Vísir - 14.12.1970, Blaðsíða 4

Vísir - 14.12.1970, Blaðsíða 4
■I 20 ® Sporðdrekabréfin St'apafell gefur út sakamála- sögu eftir Victor Canning, Sporödrekabréfin, en áður hefur forlagið gefið út söguna Römm eru reiðitár eftir sama höfund. Þetta er saga um dularfullt dauðsfall í London og lausn gát- unnar, en höfundur hefur sam- ið margfar framhaldssögur fyrir blöð og tímarit í Bretlandi og Bandaríkjunum og kvikmynda- handrit handa Hoilywood. Árni Þór Eymundsson þýðir bókina sem er 216 bls. að stærð, hún kostar kr. 388.50. er ástar- og sakamálasaga sem Stapafell gefur út. Höfundur nefnist Mignon G. Eberhart, en þýðanda bókarinnar er ekki get- ið. Áður hafa komið út tvær sögur eftir sama höfund hjá forlaginu. Seinni kona læknis- ins og Leyndarmál sjúkrhhúss- ins. Eins og vænta má gerist einnig þessi saga á sjúkrahúsi. Bókin er 237 bls. að stærð og kostar kr. 388.50. @ Andersen- f jölskyidan Þessi bók, sem Víkurútgáfan sendir á markaðinn er eftir norska rithöfundinn Sigbjöm Hölmebakk. Þetta er gaman- saga, en eins og öllu góðu gamni fylgir einnig nokkur alvara und ir niðri. Lffsþægindakapphlaup ið er vist nokkuð lfkt, hvort heldur er á íslawii eða í Noregi. og það kemur upp hálfgert „kalt stríð“ miili hins dagfarsprúða Andersens og nábúanna i nýja raðhúsabverfinu, þar sem lítil hæna getur komiö skipulaginu úr skorðum. Sagan hefur verið kvikmynduð í Noregi. Bókin er 145 bls. að stærð og kostar kr. 427.50 Vinnan göfgar manninn Sögusaifn heimilanna gefur þessa bók út. Á kápu bókarinn ar segir að þetta sé „heillandi skáldsaga með sömu aðalpersón um og Ástin sigrar". Höfundur bó'karinnar er Marie Sophie Schwartz og hafa sögur hennar notið mikilla vinsæilda hér á landi. Þetta er saga um ást og örlög meö spennandi ívafi. — Bókin er 304 bls. aö stærð og kostar kr. 425.50. ® London svarar ekki Þessa bók gefur Grágás út. Bókin fjallar um stríðsárin í Nor egi. Sverre Midtskau heitir höf undurinn, en hann var fyrsti starfsmaöur upplýsingaþjónust- unnar norsku í Lundúnum. Eftir að norska rfkisstjórnin hafði flú ið til Englands ' júnl 1940 rofn aði sambandið við Noreg. Midt- skau fór til Noregs f september það ár og tók iand við ströndina í Florö. . I febrúar árið eftir stökk hann niður í fallblíf yfir Þelamörk til að undirbúa upp- lýsingaþjónustuna í Noregi. — Það drffur margt á daga Midt- skau og félaga hans i þessari bók, Spennandi lesning um efni sem margir íslendingar bekkja. Verð bókarinnar er kr. 475. læknanna Frank G. Slaugther er orðinn kunnur rithöfundur á íslandi. Það er Ifkt með honum og Sir Arthur Conan Doyele, að hann lagði frá sér skurðhnífinn, en tók þess í stað pennann og gerð ist rithöfundur. Hins vegar hef ur Slaugther einkum skrifað rómana um lækna og læknalíf við miklar vinsældir bæði hér heima og erlendis. Þaö er Bóka forlag Odds Björnssonar, sem gefur þessa bók út. Fjallar bók in um sálarlíf eiginkvenna hinna hartkeyröu lækna, sem farnir eru að vanrækja heimili sín vegná anna Þær eru einmana, vonsviknar og leiðar á lífinu þrátt fyrir góð efni. Morðmál kemur upp í bæjarfélaginu og setur al'lt á annan endann — og gerir flókinn hjartauppskurð og hættulégan enn fiókngfi.’ Bókin er 304 bls og kostar f bókabúð um kr. 594. V í SIR . Mánudagur 14. desember 1970. eigendur Vegna samsteypu American Motors Corpor- ation og Kaiser-Willys (Jeep) og þar sem samsteypan hefur fyrirvaralaust og að okkur forspurðum, veitt Agli Vilhjálmssyni h.f. um- boð til ao selja bílalínu þeirra, ásamt okkur, hérlendis höfum við ákveðið að hætta sölu fyrir American Motors Corporation. Varahlutalager Vökuls h.f. í Rambler bíla hef- ur verið seldur Agli Vilhjálmssyni h.f. Hinum mörgu Rambler-eigendum, sem þess hafa óskað, bjóðum við áfram viðgerðaþjón- ustu á verkstæði Vökuls h.f. Þeim Rambler-eigendum, sem ekki hafa þeg- ar skipt upp í CHRYSLER byggðan bíi, bjóð- um við þau sérstöku kjör að fá hagstæð lán, eftir samkomulagi, á stórum hluta af um- samdri milligreiðslu. ---------- I , Fetið í fótspor þeirra tuga Rambler-eigenda, sem skipt hafa nýlega Ramblemum upp í Chrysler byggðan Dodge Dart, Dart GTS, Plymouth Valiant, Simca svo að nefndar séu aðeins fáar tegundir af tugum Chrysler bíla fáanlegum. JÓN LOFTSSON Hringbraut 121 Sími 10600 BÓKAÚTGÁFAN ÖRN OG ÖRLYGUR HF REYNIMEL 60, SÍMI 18660. HEITU SUMRI Halldór Sigurðsson Á HEITU SUMRI Æsispennandi bók um ÆSKU í UPPREISN KONUNA OG KYNSPRENGINGUNA ÆSKU í ÁSTUM BILIÐ MILLI KYNSLÓÐANNA Samtíðarsaga, sem gerist í Reykjavík, en á sér í rauninni alla veröldina að vettvangi. OKKAR BÆKUR ERU YKKAR BÆKUR. I { Vörumóttcaka ! til Sauðárkróks og Skagafjarö ar er hjá Landflutnmgum hf. Héöinsgötu við Kleppsveg. Bj’arni Haraldsson NOTAOIR BÍLAR Ford Cortina I 1600 S I árg. 1968 | Skoda 1000 MB árg. 1967 1 | Skoda 1202 árg. 1967 Skodla 1202 árg. 1966 1 Skoda 1202 árg. 1965 | Skoda 1000 MB árg. 1965 P Skoda Combi árg. 1965 | l Skoda Octavia árg. 1965 Simca Ariane árg. 1963 ■J SKODA Auðbrekku 44- -46, Kópavogi,. Simi 42600

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.