Vísir - 14.12.1970, Blaðsíða 2

Vísir - 14.12.1970, Blaðsíða 2
VlSIR . Mánudagur 14. desember 1970. 18 Þreifað aftur um 60 ár »-> af 17. síöu. Neðanmálssögur og smáauglýsingar Meöal efnis blaösins þessi fyrstu ár voru neöanmálssögur, sem gerðust ákaflega vinsælar. Sú fyrsta var raunar ekki valin af verri endanum. Höfundurinn var enginn annar en Emil Zofa. Þessum sögum var tekiö fegins hendi, enda margar skemmti- legar og spennandi. Og stundum voru þær tvær í blaðinu. Þegar á ööru ári blaösins, 1911 taka að birtast smáhuglýsingar i blaðinu undir svipuðum titlum og enn eru 1 því: „Tapaö fund- ið“, „Húsnæði f boði“ og svo framvegis. Þessar auglýsingar hafa fylgt blaðinu síðan. Margar tílraunir h'afa veriö geröar til þess að keppa viö Vísi á þessu svdði, en þær hafa allar mis- tekizt. Ritstjórnargreinar birt- ust hins vegar ekki i tíð Einars Gunnarssonar. Einar fitjaði upp á ýmsum nýjungum. Og þær heppnuðust ekki alfar sem vonlegt var. Hann stofnaði og gaf út „Unga ísland“. Hann lét sér jafnan anat um drengina, sem báru út komið Visi vel af stað. Tiltækið hafði heppnazt. Þegar svo var komið seldi hann blaðið. Full- vfst má telja að þar hafi ekki verið fjárhagserfiðleikum um að kenna. Kaupandinn var Gunn ar Sigurðsson frá Selalæk, þá ungur lögfræðistúdent. Hann átti Vísi frá 1. september 1914 til 1. júK 1915. Hann var kapp- samur maöur og stóð um hann talsverður styrr meðan hann ritstýrði blaðinu. Hann lenti i allhörðum ritdeilum, en það hafði ekki hent fyrirrennara hans. — 1 ritstjórnartíð Gunn- ars var mikil áherzla lögð á þjóðlegan fróðleik, enda var hon um lagið 'að segja vel og kími- lega frá, eins og síðar kom bet- ur í Ijós með útgáfu hans á íslenzkri fyndni. Hannes Haf- stein leyfði honum birtingu á mörgum sinna kunnustu ljóða, aö vísu ekki undir nafni — en það varð fljótt alkunnugt, hver höfundurinn vlar. Þar birtust bæði þýdd kvæði og frumsamin. Það er hlutafélag, sem kaupir Vísi af Gunnari Sigurðssyni frá Setelæk. Það réði Hjört Hjartar, lögfræöing, dugnaðar og efnis- nfann, sem ritstjóra og fram- Hann „tók stökkið“ — Stofnandi og fyrsti rit- stjóri Vísis, Einar Gunn- arsson. blaðið. Eitt af tiltækjum hans var að gefa út bfað fyrir þá, sem hann kallaði „Vísisdreng- inn“ — með efni fyrir böm, mikið af myndum og þvllfku. Þetta sérstæða blað átti aö koma út einu sinni i mánuði. Af því komu aldrei nema fjögur eintök. Vegna shmgönguerfiðleika var dreifing Vísis aö mestu bundinn viö Reykjavfk, I mesta lagi að hún næöi til Hafnar- fjarðar, þangaö sem strákar voru sendir einu sinni I viku meö blaðið. Einar stofnaöi hins vegar vikublað, sem átti aö verða fréttablað fyrir landsbyggðina. Þar áttu aö birtast allar fréttir Vísis. Þetta blaö nefndist Vik- an — vikuútgáfa af dagblaðinu Vísi og kom fyrst út á sumar- daginn fyrsta 1912. Sjálfsagt hefur þaö verið mikil tilbreyting fyrir fólk frá pólitísku stagli landsmálablaðanna að fá þama blað sneisafullt af fréttum. Það kom út í tvo ársfjórðunga. Þeir sem fengu blaðið