Vísir - 28.02.1970, Qupperneq 6
6
VISIR . Laugardagur 28. febrúar 1970.
Framtak í at-
vinmimálum
GJALLAR-
HORN
HEIMDALLAR
Helgi Þórsson
og
Hreinn Skagfjörð Hákonarson
Gjallarhorniö lagði eftirfarandi spurningu fyrir
fjóra unga menn: Með hvaða hætti á Reykjavíkur-
borg að hafa afskipti af atvinnumálum?
Guðjón Tómasson
Tjað er skoðun mín, að af-
skipti borgaryfirvalda af at
vinnumálum eigi f meginatrið-
um að vera tvíþætt. Annars veg
ar að skapa atvinnufyrirtækj-
um traustan samkeppnisgrund-
völl og hins vegar að sjá borg-
urunum fyrir nægjanlegri og
fjölbreyttri atvinnu á hverj-
um tíma.
Hvað viðvíkur samkeppnis-
hæfni atvinnuveganna eru þaö
þrir þættir borgarmála, sem
hvað mest eru afgerandi. í
fyrsta lagi, að atvinnufyrirtækj
um sé ætíð gert kleift að búa
við skipulag, sem hefur upp á
að bjóða aðstööu til nýtingar
hagkvæmustu vinnubragða. f
öðru lagi, að tryggð sé mennt-
unaraöstaða, sem uppfyllir þarf
ir atvinnuveganna. f þriðja lagi,
að hvers konar fyrirgreiðsla og
álögur af hálfu borgarinnar séu
aldrei óhagstæðari en gerist
hjá samkeppnisaðilum, jafnt inn
lendum sem erlendum.
Að því er lýtur að atvinnu til
handa hverri vinnufúsri hendi
verða borgaryfirvöld að vinna
ötullega aö og styðja f hvívetna
framtak einstaklinga og félaga
við að renna fleiri stoðum und-
ir atvinnulíf höfuðborgarsvæðis
ins, með þvi einu saman verð-
ur hægt að koma í veg fyrir, að
tímabundnir erfiðleikar ein-
stakra atvinnugreina leiði til
áþekkts atvinnuástands og var
fyrir ári.
Guðjón Tómasson hagræðingar
ráðunautur, Miðtúni 86, er 28
ára. Hann er vélstjóri að mennt
un. Kona hans er Þuriöur Gísla
dóttir.
Runólfur Pétursson
■pg tel að borgarstjóm eigi aö
stuðla að eflingu á rekstri
Bæjarútgerðar Reykjavíkur, en
jafnframt legg ég til að togara
útgerð landsmanna veröi tryggð
ur viðunandi verksgrundvöllur
við eðlilegar aðstæður. Einnig
tel ég að borgarstjórn eigi að
stuðla að því að nægar tóðlr
séu fyrir hendi til iðnaðar- og
íbúðarbygginga.
Ég tel að borgarstjóm eigi að
stuðla a? því að iðnaður verði
ekki útundan í viðleftni at-
vinnumáxanefndar Reykjavíkur
tfl eflingar atvinnulífj í Reykja-
Runólfur Pétursson iönverka-
maður, Reynimel 88, er 34 ára.
Hann er í stjóm Iðju. — Kona
hans er Ruth Sörensen.
vik. Það er einnig ósk mín að á
komandi sumri verði séð fyrir
því að næg atvinna verði fýrir
það skólafólk sem á vinnumark
aðinn kemur.
Birgir ísl. Gunnarsson
Afskipti sveitarfélaga eins og
Reykjavíkur af atvinnulíf-
inu geta verið með ýmsu móti.
Algengustu afskiptin liggja f
ýmiss konar óbeinni fyrir-
greiðslu, eins og t.d. undirbún-
ingi lóða fyrir atvinnufyrirtæki,
stofnun og rekstri vatnsveitu,
rafmagnsveitu og hafnar. Mest
verða afskiptin þó, þegar sveit-
arfélagið sjálft tekur í sínar
hendur að stofnsetja og reka
atvinnufyrirtæki. Ég er þeirrar
skoðunar að Reykjavikurborg
eigi ekki að fara út í beinan at-
vinnurekstur í ríkari mæli en
nú er, eins og ýmsir hafa haft
uppi tillögur um. Ég held að
reynslan hafi sýnt, að atvinnu-
reksturinn í borginni á að vera
f höndum borgarbúa sjálfra eða
félagssamtaka þeirra f formi
einkareksturs. Hlutverk Reykja
vfkur verður þá að örva borgar
búa til atvinnureksturs og
skapa þeim sem bezta aðstöðu
til stofnsetningar og reksturs
fyrirtækja f ýmsum greinum.
Þetta hefur borgin gert á ýms-
an hátt og erfiðleikar síðustu
ára kenna okkur að slíka starf-
semi verður borgin að auka.
Borgarstjórn hefur þvf sam-
þykkt gerð atvinnuáætlunar
Reykjavfkur, sem gefur tilefni
til að leitað sé nýrra leiða í
ýmiss konar fyrirgreiðslu borg
arinnar við borgarbúa, sem at-
vinnurekstur stunda.
