Vísir - 29.09.1970, Side 8
8
VISIR . Þriðjudagur 29. september 1970.
VISIR
Otgefan 1) Reykjaprent bt.
Framkvæmdastjóri: Sveinn R EyjöUsson
Ritstjöri • Jónas Kristjánsson
Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson
Ritstjóraarfulltrúi: Valdimar H. Jóhannesson
Auglýsingar: Bröttugötu 3b Simar 15610 11660
Afgreiösla- Bröttugötu 3b Simi 11660
Ritstjóra: Laugavegi 178. Sim) 11660 <5 tínur)
Askriftargjald kr 165.00 á tnánuði Innanlands
t lausasölu kr. 10.00 eintakið
Prentsmiðla Vlsis — Edda hí. _____
Þekking Jbýdd á íslenzku
Aðeins 200 þúsund manns tala íslenzku. Bókaútgáfu
á íslandi er því þröngur stakkur skorinn. Þótt íslend-
ingar kaupi og lesi fleiri bækur en aðrar þjóðir, verð-
ur seint hægt að snúa flestum merkisritum heims á
íslenzku. Til þess er markaður of þröngur.
Oft er harmað, hve lítið af merkustu skáldritum
heims hefur verið þýtt á íslenzku. Þýddar hafa verið
helztu bækur nokkurra höfunda, en tilviljunin virð-
ist hafa ráðið vali höfundanna og bóka þeirra. Það
fer eftir áhugamálum hinna fáu þýðenda, sem vinna
að þessu merka menningarstarfi.
Um hitt hefur minna verið rætt, hve lítið er gefið
út á íslenzku af merkustu bókum þekkingarleitar nú-
tímans. Er ástandið á því sviði langtum alvarlegra
en í fagurbókmenntunum. Nær engin hinna frægustu
rita veraldar á sviðum vísinda, heimspeki og stjórn-
mála hafa verið þýdd og gefin út á íslenzku.
Menn hafa að vísu aðgang að þessum ritum eins
og fagurbókmenntunum í ódýrum útgáfum á ensku
og öðrum málum. En kunnátta íslendinga í erlend-
um málum er því miður ekki meiri en svo, ao lítill
hluti þjóðarinnar getur fært sér möguleikann í nyt.
Þeir, sem ekki eru reiprennandi læsir á erlent mál,
fara því á mis við þau sjálfsögðu mannréttindi borg-
ara stórþjóðanna að geta, ef þeir vilja, fylgzt með
skrifum helztu merkisbera þekkingarleitarinnar.
Hið íslenzka bókmenntafélag hefur nú byrjað á
mjög athyglisverðri tilraun til að bæta úr þessu
ófremdarástandi með því að gefa út nýjan flokk Lær-
dómsrita bókmenntafélagsins. Eru fimm bækur þeg-
ar komnar út. Þær eru eftir Einstein, Freud, Galbraith,
John Stuart Mill og C. P. Snow, allt höfuðsnillinga,
hver á sínu sviði, einn í eðlisfræði, annan í sálarfræði,
þriðja í hagfræði, fjórða í heimspeki og fimmta í
stjórnmálum.
Á næsta ári eru væntanleg fleiri rit í þessum flokki,
eitt ui'ú mannfjölgun, annað um mengun og náttúru-
vernd og eitt eðn f- " -ini he.'uiGpeki. Vonandi heldur
flokkur þessi áfram af sama myndarskap og upphaf
hans gefur til kynna. Það fer að sjálfsögðu mest eftir
viðtökum lesenda, sem væntanlega verða góðar, ef
marka má kenningar um þrotlausan fróðleiksþorsta
íslendinga. Hafi Bókmenntafélagið þökk fyrir fram-
takið.
Hættulegt starf
[slendingar treysta meira en aðrar þjóðir á flugið,
bæði vegna ógreiðra samgangna innanlands og fjar-
lægðar landsins frá umheiminum. Við eigum því fjöl-
menna stétt flugáhafna, sem vinna þjóðþrifastarf,
sem er hættulegt lífi og limum, þótt tækni og öryggi
í flugi hafi fleygt fram. Á þessa staðreynd minnir okk-
ur hið hörmulega flugslys í Færeyjum, er einn kunn-
asti og gætnasti flugstjóri íslendinga lét lífið og aðr-
ir í flugáhöfn hlutu töluverð meiðsli.
\
\\
ii
Maður málamiðlunar-
innar fallinn
Nasser byrjaði feril sinn sem róttækur liðs-
foringi en gerðist hógværari er árin liðu
Með Nasser Egyptaforseta
er fallinn í valinn helzti tals-
maður jafnvægisins fyrir
botni Miðjarðarhafs. Hann
kom fyrst fram á sjðnarsvið-
ið sem rötækur byltingar-
sinni, en varð með árunum
I hópi hinna hógværari. Nass-
er stóð síðustu vikur mitt á
milli arabískra öfgamanna
annarsvegar og herskárra
fsraelsmanna hins vegar.
Hann samþykkti friðartillög-
ur Bandaríkjanna, þegar öfga
menn höfnuðu þeim og fsra-
elsmsnn gengu tregir til
leiks. Nasser bar síðustu
daga ævi sinnar sáttarorð
miili hinna stríðandi aðila í
borgarastyrjöldinni í Jórdan-
íu, svo að þeir slíðruðu sverð
sfn.
Nasser var bendlaður við
kommúnisma, þegar hann
þjóðnýtti Súezskurðinn, sem
Bretar höfðu átt að mtstu,
forðum daga. Hann þáði einn
ig lán frá Sovétrfkjunum til
að reisa Aswanstífluna. Hann
hefur ennfremur veitt Sovét-
mönnum aðstöðu í landi sínu.
Nasser var þó ætfð andstæð-
ingur kommúnista.
