Vísir - 06.01.1970, Síða 13
VÍSIR . Þriðjudagur 6. janúar 1970.
13
Bréf úr útlegð:
• •
ttirnir í
húsinu ganga með einglyrni
eftir Jónas Guðmundsson, stýrimann
Kaupmannahöfn, 26. nóvember, húsi angistarinnar.
□
Enn hafa orðið þáttaskil. Ég hefi kvatt Botany Bay og
er að leita að nýju plássi, eða skiprúmi. Það er ekki
vandalaust, ef einhver skyldi nú halda það. Þú verður að
minnsta kosti að gera einhverjar kröfur til sjálfsvirðingar
þinnar, þú verður að fá kaup og helzt að sigla á einhverju,
sem var byggt eftir að amma Napóleons dó. Allt veður uppi
af spekúlöntum með gamla dalla fulla af rottum og ryði, sem
þeir fylla af kolum í von um að einhver golan sendi þá á
botninn. Þessi skip eru undir alls konar Suður-Ameríkufán-
um. Líka vaða uppi alls konar blankir glæpamenn, sem hafa
komizt yfir einhverjar líkkistur, sem þeir ætla að sprengja í
loft upp í Norðursjónum og láta assúransinn borga. Nei, nú
skal það vera „fínt“ félag meö gus og splittflagg — og enn er
undirritaður í Kaupmannahöfn. því hvergi eru virðulegri
skipafélög en einmitt þar.
„Fínu“ útgerðarfélögin hafa
mörg hver aðsetur í Amaliegade.
eins og kóngurinn, og eftir að
hafa fengið tilvísun frá danska
stýrimannafélaginu áræðir þú að
opna þunga koparhurðina, sem
er fægð á hverjum degi. Yfir
hjarta féiagsins og húsi blaktir
félagsfáninn, tignarlegur og
hreinn, mót himni. Þegar inn er
komið í allan þennan marmara,
tekk, pluss og kopar, ertu helzt
að hugsa um að snúa við. En þú
herðir upp hugann og lest á
koparplötu, hvar ráðningar-
kontórinn er, og meðan þú geng-
ur upp tröppumar í áttina að
lyftunni missiröu í rauninni
trúna á að þú getir fengiö vinnu
hjá svona félagi. Það er erfitt
að lýsa svona flott húsi. Meira
að segja Landsbankinn veröur
eins og kosningaskrifstofa i
Kópavogi við hliðina á þessu.
Allt er eitthvað svo fágað og
tandurhreint og svo maður steli
nú einhverju, þá ganga jafnvel
kettimir I húsinu með einglymi.
Þú ert þar. Á breiöum gangi
með þykku, gráu teppi og ung
stúlka býður þér sæti á hörðum
eikarbekki. Og svo hefst biðin.
Á litlu látúnskilti stendur. að þú
sért vinsamlegast beðinn að
reykja ekki og það gerir kvölina
ennþá meiri. Við og við ganga
náttúrulaus, föl ungmenni í
sorgarklæðum framhjá, meö
þykka skjalabunka í höndum.
Þetta eru veröandi fulltrúar og
prókúristar félagsins, og svo er
röðin komin að þér.
Virðulegur maður heilsar þér
alúðlega og hverfur svo inn i
sig aftur, eftir að hafa boðið
„yöur“ sæti og eftir stundar-
kom fer hann að yfirfara papp-
írana þfna og sjóferðabókina,
þungur á brúnina og þrúgandi
þögn fer yfir sviðið. Loks lítur
hann á umsækjandann undan
gleraugunum og spyr: Drekkið
þér? Ég heyri sjálfan mig segja
Bragða helzt aldrei vín og vona
til himna að hann finni ekk'
koniakslykt úr fimm heimsáVf-
um leggja að vitum sér. Jah há!
segir hann og litur enn á papp-
írana. Spyr síðan: Skrifið þér
dönsku? - Já, segir ég blygð-
unarlaust. Ágæta dönsku og ég
ISAL
RAFVIRKJAR
óskast til starfa í rafmagnsdeild Álverksmiðj-
unnar í Straumsvík, um nokkurra mánaða
skeið.
Meginverkefni verða viðgerðir og viðhald á
hvers konar rafbúnaði verksmiðjunnar.
Ráðning verður nú þegar eða samkvæmt nán-
ara samkomulagi.
