Vísir - 30.01.1971, Side 2

Vísir - 30.01.1971, Side 2
Eru prinsar dónalegir? Edinborganhertogi, Filippus drottningarmaður af Englandi, er þekktur nokkuö fyrjr að komast skemmtilegt að orði — og stund- um jafnvel hneykslanlega. Um daginn sagöi hann opin- berlega, að góðir brandarar væru hreinasta fyrirtak, einkanlega, ef þeir væru notaðir líknarmálum til framdráttar... hvaö maðurinn hefur meint meö því, er ekki gott að segja, en formáli sá er hann ritaði að tímaritinu „Rag Week“, tímariti verkfræðingaskólans í Piymouth samanstóö að veruíegu leyti af „dónalegum orðatiltækj- um“. Skrifaði Filippus, að ,„,The Rag“ virtist faara’eftir boðoröinu: Tilgangurinn hélgar meðalið, og hvers vegna þá ekki að brúka soldinn dónaskap ti'l að selja blaðiö? Ef þér finnst að sögurnar séu fyndnar, hefðirðu fengið nokkuð fyrir peningana þína. Ef ekki, þá hefur málstaðurinn feng- ið ejtthvað." Filippus prins telst vera i stjóm verkfræðiskólans í Plymouth, og á hverju ári er einni viku varið til að safna í sjóð handa fátæk- um. Reyna þá aliir að leggja eitt- hvað af mörkum. I fyrra neitaði stjómandi verkfræðiskólans, Eric Bailey, að skrifa formála i ritið, vegna þeirrar hefðar að skreyta textann meö dónalegum skrítlum, en Filippus leit hins vegar þannig á málið; „Flest fólk gefur eitt- hvað til góðgerða með góðri sam- vizku. Fáið yður eintak af tíma- ritinu og þá munuð þér hjóta þess að gefa í góðgerðarskyni með vondri samvizku!" Hún laðar að sér banka ræningjana Hanna Knudsen, tvitugur bankagjaldkeri, hefur tvisvar á skömmum tíma horft framan í fésið á bankaræningja, og orðið að láta undan hótunum beggja og leyfa þeim að láta greipar sópa um pen- ingakassann hjá sér. — Bankarán eru að verða nokkuð algeng á Norður- löndum, einkum í Sví- þjóð, en Danir lafa samt sæmilega vel í þeim. — Sagði Politiken um dag- inn, að janúar væri mesti „glæpamánuður“ ársins. Aldursforseti bankaræningja Seinni ræninginn, sem Hanna Knudsén lenti í klónum á, er að sögn lögreglunnar næsta óVenju- legur miðað við aðra ræningja. Hann er 61 árs og hafði aildrei framið afforot, sem bragð er að Hanna vinnur í Verzlunarbank- anum í Kaupmannahöfn og þann 26. janúar var hún við peninga- kassann, eins og hún var vön. Rétt fyrir hádegið voru allir starfsmenn bankans farnir eitt- hvaö frá, nema hún og 18 ára samstarfsmaður hennar Leif Mad sen. Gekk þá skuggalegur maður, klæddur frakka og meö hatt onf augum, inn í bankann. Hann beindj byssu að Hönnu, en byssan var ekki sýnileg, þar eð hann hélt henni niðri í frakkavasanum. Skipaði hann henni að afhenda sér alia danska peninga, sem hún væri með og einnig , þýzk mörk. Hanna taföi ræningjann með því að þykjast ekki heyra hvað hann hefði sagt, og varð maðurinn að endurtaka fyrirskip- un sína. Leif Madsen var i fárra metra fjarlægð frá ræningjanum og heyrði hann greinilega það sem hann muldraöi við Hönnu. Hún rétti honum bunka af dönsk- um seðlum, og stakk ræninginn þeim á sig með hraði og skundaði síðan út fyrir. Leif Madsen veitti honum þá eftirför. Pylsumaðurinn hringdi á lögregluna „Ég hélt mig nú f hæfilegri ( fjarlægð ef ske kynni að hann< bæri kennsl á mig og færi aðj skjóta“, sagði Leif Madsen, „hann i gekk eftir Lyongötu og Winter-J berggötu og á leiðinni tókst mérj að setja pylsusala einn inn í málið < og hann hringdi í lögregluna“. J Lögreglan kom á homið á Frakklandsgötu og