Hann reyndi á margan hátt
að stemma stigu við eflingu
kommúnisma i Arabaríkjunum.
Foringjar komúnista i Egypta-
landj sátu iengstum í fangelsum
Nassers. Hann sameinaði Sýr-
land Egyptalandi og stofnaði
Arabíska sambandslýðveldiö á
sínum tírna tii þess að hindra
valdatöku kommúnista í Sýr-
landi.
Bandaríkin drógu að sér
höndina
Skýringu er au’ðvelt aö finna
á þeim verkum Nassers, sem
vöktu grunsemdir á Vesturlönd
um um kommúnistiskar til-
hneigingar hans. Þjóðnýting
Súezskurðarins var til þess
gerð að hnekkja valdi erlendra
auðmanna yfir skurðinum, sem
Nasser taldi, að Egyptar ættu.
Hann þáði lán Sovétrikjanna til
að gera Aswanstífluna, af því
að Bandaríkjamenn drógu að
sér höndina á síðustu stundu.
Með þvi misstu Bandaríkin
spón úr aski sinum, sem þau
hafa síðan saknað. Nasser hef
ur fengið stuðning Rússa við
vamir Egyptalands, vegna þess
að hann taldi að stöðva yrði al-
gera yfirburði ísraelsmanna í
lofti yfir Egyptalandí, en ísra-
elsmenn höfðu áður getað
gert árásir að vild sinni hvar
sem var á egypzkt land.
Gamal Abdel Nasser hafði
lengur en nokkur annar Arabi
hgft ægivöld i Mið-Austurlönd-
um. Frá honum lágu þræðir til
annaira Arabarikja. Stuðnings-
menn hans náðu völdum með
byltingu f Súdan og Lfbíu sfð-
ustu tvö árin. Fjölmargir aðrir
Arabaleiðtogar sóttu „linu“
sfna til Nassers, og allir tóku
tillit til hans.
Boðaði „arabískan
sósíalisma“
Hann var einkennandi fyrir
hina nýju leiðtogagerð, sem
ruddi sér til rúms í vanþróuö-
um ríkjum á sjötta og sjöunda
tug aldarinnar, róttækur og
þjóðernissinnaður. Hann varð
fyrst heimskunnur, þegar Farúk
konungi var steypt úr stóli, og
ungir liðsforingjar tóku völdin
í Egyptalandi. Mohammed
Naguib hershöfðingi var hinn
obinberi foringi byltingar-
mantn. en fljótt sást, aö Nass-
er var hinn sterki. Naguib var
vikið til hliðar árið 1954. Nass-
er lét tveimur árum siöar
breyta stjórnarskránni, og fékk
forseti landsins mjög aukin
völd. Nasser var síðan kosinn
forseti og var það síðan.
^’-nser boðaði „arabískan
sósialisma". f Egyptalandi var
aðeins einn stjömmálaflokkur
leyfður, og hemaðareinræði
Nasser forseti Egypta-
lands lézt í gærkvöldi af
hjartaslagi, 52 ára. Lát
hans var óvænt. Hann
andaðist kl. 15.15 í gær-
dag. Kenndi hann sér
meins í lok kveðjuhátíðar
eftir leiðtogafund Araba
og fór heim til sín kl.
12.15.
Fréttamenn í Kaíró
sögðu, að fólk hefði grátið
á götum úti í gærkvöldi.
ríkti. Flestir telja þó, aö Nass
er hafi jafnan notið trausts þjóð
ar sinnar og margir töldu hann
guðum líkan.
Hann gerðist fljótt einn helzti
leiðtogf hlutlausra ríkja Afríku
og Asíuþjóða.
Vildi sameina Araba
Jafnfram stefndi hann að því
að sameina alla Araba helzt í
eitt ríki, sem lyti forsjá hans.
Arabíska sambandslýðveldiö,
bandalag Egyptalands og Sýr-
lands, var stofnað 1958. Þaö
sprakk hins vegar þremur árum
síðar. Tilraunir Nassers til að
sameina Araba strönduðu viðar.
Flokkar Baathsósialista fengu
völd í írak og Sýrlandi. Jafn
framt sat hin hægfara stjóm
Husseins konungs áfram í Jórd-
aniu og „hefðbundin“ rifós-
stjóra í Saudi-Arabiu. Hinir
ýmsu leiðtogar Arabarikja tóku
hins vegar aö halda með sér
„toppfundi", sem frægir eru, en
l>eir hafi hsns vegar sýnt betur
ágrelning leiðtoganna en ein-
hug þeirra.
Bilið breikkaði einnig síðustu
árin milll Nassers og hinna rót
tækustu. Hann hafði áður ver
ið hetja þeirra en siðar tóku
þeir að gmna hann um græsku.
Mest var tign Nassers i Súez-
stríöinu 1956. Bretar og Frakk
ar gerðu ásamt Israelsmðnnum
árás á Egyptaland, en drógu
lið sitt til baka innan skamms,
einkum vegna tilmæla Banda
rikjanna. Aröbum þótti Nasser
hafa imnið mikinn sigur.
Umsjón: Haukur Helgason.
Hins vegar lækkaði sól Nass
ers mikið í júnistríönu 1967,
þegar Israelsmenn gereyddu
fiugher Egypta á augabragði og
tóku síöan mikil lönd af þeim
og fleiri Arabaríkjum. Nasser
vildi biöjast lausnar eftir ósig
urinn en hélt áfram embætti,
eftir aö borgarar höfðu hlaupið
um götur og kallað „Nasser,
Nasser“.
Þeir hinir sömu gráta nú fall
inn foringja. Óvíst er um fram
vindu mála að honum gengnum,
en varla m\in ástandið batna í
Mið-Austurlöndum við þennan
atburð.