Vísir - 21.09.1970, Blaðsíða 16

Vísir - 21.09.1970, Blaðsíða 16
Sækir um að flytja inn krókódíla og eiturslöngur VISIR i Mánudagur 21. sept. 1970. Prófkjör hafið Próíkjör Sjálfstæðismanna um skipan framboðslistans fyrir naestu alþingiskosningar hófst á laugardag inn með atkvæðagreiðslu utan kjör staðar, sem fer fram í Galtafelli að Laufásvegi 46. Utankjörstaðaratkvæðagreiðsla mun standa út þessa viku. 1 dag óg fram ti'l föstudags fer hún fram mdili kl. 5 og 7. Á laugardaginn fer hún fram milli tol. 10 og 3. Prófkjörið fer svo fram sunnudag og mánudag 27. og 28. sept. —GP 0 Maður einn í Kópa- vogi, Valdimar Óskars- son, hefur sótt um leyfi til landbúnaðarráðuneyt isins til að fá flytja inn krókódíla, eðlur, slöng- ur og froska. Valdimar tjáði Vísi að hann sækti um leyfið fyrir mág sinn, sem dvelst erlendis og væri honum næsta lítið kunnugt um málið, annað en að mágurinn fól honum að sækja um þetta í fjarveru sinni. Hins vegar bjóst Valdimar við að mágur sinn kæmi heim áöur en langt liði, en hvort hann hefði þá meðferðis slöngur og krókódíla eða önn- ur frumskógadýr vissi hann ekki um. Torfi Þórðarson í iandbúnað- arráðuneytinu kvaðst hafa um- sókn Valdimars til athugunar. Yfirleitt eru talsverð vandkvæði á að fá innflutningsleyfi fyrir dýrum sem þessum, en eftirlit er mjög strangt tii að koma megi í veg fyrir að sjúkdómar berist með þeim. — GG var verið að koma fótbrotna skíðamannin um fyrir í flugvéiinni, sem flutti hann til Reykja- Lézt í bílslysi Lítill drengur, aðeins 2ja ára að aldri, beið bana á föstudag, þeg- ar hann varð undir vönabifreið á hlaðinu hjá bænum Prest- bakkakoti á Síðu. Drengurinn, sem hét Þorbergur Stéinar og var í fóstri hjá afa sín- um og ömmu í Prestbakkakoti, var að leik á hlaðinu skammt þar frá, 'sem vörubifreiðinni var lagt. Öku- maðurinn vissi ekkert af drengn- um og sá hann ekki, þegar hann sner; bifreiðinni á blaðinu til þess að aka á brott, né heildur var neinn nærstaddur, sem sá til eða gat var- að ökumanninn við. Varö drengur- inn undir afturhjóli bifreiðarinnar, og var látinn, þegar að honum var komið. — GP ENGLAND 2:1 GEGN ÍSLANDI • 1 6. umferð Ólympíuskákmóts- ins í gærkvöldi hafði England féngið tvo vinninga gegn elnum vinningi íslendinga, en ein skákin fór í bið. Önnur úrslit í C-flokki urðu þau, að Skotland vann Túnis 3—1, Fil- ippseyjar unnu íran 2y2 — iy2, Belgía hefur 2 gegn 1 vinningi Grikklands og Brasilía 2 y2 gegn y2 vinningi Puerto Rico. ítalir unnu Norðmenn. í A-riðli tóku Sovétrikin forystu í keppninni nú viö Bandaríkin með iy2 gegn y2, en ein biðskák. Ung- verjar unnu Vestur-Þjóðverja 2l/2 gegn 1 y2, og eru Ungverjar þá efstir í riölinum með 15 stig. I 2. sæti eru enn Bandaríkjamenn með 14 og tvær biðskákir og Sovétríkin í 3. sæti með 13 y2 og 2 biðskákir. I 4. sæti er Argentína. — HH ] Skíðamaður fótbrotnaði Er sjónvarpsmenn voru staddir við Skíðaskólann í KertlingafjöM- um í gær og voru aö kvikmynda nokkra skíðakappa sem renndu sér á fullri ferð niður bratta brekku, vildi það óhapp til, að skíði eins mannsins stakkst í snjó- 'inn. Maðurinn kollsteyptist og fóbbrotnaði. Sagði Ömar Ragnarsson hjá Sjónvarpinu okkur að slysiö hefði reyndar ekki verið á fiilmu fest, því myndatökumaðurinn var ný- búinn að beina vélinni aö öðrum skíöamanni. Sagði Ómar að hann heföi í fyrstunni haldið aö skíðið heföi brotnað er hann heyrði brest, en það var þá fötleggurinn sem hrökk sundur. Skíðin voru hins vegar heil. Ómar sagði að harð- fenni heföi verið og færi því nokk- uð varasamt. Flugvél var fengin frá Reykja- vík til að flytja manninn á spítala. Óhöpp af þessu tagi munu fremur fátfð i Kerlingarfjöllum, t. d. er þetta í fyrsta -sinn í sumar að eitt- hvað þessu lfkt kemur fyrir, og í fyrra varð aðeins einn fyrir ein- hverjum skakkaföllum. Sjónvarpsmenn voru að kvik- mynda f gær við Skíðaskólann og er fyrirhugað að sýna það efni í íþróttaþætti á morgun. — GG Börn í umferðar- sEysum • Sex ára drengur slasaöist, þeg ar hann hljóp fyrir bifreið á Bú- staðavegi skammt austan við gatna mót Grensásvegar á föstudagskvöld um kl. hálf átta. Drengurinn skarst i andliti og meiddist á fætL # Annar drengur, 12 ára, sem var á reiðhjóli á leið yfir gatnamót Grensásvegar og Hæðargarðs, varð fyrir bifreið á laugardagskvöld um svipað leyti. Hann slapp þó án alv arlegra meiðsla. —GP j : jByrjað á bænarorðumj j-endað með hótunum!! Ný keðjubréf '1 gangi á Islandi Hjón missfu eiigur sinur í brunu í húsi þeirra að Hlíðargerði 4 á laugardagsmorguninn. Brann hús- ið til grunna á stuttri stundu, og þegar slökkviliðið af Keflavíkur- flugvelli kom á vettvang var húsið alelda, enda þótt veður væri með ágætum. Húsið og innbú var vátryggt. Keðjubréfafaraldurinn er í algleymingi. Keðjubréf af öllu tagi eru í umferð. Fyrir utan peningakeðjubréfin hefur enskt keðjubréf verið í umferð hér. Það er skrifað samkvæmt gam- alli uppskrift. Hefst það á bæn- arorðum en endar á hótun. Við takandi á að senda tuttugu afrit af þvi til kunningja sinna, inn- an fjögurra daga frá því að hann fær bréfið í hendur. Þá muni eitthvert happ henda hann. Dæmi um slíkt eru nefnd í keðjubréfinu sem er skrifað á ensku. Þetta happ virðist vera í flestum tilfellum peningalegs eðlis. Ef viðtakandi slítur keðj- una er sagt, að hann muni henda eitthvert óhapp, og það jafnvel gefið f skyn, að hann muni láta lífið. 1 bréfinu stendur, að það komi frá Hollandi upphaflega og hafi farið níu hringferðir um hnöttinn. — SB

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.