tóku við þvl, en borguðu þaö ekki. Enda var það svo að landsmálablöðin borguðust dræmt og um það var ekki fergizt. Körlunum var sent þetta ókeypis, ef svo bar undir. Kappsemi og deilur Einar mun hafa talið sig hafa kvæmdastjóra. Hann sá aðeins um eitt tölublaö, því hann veikt ist skyndilega og andaöist 15. apríl. Andrés Björnsson, eldri, var þá starfsmaður við blaðið og sá hann um útgáfuna til 1. júlí þetta ár — Í915. Hann hafði unniö við Vísi um skeið og var kunnur af vandvirkni og þekkingu á íslenzku máli. Síðan tekur Jakob Möller viö blaðinu. Baráttumaður Meö komu Jakobs verða ýms- ar breytingar á blaðinu. Þá em teknar upp ritstjórnargreinar og blaðið hefur meiri afskipti af stjórnmálum. Það fær yfir sig meiri svip landsmálablaðs en áður. Jakob keypti síðan blað- ið. Hann birti fljótlega ritstjórn- argrein, þar sem hann lætur í ljós skoðanir sínar á fandsmál- um. Jafnframt tekur hann fram að blaðið verði eftir sem áður blutlaust að því er snertir skoð- anaskipti flokkanna í landinu. Sagh blaösins á næstu árum veröur jafnframt baráttusaga Jakobs Möller, en hann fer brátt að hasla sér völl á vett- vangi landsmála og bæjarmála. Hann er kosinn á þing 1919 og áriö 1924 var hann skipaöur eftirlitsmaöur banka og spari- sjóða. Vegna ferðalaga I sam- tfandi við þetta starf, gat hann ekki haft á hendi ritstjórn Vís- is lengur, ef vel átti að vera. Nýr ritstjóri var ráðinn að blaö-1 inu. Það var Páll Steingrímsson. Hann hafði verið starfsmaöur á Pósthúsinu, áhugamaður um leikhús og bókmenntir. Hann stjórnaöi bfaðinu allt fram til 1938. Um leið og Jakob Möller lét af ritstjórninni varð Vísir sam- eign hans, Páls og Jóns Sigur- pálssonar, afgreiöslumanns þess, síöar eða 1932 sameign þeirifa tveggja, Jakobs og Páls, en 1936 var stofnuð blaðaútgáfan Vísir hf. Fengu þeir félagar, Jakob og Páli, Bjöm Ólafsson, stórkaup- mann, síðfar ráðherra, I liö meö sér (sbr. yfirlitsgrein Hersteins Pálssonar, ritstjóra, I afmælis- blaðinu 1960), og gegndi Björn stjórnarformennsku allt til 1959, er hann lét af starfi að eigin ósk. Björn Ólafsson hafði skrif- að mikið I blaðið löngu áður en þettfa gerðist um verzlunarmál, ferðamál og önnur áhugamál, og síðar stjórnmál. Ekki er úr vegi, aö geta þess, þar sem mikiö útvarpsafmæli er fram- undan í mánuðinum, að áhuga- menn um útvarp hér f bæ stofn uðu til félagsskapfar til reksturs útvarps nokkrum árum áöur en Ríkisútvarpið kom til sögunnar, og var — einkum framan af kallað viðvarp. Birti Vísir út- varpserindi eftir Björn frá þess- um tíma, og er það trúle^a fyrsta útvarpserindi, sem flutt var hér á landi. Geta má þess til gamans og fróðleiks, að er einn helzti hvatamaður aö út- varpi, Otto B. Arnfar, gerði fyrstu tilraun sína með útvarp, voru skemmtikraftarnir Ámi i Múla og Símon frá Hól og Emil Thoroddsen. Þeir félagar sungu Glúntasöngva og Emil lék undir. 