnabannið á
ísrael.
„Franska ríkisstjórnin hefur
lokað dyrum hesthússins, eftir
að hrossin voru hlaupin út. Með
þvi bjargaði hún því, sem hún
gat, af heiðri sínum. Tvetmt er
augljóst. I fyrsta lagi á bannið
á sölu vopna til ísraels að halda
áfram. og í öðru iagi aö and-
staða gegn hanninu f Frakklandi
er jafnmikil og hún var, þegar
de Gaulle iagói þaó á fyrir án
Deilurnar um bannið eru jafn
flóknar og ölgafullar og sjálfar
deilur Araba og ísraelsmanna.
Ásteytingarsteinn gagnrýnenda
liefur eínkum verið sá háttur,
sem háföur var á um setningu
bannsins. Hershöfðinginn lét
ekki svo lítið að tilkynna ráð-
Píslarvættið bezt
Tæki Bernadette Devlin þann
kost, þrátt fyrir yfirlýsingar
sínar, að bjóða sig fram til þings
í kjördæmi sínu f Mið-UIster ,
í næstu kosningum, sem
kunna að verða á þessu ári væri
staða hennar ef til vill bezt, ef
hún sæti einmitt í fangelsi um
þær mundir. í hinni harðvítugu
stjómmálabaráttu í Norö-
ur-írlandi er ekkert hagstæðara
en píslarvættiö.
Fært á lista misréttisins
Dómstóllinn varð að kveða
upp dóm, úr því að málið kom i
hendur honum. Hvemig sem fer
um áfrýjun málsins, þá veröur
það olía á bál ófriðarins, og
kaþólikkar munu rísa til hefnda.
Nú munu kaþólskir bæta dóm
stólunum á lista sinn um það,
sem ranglátt sé f stjórnarfarinu.
Fréttamenn viðurkenna yfirleitt
að kaþólski minnihlutinn verði
að þola margs konar ranglæti
úr hendi meirihlutans, til dæm
is á sviði húsnæöis- og atvinnu-
mála. Niðurstaöa rannsóknar-
nefndar á óeirðunum í Norður- .
írlandi f sumar varð einnig sú
að lögreglan heföi tekið of hart
á kaþólikkum. Af þessum sök- 1
um munu þeir líta á dóminn yfir
ungfrú Bernadette sem aukna
ögrun við sig.
Koma vetrar og nokkrar um- :•
bætur á málum kaþólskra i ,
Noröur-írlandi hafa dregið úr
átökum þar. Noröur-írland hef
ur fengið ráörúm til að hugsa
sinn gang Fréttamenn telja þó,
að ekki séu öll kurl komin til
grafar og muni trúflokkarnir >
enn berast á banaspjót, áður ,
en langt um líður.
herrum sínum um það, hvaö þá
ráðfæra sig við þá.
Sú ákæra, að gyöingahaturs
gæti meöal gaullista, er vand-
sönnuð. Jafnvel þótt hún heföi
við rök aö styðjast, mundi and
úö þeirra á Aröbum meira en
iafna metin, en hennar hefu>
gætt n.-fóg öæði mecrai ner-
'manna og opinberra aöila í
Frakklandi allt frá Alsírstríð-
inu.“
Guardian (London).