Vísir - 28.02.1970, Qupperneq 3
(Jmsjón: Benedikt Viggósson:
,Fordómar og vill
andi blaðaskrif
44
segja Oðmenn um þá fullyrðingu að þeir
geti ekki spilað dansmúsik
Hljómsveitin Óðmenn.
Björgvin verðlaunaður fyrir
metsöluplötu ársins 1969
1 sl. viku var Björgvin Hall-
dórssyni afhentur silfurbikar,
hinn mesti kjörgripur og að
sjálfsögðu greyptur nafni Björg-
vins.
Það voru forráðamenn Tóna-
útgáfunnar sf., Pálmi Stefáns-
son og Jón Ármannsson, sem
veittu Björgvin bikarinn í heið-
ursskyni fyrir mest seldu hljóm-
plötuna af þeim, sem útgáfan
sendi frá sér á sl. ári, og eins
og lesendur renna e.t.v. grun í,
er hér um að ræða plötuna með
íögunum vinsælu: „1 drauma-
landi“ og „Þó líði ár og öld ..“
Þessi margumtalað plata seldist
í 3500 eintökum og var söluhæst
allra íslenzkra hljómplatna 1969.
— Ég er ákaflega þakklátur
Tónaútgáfunni_ sagði Björgvin,
og um leið vil ég nota tækifær-
ið og þakka öllum þeim, sem
stuðluðu aö þessu með því að
kaupa plötuna, þeim á ég mest
að þakka.
Pálmi og Jón sögðu, að svona
verölaunaveiting væri nýbreytni
hjá útgáfunni, en ætlunin væri
að heiðra framvegis á hverju ári
þá aðila, sem ættu allan veg og
vanda af mest seldu hljómplöt-
unni hjá Tónaútgáfunni.
Eins og kunnugt er var um-
rædd plata með Björgvin út-
nefnd sem vandaöasta 45 snún-
inga hljómplatan 1969 af hljóm-
plötugagnrýnendum dagblað-
anna. Svo hér virðast fara saman
vinsældir og gæöi.
Á blues kvöldinu sl. þriðjudag
komu Óðmenn fram í fyrsta sinn
f Reykjavík eftir þær breyting-
ar, sem orðiö hafa á hljómsveit-
inni, en sem kunnugt er hefur
Reynir Harðarson tekið sæti
Ólafs Garðarssonar við tromm-
umar.
Er Óðmenn höfðu lokið ieik
sínum, sem var ágætlega tekið
af viðstöddum, rabbaði ég stutt-
lega við þá.
— Koma trommuleikara-
skiptin til með að hafa einhver
áhrif á stefnu hljómsveitarinnar?
— Ekki stefnuna, svarar Finn-
ur, við munum eftir sem áður
túlka þá músík, sem okkur
finnst hafa mest sköpunargildi.
Við munum taka meira tillit
hvor til annars og stefnum að
því aö mynda eina samtaka
heild, áður hugsaðj hver og einn
meira um sjálfan sig.
— Þið tókuö Cream mjög til
fyrirmyndar.
.— Þaö má eiginlega segja
það. aö við höfum æft okkur á
Cream, segir Jóhann, Óli féll
mjög vel inn í það, sem við vor-
um að gera þá, en Reynir feliur
enn betur inn í það, sem við
glímum við núna. Það er ekki
ætlunin að taka neina hljóm-
sveit til algerrar fyrirmyndar,
heidur reyna aö skapa okkar
eigin persónulega stfl. Við höf-
um iíka fullan hug á því að hafa
verulegan hluta af því, sem við
flytjum, frumsamið.
— Því hefur verið haldið
fram, að Óðmenn geti ekki spilað
dansmúsík?
— Þetta er fyrst og fremst
sprottið af fordómum. segir
Finnur, og blaðaskrif hafa mörg
hver ýtt undir þennan hugsunar-
hátt. Við teljum okkur spila
mjög aðgengilega dansmúsík,
og þeir, sem eru í vafa um það,
eru beðnir aö hringja í umboðs-
manninn okkar. sfminn hjá hon-
um er 2-58-55.
Starfsfólkið var nú farið að
tvístíga í kringum okkur, enda
klukkan orðin vel yfir eitt, ég
sló þvf botninn í þetta og óskaði
piltunum góðs gengis.
;,Okkar einasta Ijóð"
r/
Það virðist ekki á færi allra
pophljómlistarmanna að semja
lög, og það heyrir til algerrar
undantekningar, ef textahöfund-
ur er innan híjómsveitarinnar.
Yfirleitt er leitað á náðir góð-
kunnra hagyrðinga, þegar hljóm-
plata er fyrirhuguð. og jafnvel
á þeim vígstöövum viröast
menn komnir í efnisþrot.
„Ástin ein, ástin hrein, Jiún
feeknar öll mein, er okkar ein-
asta ijóð ..“ syngja Roof Tops
í titillaginu á nýútkominni
hljómplötu, og það er orð að
sönnu, því þetta ljóö Ómars
Ragnarssonar er þaö eina á
plötúnni, sem ort er á fslenzku.
Við síðara lagið er notazt við
frumtextann, sem er á ensku
eftir Donovan og nefnist „La-
lena“, lagið er einnig eftir hann.
Það er ákaflega hvimleitt og
vart til eftirbreytni að syngja á
erlendu máli inn á hljómplötu,
sem er ætluð fyrir íslenzkan
markað.
Hins vegar er því ekki að
neita, að þetta er áheyrilegri
hlið plötunnar, þrátt fyrir þenn-
an sjæma galla.
Söngurinn er virkilega góður,
og allur annar flutningur er
hinn þokkalegasti, en platan í
heild er ekki sú, sem ég taldi
mig eiga von á, eftir að hafa
hlustað á fyrstu plötu Roof
tops.
Jón Ármannsson afhendir Björgvin Halldórssyni silfurbikartnn fvrir söluhæstu plötuna.