Umsóknareyðublöð liggja frammi í bókaverzl
un Sigfúsar Eymundssonar og bókabúð Oli-
vers Steins í Hafnarfirði og sendist umsóknir
eigi síðar en 12. jan n.k. í pósthólf 244, Hafn-
arfirði.
íslenzka álfélagið hf.
Blaðburðarfólk óskast
Afgreiðsla VÍSIS,
Keflavík sími 1349.
heyri að gamli dönskukennarinn
minn snýr sér við I gröfinni.
Eftir drykklanga stund segir
hann að ég geti fengið stöðu á
12.000 tonna vöruflutningaskipi
og er ég „boðinn velkominn í
reiðaríiö". Síðan ýtir hann á
hnapp og inn kemur alvarleg,
svartklædd kona, sem minnir á
Sigríði frá Munaðamesi og eftir
að hafa útskýrt þennan ein-
kennilega ferðalang fyrir henni,
kveöur sá gamli og fær mig
frúnni á vald. Hún mun ganga
frá formsatriðunum og áður en
ég veit af er ég kominn upp í
þotu á leið til Orange um París,
og verö í Suður-Frakklandi á
morgun. Já nú er ég hjá ,,fínu“
félagi.
Þotan brunar gegnum loftið
og þú ferð að hugsa um konurn-
ar í Frakklandi. Þær minna þig
á litla saungfugla og eru með
fjörutíu stiga hita og fangelsis-
kettimir í Frans eru ekki með
einglymi.
TÆKNIFRÆÐINGUR
óskast til starfa á vegum Alusuisse í Þýzka-
landi í nokkur ár.
Menntun: Tæknifræðinám í rafmagnstækni.
Meginverkefni verða hönnun, endurbætur og
smíði á sjálfvirkum stjórnbúnaði fyrir ný
tæki til nota við álframleiðslu.
Nokkur þýzkukunnátta er nauðsynleg.
Ráðning verður frá 1. maí n.k. eða sam-
kvæmt nánara samkomulagi.
Umsóknareyðublöð liggja frammi í Bóka-
verzlun Sigfúsar Eymundssonar og í Bóka-
búð Olivers Steins í Hafnarfirði og sendist
umsóknir eigi síðar en 12. janúar n.k. í póst-
hólf 244, Hafnarfirði.
fslenzka álfélagið hf.
FRA
HAPPDRÆTTI
HÁSKÓLA ÍSLANDS
Viðskiptavinir Happdrættisins eiga forkaupsrétt að
miðum sínum til 10. janúar. Eftir þann tíma neyðast
umboðsmenn til að selja alla miða vegna óvenjumik-
illar eftirspumar.
UMBOÐSMENN B REYKJAVÍK
Aðalumboðið, Tjarnargötu 4 símar 25665 og 25666.
Arndís Þorvaldsdóttir, Vesturgötu 10, sími 19030
Frímann Frímannsson, Hafnarhúsinu, sími 13557.
Helgi Sivertsen, Vesturveri, sími 13582.
Verzlunin Straumnes, Nesvegi 33, sími 19832.
KÓPAVOGUR
Borgarbúðin, Borgarholtsbraut 20, sími 40180
Litaskálinn, Kópavogsbraut 2, sími 40810
HAFNARFJÖRÐUR
Kaupfélag Hafnarfjarðar, Strandgötu 28, sími 50224
Verzlun Valdimars Long, Strandgötu 39, sími 50288
NÝ UMBOÐ
Verzlunin ROÐI, Laugavegi 74, sími 15455.
Benzínsala B.P., Háaleitisbraut, sími 24220
Sjóbúðin, Grandagarði, sími 16814
Geirlaugur Árnason, Hraunbæ, sími 81625.
Arndís L. Níelsdóttir, Urðarstekk 5, sími 81996.
Verzlunin GYÐA, Ásgarði 22, sími 36161.
Bókabúð Safamýrar, Miðbæ, sími 35230
Bókabúðin Álfheimum 6, sími 37318
Bókabúðin Kleppsvegi 150, sími 38350
Rannveig Ingimarsdóttir og Ólöf Kristjánsdóttir
Laugavegi 170—172, sími 12385
Bókabúðin Gríma, Garðahreppi, sími 42720.
Happdrætti Háskóla íslands