'K’g kom að blaöinu fyrst sem íhlaupamaður 1924, segir Axel. Aðalmaðurinn þar þá, var Baldur Sveinsson. Hann var bú- inn að vera aðstoöfarmaður Ja- kobs frá því hann kom heim frá Vesturheimi. Hann fór að kveöja mig til aðstoðar við sig dag og dag. Baldur átti mikinn þátt i að afla blaðinu vinsældfa. Hann hafði mikla reynslu sem blaðamaður, var lengi aðstoðar- ritstjóri Lögbergs vestra og haföi haldgóðfa þekkingu á ensku. PrentviIIa stórsynd Blaðið hafði flutzt í Félags- prentsmiðjuna, þegar ég kom þar til starfa. Einar haföi unnið mest heima og eins þeir sem störfuðu viö blaöiö eftir þaö. Þetta gerðum við mikið líka. Ritstjórnarskrifstofa var eigin- lega engin, utan skonsa inn af prentsmiðjunni, sem þá var beint á móti Gamla bíói. Þang- að komum við klukkan eitthvaö átta á morgnfana og þá venju- lega með eitthvert efni undir handarkrikanum. Síðan vorum viö þama til klukkan tvö eða lengur, eða þangað til allt var farið að „rúlla". Prentunin tók öllu lengri tíma en nú gerist. Þetta þrjá og fjóra tima. Það var gífurlega mikið lagt upp úr prófarkalestri á þessum ár.r um. Þær voru vandlega lesnar og bornar sarrfan. Það var mikil vinna. En prentvilla þótti stór- synd í þá daga og Páll lagði á þetta mikla áherzlu. Eins var nostrað mikið við myndaklisj- urnar. Þetta var á tréklossum og þurfti að límfa undir þetta til að fá það rétt. Við þetta var nostrað þangaö til gott þótti, enda komu myndir nokk- uð vel út í blaðinu miðaö við þá tækni, sem notuð var. Fréttaöflunin breyttist m>kið á þessum tíma með tilkomu frétta & t* ** t tOA.. . í-»o.'x****** «■ ?.¥■. : i *.<■ ■ *■’ X í- w *í ->w- '■• " »■<, ' ■?>%«.• ■<: i < >.'?« -■' ■ ’ ' • > > •■ ' ' 'A. &<?«■ > >••• \« *■■•?• -X tó *<■:'■ <■:■'<<■ <. -. Vfí. _ :■*■■■■ i <"'<.<< % . :-••:,• . :•>..'- •>. %>, • . *****> ■ ••••:, I *-•'-' '•..... < ■ ■ •• • •••• :•• :<■■■■■■■ &<■**« •M'.'Vr V. í > \ ’ ■•:•• <: * <t<-V. ¥ ' V ÍX V, 4 %'«■«.< -,-■■■>■ % > V>ÍV5, . ■■«•>•-. ■•».? í f. y, i -•’ » 7 ** ' ■■>■■ '«■ %•<*{<•- Á » '■'><■ ■',:*<■', i ' ■ k?#. wr*,),',, \ ; ^yfrXf < =■« <■>-»<* '■; ’ • ' *''•■<’$'> V ,> , jXs&fto > < ' '<■■>.. í ' /• >VÍ v •#<¥ '<• | • •■■•:•• ■ ■ ••:■:■:■• :••-.■•. ' > •„-• - .. <: .. *•'••••■ ■• • 'v • •--:■ A HU'rgUH; 11 VÍSIK | '' M lu-to -tfX-í Uxuntœ- ? V* v<-< **£&$*$■ \ <<•> í x *■» W&A. '><& x '* t* <.x i f'X'Mtotáxvs. n<4>u * ■« •'-Wmír<í-¥< í'-aA V •'• <c«•»** vtttkíMW. 50 áru ahnarH, í : Ctlwdar irjcuir. .; , , :,' ■ : tUoofcuw* «*» ktoktp. \ ■ i,! : i' *'»*-«’* .............*.... «U''U,>-<U<.-’A4S' ■''<->*>•,* ■ \ ***»'■ *»>»«*»« : i,*,. ú %• ,j - ,, ..... , ,1.4*1 Fyrsta forsíða Vísis — 14. desember 1910. stofu Blaðamfannafélags íslands. Það komst meira form á frétta- öflunina. — Við notuðum sím- ann mikið 1 þá daga ekki síður en blaðamenn I dag. Hringdum daglega í lögreglu, slökkvilið og á hafnarskrifstofur. Á þessum árum vfar algengt að fara í við- töl við fólk, sem kom erlendis frá, ekki sízt listamenn, ís- lenzka og erlenda. Þannig var til dæmis talsvert haft við, þeg- ar Anna Borg og Poul Reumert komu tii landsins. Bókmenntaskrif og harðnandi fréttamennska Það