Vísir - 14.12.1970, Síða 5
(
21.
Jarðarför á hyerjum degi
Séra Johan Nielsen: „Næstum daglega horfist ég í augu
við fólk, sem sorgin hefur sótt heim, þetta er of mikið
fyrir einn prest — ég slít mér ekki út fyrir aldur fram.
SÍÐAN
— og sóknarpresturinn gafst upp á erfiðinu
Sanders kvænist
Gafaor aftur
Leikarinn George Sanders, virð
ist ekki geta fengið nóg af Gabor-
systrunum. Um daginn kvæntist
hann aimarri af 'þessum ungversk
fæddu systrum, og i þetta skiptiö
var það hin fimmtugh Mada Gab-
or. Magda er fjórða eiginkona
Sanders, sem orðinn er 64 ára.
Er harrn rússnesk-enskur sjálfur
og var m. a. áður kvæntur þeirri
frægu Zsa Zsa Gabor, en hún
hélt því fram, er hún giftist Sand
„Ég er oröinn þreyttur á að
jarða 300. manns á hverju ári...
... það þolir það enginn prestur,
það leggst svo á sál manns
— og þetta er aðalorsök þess aö
ég segi nú upp og vil taka 'aö mér
annað embætti".
52 ára sóknarprestur við Filip-
usarkirkjuna á Amager við Kaup-
mannahöfn og þingfulltrúi sósíal-
demókrata í Færeyjum á Þjóð-
þinginu dansk'a, Johan Nielsen
hefur nú sagt upþ brauði sínu og
flytur í nýtt brauð, suður fyrir
Hróarskeldu.
Umferðarguðinn frekur
á mannslíf
„Ég flyt vegna þess, að ég er
hræddur viö að þræla mér út
fyrir aldur fram“, segir hann,
„ivona erfiðu verkefni ætti að
skipfa á menn, og nú hef ég verið
hér í.6 ár.
Að standa daglega frammi fyrir
fólki, þrúguðu af sorg — að
verða 'að lifa þetta upp aftur og
aftur, er of erfitt. Ef ég gæti nú
gefið þessu fólki eitthvað til hugg
unar — en það getur jú enginn.
Enginn gæti heldur hugghð mig.
ef ég missti nákominn vin eða
ættingja. Daglega eða svo gott
sem, stend ég frammi fyrir hinum
sorgbitnu. Hugsið ykkur allt þetta
fólk sem ég jarða — hugsið ykk-
ur, að flest af því, hefur látið
lífið f umferðarslysi. Umferðar-
guðinum er sennilega fórnað fleiri
mannslífum en forfeóur okkar
hafa nokkru sinni fómað sínum
guðum. /
f
Góö kirkjusókn
Ég hætti hér ekki, eins og svo
margir prestar annars staðar i
þessu landi, vegna þess að dag-
lega þurfi ég aö messa yfir tómri
kirkju. Það þarf ég þvert á móti
ekki að gera, ég þarf ekki að
kvarta undan lélegri kirkjusókn. .
Það er alltaf fullt hjá mér, enda
held ég að þvf fari fjarri að Dan-
ir séu hfkristnaðir orðnir. Kristin-
dómurinn á rfk ítök í Dönum —
hér Iáta næstum því allir skíra
börn sín og ferma“.
Og Johan Nielsen flytur nú í
þægilegri sókn. Kannski koma
þar færri til kirkju, það er ekki
gott að segja, segir hann, en sú
sókn er afskekktari — og þar er
ekki eins mikii umferð, og um-
ferðarslys fátíðhri.
Hver er rétfa setningin?
Magda og George.
ers árið 1949, bö hann væri eini
maðurinn sem hún hefði gifzt
vegna ástar — hún kvartaði iíka
þá hástöfum yfir að giftingin
kostaði hana $25000 á ári, þ. e.
h'feyrinn frá fyrri manni sínum
Conrad Hilton. Þetta fyrsta
Sanders-Gabor hjónhband fór út
um þúfur 1954 og kvartaði Zsa
Zsa þá yfir að Sanders væri
„fæddur piparsveinn". Næst
t kvæntist Sanders brezku leik-
konunni Benita Hume Colman,
, ekkju leikarans Ronald Colman.
Vbr það árið 1959. Það hjónaband
hélt vel, eða allt til 1967, er
Benita dó.
Magda Gabor var áður gift
pólskum flugmanni hjá RAF,
brezka flughernum, tveimur New
York lögfræðingum og ungversk-
um greifa. Margir urðu hissa, er
fréttist um giftingu þeirra Sand-
, ers og Mögdu Gabor, og vítnuðu
; vinir hans um áð hann hefði að-
-eins fáum vikum fyrir giftinguna
. sagt: „Við Magda erum bara
; gamlir og góðir vinir. Ég ér orð-
irm of gamall fyrir að þekkja
; konur öðrovisi".
Meðfylgjandi mynd er af hinum glæsilegu verðlaunum I JÓLA-
GETRAUN VÍSIS.
KUBA Carmen NN radiófónn.
HiFi-Stereo radíófónn. 8 transistorar, 11 díóður og 4 lampar.
Viðtæki með LB, MB, SB og FM. Mögnun 6 W. Tveir hátóns-
og tveir djúptóns hátalarar. Innbyggður sjálfvirkur „Stereo-
Decoder“. Sjálfvirkur plötuspilari fyrir 10 plötur. Utanmál B 100
x H 75 x D 35 sm. Kassi úr valhnotu.
VERÐ KR. 26.920.—
NESCO h.f., Laugavegi 10 selur þetta tæki, sem er með 3ja ára
ábyrgö eins og aörar framleiðsluvörur KUBA — IMPERIAL.
JÓLAGETRAUN VÍSIS hefst i
blaðinu í dag. Titill hennar er:
Hver er rétta setningin? Lesend-
um gefst kostur á að reyna sig í
hlutverki textahöfundar. Skop-
teiknarinn sýnir jólaundirbúning
fjö'iskyldunnar í nokkrum gaman-
sömum teikingum og nú er um
að gera aö finna setninguna, sem
við á. — Teikningarnar munu
birtast 1 næstu fimm blöðum.
Hverri teikningu fylgja fjórar
mismunandi setningar. Aðeins ein
þeirra passar við teikninguna. —
Nauðsynlegt er að vera meö frá
byrjun. — Krossa skal við réttu
setninguna og senda al'lar fimm
afklippumar til VISIS, Laugavegi
178 eða Bröttugötu 3B fyrir kl.
18 þriðjudaginn 22. desember. —
Verðlaunin eru glæsilegt hljóm-
tæki frá KUBA.
A) Ævinlega rekur eitthvað á fjörur okkar, þegar við heim-
□ sækjum hana Júllu ömmusystur þína í Grindavík, elskan.
B) Bensín 200 kall, matur í Skíðaskálanum 750 kall. eyöilegg-
ing á bílnum, ein afturrúða og tvær fjaðrir, samtals 5000
kall. — Hver var svo að segja að það borgaði sig að sækja
□ jólatréð sitt austur í Haukadal?
C) Viltu svo kannski gróðursetja hérna í garðinum öll þessi
gervijólatré, sem fylla háaloftið, fyrst jólasveinninn Var svo
□ elskulcgur að setja þetta nýja i skóinn hjá pabba?
D) Stattu ekki þarna eins og jólatré, góða mín, reyndu heldur
□ að hjálpa mér við að losa óhreinindin af bílnum.
)