hankasveinn- inn gat strax sagt lögreglumönn- unum hver og hvar ræninginn væri. Leif Madsen, bankasveinninn 18 ára, og gjaldkerinn „vinsæli", Hanna Knudsen, sem nýlega upplifði sitt annað bankarán. Hún á „Danmerkurmet” í að vera viðstödd bankarán. // Mér er fylgt eftir 44 Hinn 61 árs gamli ræningi fékk ekki „nema“ liðlega 13.000 dansk ar krónur í hendurnar frá Hönnu Knudsen, en hinn ræninginn, sem neyddi hana til að afhenda sér ''!fé, var un.sf'kbna,'sÁril^riAf nana á Þorláksmessu 1969. Hún hafði á brott með sér 20.900. Var stúlk- an handtekin skömmu síðar .með al'la peningana á sér. Kona ein í borginni Rookwell, Iowa, ók í fjölskyldubílnum í verzlunarferð. Hún staðnæmdist utan við verzlun eina, fór þar inn, og svo aftur út í bílinn, þegar innkaupum var lokið. Er hún ók af staö frá gangstéttarbrúninni, varð henni, aldrei þessu vant, lit- ið í baksýnisspegil bflsins. Sá hún þá eitthvert torkennilegt ökutæki fylgja sér fast eftir. Hún herti ferðina og ók inn á þjóöveg út úr borginni. Hún leit aftur um öxl þegar umferð tók að þynnast og emr var' helvítis .bíllinn á eftir henni. Hún setti „allt f botn“ og ólsiBÍBiSiOg vitlawhværi eftir þjóð- veginum, geystist fram úr öllum bílum, beygöi út af þjóðveginum og ók í krókum eftir hliðargötum um stund. Síðan staðnæmdist hún og hugsaöi sér að kasta mæö- inni og jafna sig á taugum eftir aksturinn. Þá varð henni litið í bévítis spegilinn. Enn var bíllinn fyrir aftan hana! Þá hleypti hún í sig frekju og kjarki, hentist út úr bflnum og aftur fyrir hann til að skamma þennan ósvífna dóna sem dirföist að elta sig — gifta konuna og 4ra bama móður. Þar var þá ekkert annað að sjá en „sumarbústaö“ þeirra hjóna — hjólhýsið, sem maður hennar haföi tengt við stuðara bflsins í einhverju bríarfi, því hann bjóst við að þau skryppu út í sveit, þá sfðdegis. 67 KLUKKU- TÍMA LESNING Nýtt heimsmet var sett fyrir viku. 25 ungmenni unnu það af- rek að göslast á hundavaði gegn- um biblíuna á 67 klukkutímum. Fyrra gildandi met var 70,30 kíst. Það met var sett 1968 af nokkrum Bretum. Þannig var, aö hópur sænskra kirkjugesta af yngri kynslóðinni, var orðinn leiður á messunum og vildi sóknarprestur þeirra hressa soldið upp á kristnifræðiþekking- nrw «jir hugarfar fólksins. Hann stóð iþess vegna fyrir hóplestri á biblíunni frá byrjun til enda. Sagði presturinn blaðamönnum, að hann hafi orðið svo greinilega var við minnkandi áhuga á heil- agri ritningu, að hann ákvað að leiða hinar villuráfandi sálir ungl- inganna inn á helgramanna götur. Taldi hann ekkert ráð til betra en þrælast nógu lengi á bibliunni. En til þess að gæða lesninguna Iífi, minnti hann á gildandi heims- met, og hvatti ti'l að það yrði nú slegiö. Og það tókst en hvort menn eru trúaðri eft.ir — það fylg ir ekki sögunni. DOTTIR ORSON WELLES Á HESTBAKI Stúlka þessi, sem svo álút ríð- ur, er dóttir kvikmyndamanns- ins Orsons Welles, og segist hún vilja „stjórna“ soldið líka, eins og f.aðir hennar. Hún er heilluð gjörsamlega af hestamennsku, og þarna hleypir hún sínum 10 vetra gamla hesti „Brandy“ yfir hindr- un, en stúlkan, sem Beatrice heit ir, kemur oft fram á hestasýning- um með klárinn. Hún er dóttir Orsons (hann er nú 55 ára) og ’.onu hans, di Gidfalco, greifynju, sem er 41 árs. Sjálf er stúlkan ekki nema 15 ára. Hún þýr í London og æf- i>- hrossið í Surroy.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.