Úlafur B. Thors
p'yrst og fremst með því að
A skapa sem lífvænlegust skil
yrði fyrir atvinnurekstur í borg
inni. Það er gert meö því aö
veita fyrirtækjum aðstöðu til
starfsemi, svo sem hentugt at-
hafnasvæði, heimild til bygg-
inga og með því að taka tillit
þróazt og eflzt í Reykjavík og
jafnframt er mikilvægt að
stuðla að innri uppbyggingu at-
vinnurekstrar, td. með skynsam
legri stefnu í skattamálum, að
svo miklu leyti sem borgin fær
þar um ráðið. Þá tel ég eðlilegt,
að reynt sé með einhvers kon-
ar fyrirgreiðslu að laða til borg
arinnar atvinnurekstur, sem
borginni er hagur í að hafa inn
an sfns yfirráðasvæðis og þá
sérstaklega rekstur, sem veitt
getur mikla atvinnu. Þá tel ég,
að borgaryfirvöldum beri að
fylgjast vel með nýjum atvinnu
greinum, sem líklegt er að geti
þróazt og elfzt f Reykjavík og
Birgir ísl. Gunnarsson hrl., —
Fjölnisvegi 15, er 33 ára. Hann
er í borgarstjóm og borgarráði
Reykjavíkur. Kona hans er
Sonja Bachmann.
Nöfnin í prófkjörinu
Kristján J. Gunnarsson, skólastjóri,
Sporðagrunni 5, 50 ára. Kvæntur
Þórdísi Kristjánsdóttur.
Jónína Þorfinnsdóttir, kennari, —
Stórholti 33, 48 ára. Gift Ragnari
Edvardssyni.
Gísii V. Einarsson, viðskiptafræðing
ur, Stigahlíð 91, 38 ára. Kvæntur
Eddu I. Eggertsdóttur.
Þórður Kristjánsson, húsasmíða-
meistari, Bjarmalandi 8, 52 ára. —
Kvæntur Unni Runólfsdóttur.
Karl Þórðarson, verkamaður, Stóra
gerði 7. 46 ára. Kvæntur Jökulrós
Magnúsdóttur.
Geir Hallgrímsson, borgarstjóri, —
Dyngjuvegi 6, 44 ára. — Kvæntur
Emu Finnsdóttur.
Ólafur B. Thors deildarstjóri,
Hjarðarhaga 50, er 32 ára. Hann
er lögfræðingur að menntun og
hefur starfað mikið í Sjálfstæð-
isflokknum. Kona hans er Jó-
hanna J. Thors.
að borginni beri að veita slíkum
atvinnugreinum aðstoð og hlúa
að þeim á allan hátt.
Hins vegar er ég í grundvall
aratriðum andvfgur þvi, að
borgin sjálf hafi með höndum
atvinnurekstur umfram það,
sem telst eölileg þjónusta við
borgarana og ekki er talið hag
kvæmt að fela öðrum aöilum.
Annar sjálfstæður atvinnurekst
ur borgarinnar er að mfnum
dómj aöeins réttlætanlegur við
sérstök skilyrði, svo sem ef um
atvinnuleysi er að ræða, eða ef
verið er að hrinda af stað fjár-
frekum rekstri, sem borgin tel-
ur rétt aö komiö verði á fót og í
þvf tilviki á aðild borgarinnar
að vera tímabundin og ljúka svo
fljótt sem verða má og aðrir að-
ilar eru færir um að taka við.
Þannig á borgin að vera hvetj-
andi til aukins athafnah'fs, en
takmarka eigin þátttöku sem
mest.
TILKYNNING FRÁ
BÖNKUNUM TIL
VIÐSKIPTAMANNA
Hér með tilkynnist heiðruðum viðskipta-
mönnum, að frá 1. marz 1970 verða bank-
arnir lokaðir á laugardögum.
Jafnframt lengist afgreiðslutími bankanna
aðra virka daga og verður eftirleiðis sem hér
segir:
Seðlabanki íslands kl. 9,30 til kl. 15,30
Landsbanki íslands kl. 9,30 til kl. 15,30
Búnaðarbanki íslands kl. 9,30 til kl. 15,30
Útvegsbanki ísiands kl. 9,30 tu kl. 12,30
og kl. 13,00 til kl. 16,00
Verzlunarbanki íslands h.f. kl. 9,30 til kl. 12,30
og kl. 13,00 til kL 16,00
Iðnaðarbanki íslands h.f. kl. 9,30 til kl. 12,30
og kl. 13,00 til kl. 16,00
Samvinnubanki íslands h.f. kl. 9,30 til kl. 12,30
og kl. 13,00 til kl. 16,00
Seðlabanki íslands Landsbanki Islands
Búnaðarbanki Islands Útvegsbanki lslands
Verzlunarbanki íslands h.f. Iðnaðarbanki fsiands b.f.
Samvinnubanki íslands hX.