Vísir - 28.02.1970, Blaðsíða 2
★
Engar myndir af mér,
takk fyrir!
„Þú skalt láta ógert aó taka
myndir af mér, góði. Ég vil engar
myndir af mér í blöðum, takk
fyrir!“ og kengúrupabbi lét ekki
sitja viö oröin tóm, heldur' herti
vöövana, reis upp á sveru rófuna
sína og réöist til atlögu gegn
enska ljósmyndaranum, Jeff Cart
er, sem aö undanförnu hefur ver-
ið í myndaleiöangri í Ástralíu og
fest á filmu hið fjölskrúðuga og
sérkennilega dýralif þar.
Það er þolinmæðisverk að
mynda villt dýr, en Jeff kann
á því lagið, þótt honum semdi
ekki við kengúrupabba. En eng-
inn má við margnum og ekki held
ur kengúran, þótt hún geti spark-
að hraustlega frá sér, enda varaði
kengúrupabbi sig ekki á því, aö
María Carter, eiginkona Jeffs, er
honum jafnslyng á ljósmynda-
vélina.
Meðan kengúran og Jeff voru
að kljást, tók María þessa
skemmtilegu mynd af þeim, en
kengúrur eru afar mannfælnar og
ekki gott að komast að þeim
villtum úti á gresjunum, enda
ekki margar ljósmyndir til af
þeim, nema þær, sem teknar hafa
verið f dýragörðum.
— Lífið byrjar fyrst um fertugt,
sagði ástralska kappaksturshetj-
an, Jack Brabham, þegar hann
hafði náð „þeirri beygju“, og var
spurður, hvort hann mundi ekki
senn kveðja íþróttina fyrir aldurs
sakir. Hann gaf svari sínu aukna
I Formúlu I-keppnum ekur Brabham í sínum eigin bíl, sem hann hefur sjálfur hannað.
Gamli maðurinn og kappaksturinn
áherzlu með því að vinna í þriðja
sinn heimsmeistaratitilinn i Form
úlu I keppni nokkrum mánuöum
seinna.
Þetta var áriö 1966." en síð-
an eru liðin fjögur ár, og enn er
hinn 44 ára gamli Brabham í röð-
um hinna fremstu f kappakstrin-
um um heimsmeistaratitilinn. Góö
ur árangur í keppnum þessara ára
tekur af allan vafa um það, aö
ennþá er „gamli maðurinn" hættu
legur keppinautur hinum yngri.
Keppnistímabilið 1970 verður
æsandi og fjörugt fyrir þennan
fyrrverandj heimsmeistara, sem
hefur gert samniraa við Matra-
framleiðandann og Mercedes um
að keppa á vegum þeirra í nokkr-
um keppnum í „standard"-bílum.
í Formúlu I-keppnunum (Grand
Prix) keppir hann hins vegar eins
og venjulega í sínum eigin bíl —-
BRABHAM. Ofan á þetta.bætist
svo hjá Ástralíumanninum þátt-
taka í hinum mikla Can Am-
kappakstri í Brabhambílnum
hans, sem hann hefur látið skrá
sig í.
„Fimmtán Formúlu I-keppnir
yfir árið er of lítið til þess að viö-
halda hæfninni," er skýring Jacks
sjálfs á þessari auknu þátttöku
sinni á nýja árinu i keppnum.
Bílar hafa alla tíð skipað mik-
inn sess í lífi Jacks Brabham, sem
var aöeins sex ára, þegar faðir
hans leyfði honum að sitja í
kjöltu sinni og stýra stóra amer-
íska fjölskyltíubílnum. Áður en
hann hafði náð 16 ára aldri, var
hann orðinn með snjöllustu bif-
vélavirkjum, og 18 ára gamall
haföi hann öölazt mikla reynslu í
verzlun með notuö mótorhjól,
sem hann hafði sjálfur gert upp.
Á seinni heimsstyrjaldarárun-
um var hann vélvirki í ástralska
flughernum.
Á fyrstu árunum eftir stríð bragð á valdi sínu. Hann tekur
verzlaði hann meö umframbirgöir enga óþarfa áhættu og sem
ameríska hersins, og það var þá, reynsluókuþór tekur hann öllum
sem hann setti sjálfur saman sinn hinum fram.
fyrsta litla kappakstursbíl. Brabham er íhaldssamur í smiði
Jask Brabham, þrefaldur heimsmeistari í Formúlu I-kappakstri.
Fyrsta kappaksturinn háöi hann
1947, og þegar hann flutti til
Englantís 1955 gat hann gortað af
fjórum áströlskum meistaratitl-
um. En fyrstu árin í Englandi
voru honum erfiö, þvf aö hinn
velefnaði faðir hans, sem var
grænmetiskai'pniaður. studdi
ekki son sirm fjárhagslega í þess-
um ævintýrum, enda kom það
lika fyrir, aö Brabham byrjaði
stundum stórar keppnir, án þess
að sjá fyrir einu sinni, hvernig
hann gæti aflaö fjár fyrir bensíni,
svo aö hann gæti lokið keppninni.
En úr því rættist öllu saman,
þegar samvinna hans hófst við
hið' fræga Cooper Company, þar
sem har.n náði undursam’ecuir
árangri á árunum 1959 og 1960,
en þau ár varð hann heimsmeist-
ari tvivegis.
En svo slitnaði upp úr sam-
starfinu 1961 og Brabham byrj-
aði að smíða sína kappakstursbíla
sjálfur. Mörg ár liðu, svo að ár-
angurinn sér eftir sér bíða, en
engum duldist hæfni og leikni
Brabharns i iþróttinni.
Umbunina fyrir erfiðið hlaut
Jack 1966, þegar hann braut á
bak aftur allan orðróm um, aö
hann væri oröinn gamall, og vann
fjórar „Grand Prix“-keppnir. Þar
með varð hann fyrsti og eini öku-
þórinn hingað til, sem oröiö hefur
heimsmeistari í eiginsmíðuðum
bíl.
Á kapnakstursbrautunum er
Jack Brabham gamli slungni ref-
urinn, sem þekkir íþróttina út í
yztu æsar og hefur hvert smá-
bíla sinna. Hann segist vinna,
vegna þess aö bílar hans séu
einfaldir og áreiðanlegir —
traustir.
Utan kappakstursbrautar er
hann kyrrlátur heimilisfaðir, sem
hefur óbeit á sviösljósinu, og gef
ur sig ekkert aö hinu ljúfa lífi
fræga fólksins, enda hefur hann
engar tómstundir aflögu til þess.
Hann er önnum kafinn kaupsýslu
maöur meö fyrirtæki á við og
dreif um London og eitt •
Ástralíu.
Innan raöa kappakstursmann-
anna gengur hann undir nafninu
Gamli maðurinn — sko! Alltaf
jafnseigur! En aldurinn háir hon-
um ekki. Þrisvar hefur hann unn-
ið heimsmeistaratitilinn og betur
hefur enginn gert. nema Fangió.
En Argentinumaöurinn var orðinn
fertugur, þegar hann vann sinn
fyrsta heimsmcistaratitil, svo
Brabham setur vel jafnað metin
ennþá, ef hann hefur hraðan á.
Gamlar góðar
bækur fyrir
gámlar góðar krónur
BÓKA-
MARKAÐURINN