einkenndi blaðastarfsem- ina frá upphfafi, að margir vildu nota þau til þess að vekja á sér eða sfnu athygli og margir þurftu auðvitað á blööunum að halda. Blaðið lét talsvert til sín takfa á sviði bókmennta og lista og hændust margir að þvf þess vegna. Snemma var byrjað að skrifa gagnrýni um bækur og annað. Jfakob Jóhann Smári var til dæmis lengi bókagagnrýn- andi blaðsins. — Ýmsir mætir menn skrifuðu Ifka f blaðið að staðaldri á þessum árum, svo sem Helgi Péturs, Gunnlaugur Claejssen, Snæbjörn Jónsson, dr. Richard Beck, Helgi Vfaltýs- son, sem var einn þeirra manna, sem lagði blaðinu til efni að staðaldri, einnig Guðbrandur Jónsson og Skúli Skúlason, sem var svona nokkurs konar auka- blaðamaður á tímabili, sömuleiö is Lárus Sigurbjörnsson, rit- höfundur. Það var auðvitað reynt að gera stórviðburðum eins góð skil og unnt var við þau skil- yrði sem um víar að ræða, en jafnnframt var sami sperring- urinn við að koma blaðinu út á skikkanlegum tfma. Ég minn- ist þess sérstaklega, þegar tai- sambandið v"ð útiönd var opn- aö. Þá var beðið með blaðið. Það var opnað um hádegið og Vísir var kominn með frásögnina f eftirmiðdaginn. — Meðan hnatt- flug ítala vfar hérna var maður svefnlaus í marga daga. — Nú þaö var líka reynt aö sinna nýjungum f atvinnulífinu og þvf um líku. — Og auðvitað byrj- faði strax samkeppnin milli blaö- anna um að vera fyrstir með fréttirnar. Vísir var alltaf frjálsari frá flokkspólitfkinni en hin blöðin. Jakob hélt að vísu áfram að setja svip á blaöið með sinni tíaráttu. Páll var ötull liðsmað- ur ,hans. Fyrst f staö í ritstjóm- artíö Páls var veriö að reyna að halda lífinu í frjálslyndum flokki, broti af gamla Sjálfstæð- isflokknum og Jakob var aðfal- forvígismaður hans og í and- stöðu við íhaldsflokkinn. Svo kemur að því að deilur falla nið- ur milli þessara flokka og þeir sameinfast. Jakob gerði grein fyrir sameiningunni í grein, sem hann birti í júní 1929. Upp frá þyí tengdist Vísir Sjálfstæðis- flokknum. En það hefur alla tíð verið laustengdara honum en önnur stuðningsblöð hans. Stór skref Eftir þriggja missera ritstjóm stækkaði Páll blaöið um þriðj- ung í broti og f ársbyrjun 1929 er Vísir stækkaður því sem nfam 2 dálkum. Þetta sýnir að Páll hafði ekki svo lítinn metn- að í útgáfunni. Hann efldi blað ið Iíka til menningarlegra á- hrifa og lagöi áherzlu á að þaö væri vandað að efni og mál- ffari. 1. desember 1934 er svo enn ráðizt í stóra stækkun á blað- inu og var það þá 54x39 cm í broti. Hersteinn Pálsson. sem síðar varð ritstjóri, varð blaða- maður hjá okkur áður en rit- stióm3rtíma Páls lauk. Síðan tók Kristján Guðlaugsson við ritstjórninni af Páli. Hann var þá ungur lögfræðingur og stóð framarlega í röðum ungra Sjálf- stæðismanna. Jafnframt fjölgaði starfsmönnum við blaðið. Efnið var fjölbreyttara og blaðið efld- ist jafnt og þétt úr því. — En þá er tekið fað hilla undir okkar tíma og saga blaðsins upp frá þvf mun betur kunn. — JH

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.