Vísir


Vísir - 14.04.1970, Qupperneq 3

Vísir - 14.04.1970, Qupperneq 3
VÍ S IR . Prlðjudagur 14. apríl 1970. í MORGUN UTLÖNDI MORGUN UTLOND I IVTORGUN UTLÖND ÍHIORGUN ÚTLÖND Gleðihróp á götum Aþenu — vegna frelsunar tónskáldsins Theodorakis Fólk á götum Aþenuborgar fagnaði í gærkvöldi þeim óvæntu tíðindum, að gríska tónskáldið Theodor- akis haf ði verið látinn laus. Menn höfðu óttazt, að hann mundi láta líf sitt í fangelsi. Gleðihróp heyrð- ust á götunum, en auðvitað voru engin skipulögð fagn- aðarlæti. Georg Papadopoulos forsætisráð- herra kom strax með þá yfirlýsingu,- að Theodorakis hefði verið látinn laus með því skilvrði, að frelsi hans yrði ekki notað í pólitísku skyni. Myrto kona tónskáldsins sagði seint í gærkvöldi, að hún hefði von- ir um að koma til manns síns í Par- ís innan skamms Þau hjónin eiga tvö börn. Ákvörðunin að láta Theodorakis lausan kom fréttamönnum í Aþenu mjög á óvart, enda var hann talinn svamasti óvinur herforingjastjóm- arinnar. Margir töldu að nú yrði Theodorakis einungis tákn í and- spyrnunni gegn stjórn herforingj- anna. Hins vegar virðast herforingjarn- ;r telja, að þeir auki álit sitt erlend- is með því að láta tónskáldið laust. Franski stjórnmála- og blaðamað- Franski stjórnmálamaðurinn Servan-Schreiber sótti tónskáld- ið til Aþenu. urinn Jean Jacques Servan-Schreib- er, sem tók við Theodorakis í Aþenu í gær og fór með hann til Parísar, sagðist „ekki hafa staðið í neinum samningaviðræðum“ um frelsun hans. „Ég gaf ekkert og lof- aði engu,“ sagði hann. Theodorakis hvílist í dag í sjúkra húsi í París, og er ekki vitað, hvaða sjúkrahús það er. 1 fangelsinu fékk hann að nýju berklaveiki, og munu franskir sérfræðingar reyna að lækna hann eins fljótt og unnt er. I yfirlýsingu sinni sagði Papadop- oulos forsætisráðherra Grikkiands, að það væri ekki nauðsynlegt Vegna veikinda tónskáldsins, að hann færi til Parísar Hefði hann fengið trygg- ingu frá Servan-Schreiber, sem er framkvæmdastjóri franska stjóm- málaflokksins, róttækra sósíalista, þess efnis, að frelsi hans yrði ekki misnotað í pólitískum tilgangi. Theodorakis var tekið sem hetju i París. Kunnir útlagar grískir föðmuðu hinn herðabreiða og há- vaxna mann, þeirra á meðal leik- konan Melina Mercouri. Theodor- akis sagði við komuna, að sér virt- ist erfitt að skilja, að hann væri raunverulega frjáls maður. „En hug ur minn er hjá grisku þjóðinni, og framtíð hennar er að miklu leyti komin undir samstöðu Evröpu- rikja.“ Theodorakis hafði setið i fangelsi síðan sumarið 1968. Líkur fyrir kjöri séra Paisleys á þing Miklar líkur eru taldar til þess, að séra Ian Paisley, hinn öfgafulli mótmælenda prestur í Norður-írlandi, muni ná kosningu til þings í kosningunum um helgina. Þetta gæti haft mikil áhrif á þróun mála þar í landi og spillt mjög friði. Paislev keppir um sæti í auka- kosningum f sveitakjördæmi í Bannside, norðvestur af höfuðborg- inni, og andstæðingar hans úr sam- bandsflokknum er ekki talinn sig- urstranglegur. Ef Paisley vinnur, fær hann vettvang fyrir áróður sinn, sem er miklum mun sterkari en sem hann hefur haft. Þetta gæti haft alvarlegar afleið- ingar fyrir hæfni James Chichester Clark, forsætisráðherra til aö stjórna landinu með hinum fá- menna hópi af frjálslyndum og nokkru fleiri „millimönnum“, sem hann styðja með tregðu. Þá mundi kaþólski minnihlutinn líta á kosningu Paisleys sem ögrun, og telja, að hagur þeirra verði fyr- ir borð borinn. Umsjört: HaUkur Helgasón Myndin sýnir Theodorakis, meðan hann var í fangelsi grísku stjórnarinnar. Héraöslæknisembætti auglýst laus til umsóknar Eftirtalin héraðslæknisembætti eru laus til umsóknar: 1. Austur-Egilsstaðahérað 2. Eskifjarðarhérað 3. Flateyrarhérað 4. Breiðumýrarhérað 5. Þórshafnarhérað 6. Reykhólahérað Austur-Egilsstaðahérað og Eskifjarðarhérað veitast frá 1. september n.k., en hin þegar að umsóknarfresti loknum. Umsóknarfrestur er til 12. maí n.k. Heiibrigðis- og tryggingamálaráðuneytið, 13. apríl 1970. Aðeins kr. 1000. — út og kr. 730.— á mánuði Nú geta allir gefið nytsamar fermingargjafir. Seljum á meðan fermingar standa yfir á mjög góðum kjörum, skatthol, skrifborð, skrifborðsstóla, sauma- borð o.m.fl. Aðeins kr. 1000 — út og kr. 750.— á mánuði TRÉSMIÐJAN VÍÐIR HF. Laugavegi 166, Símar 22222 og 22229

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.