Vísir - 18.02.1971, Síða 1
■
Með 400 tonn af miðunum
61. árg. — Fimmtudagur 18. febrúar 1971. — 40. tbl.
Eldborg frá Hafnaifirði kom i-nn
til Eskifjarðar í morgun með um
400 tonn af loðnu og fékk skipið
þennan afla á tveimur sólarbring-
um. Loðnuveiðin gekk hins vegar
fremur dræmt í gaer.
Skipin héldu sig á sömu slóðum,
um 15 mílur S og SSV af Stokks-
nesi. — Enginn loðna virðist hafa
gengið vestur með suðurströndinni,
að sögn Hjálmars Vithjálmssonar
leiðangursstjóra á leitarskipinu
Áma Friðrikssyni, en skipið hefur
leitað vestan við veiðisvæðið síð-
asta sólarhringinn og ekkert fund-
ið. Tvö önnur skip voru á leið til
lands í morgun, en 15 skip eru
komin á miðin. — JH
íyfjaafgreiðslan í Stór■
holtí er bara smáhola"
— „aðeins afgreidd nokkur lyf t>aðan", segja
læknar, sem eru óánægðir með lyfjaafgreiðslu
i borginni að næturlagi — fá ekki nauðsynleg
lyf afgreidd
LÆKNAR eru óánægðir
með fyrirkomulag lyfja-
afgreiðslu að næturlagi
í Reykjavík. Hefur þeim
reyiizt erfitt að fá nauð-
synleg lyf afgreidd frá
næturvörzlu apóteka I
Stórholti. Læknafélag
Reykjavíkur hefur nú
tekið málið upp m. a.
við lyfjaskrámefnd.
„Við höfum staðið í þessu
stappi í nokkur ár, síðan þetta
fyrirkomulag með næturvörzlu í
Stórholti var tekið upp,“ sagði
Víkingur Arnórsson læknir, for-
maður Læknafélags Reykjavfk-
ur, f viðtali við Vísi ímorgun.
„Læknar, sem hafa verið á næt
ur- og kvöldvöktum, sérstaklega
þeir, sem hafa unnið á nætur-
vöktum, hafa kvartað undan því
að fá ekki nauðsynleg lyf.
Ástandið skánaði aðeins í árs-
byrjun 1970, þegar því var kom-
ið á, að tvö apótek voru látin
hafa opið til klukkan 11 að
kvöldi í staðinn fyrir til klukk-
an 9.
Læknafélagið hefur kvartað
undan þessari afgreiðslu og það
hefur verið krafa félagsins, að
það væri a. m. k. eitt ap>ótek op-
ið um nætur, en viö höfum ekki
fengið neinu áorkað.
í>að er mjög takmarkaður
fjöldl lyfja til í Stórholtsapó-
tekinu, samkvæmt þeim upplýs-
ingum, sem við höfum frá þeim
læknum, sem gegna vöktum.
Aðstaðan þama er alls ófull-
nægjandi. Þetta er bara smá-
hola, þaðan sem eru aðeins af-
greidd nokkur lyf. Með því eru
læknum settar skorður um að
vfsa á lyf. Að vísu eru til á-
kvæði um það, að læknar geti
fengið lyf annars staðar, en með
an verið er að ná f þau er lok-
að f Stórholtinu. Ég hef ekki
sjálfur verið á völktum undan-
farin ár, en ég hef talaö við
nokkra lækna og þeir láta iMa
af. Það er einnig ýmislegt ann-
að, sem fólk vanhagar um að
næturlagi eins og ýmis lausa-
sölulyf og hjúkrunargögn, sem
fólk hefur ekki getað fengið eft-
ir ákveðinn tíma. Þessa af-
greiðslu teljum við ekki forsvar-
anlega í svona stórum bæ. —
Kappsmál okkar er, að nætur-
vörzlunni verði aftur breytt i
það form, sem hún var f áður.
Áður fyrr skiptust apótekin á
að hafa opið á nóttunni."
Þá kom það fram, að læknar
hafa skrifað ýmsum aðflum svo
sem Apótekarafélaginu og ráðu-
neytum án árangurs. Nýlega
skrifuðu læknar einnig lyfja-
skrámefnd, sem tök vel f mál
þetta, taldi fyrirkomulagið mjög
svo aðfinnsluvert og að þessi
lyf jasala í Stórholtinu væri ekki
fulilnægjandi.
Vfsir hafði einnig samband
við Sverri Magnússon, formann
Apótekarafélags Reykjavíkirr,
sem sagði, að málið væri f at-
hugun og hefði verið í athugun
undanfarið. — SB
Rannsóknir á kvikasilfri
í fiski hér eftir mánuð
Von á tæki til rannsóknar frá Bandarikjunum
Læknar eru óánægðir með næt-
urvörzluna í Stórholti.
Rannsókn á kvikasitfursmagni f
fiskj hér við land, munu hefjast f
næsta mánuði á vegum Rannsökn-
Verkfail í 6 vikur
— sáttafundur ekki boðaður
Togaraverkfailið hefur nú stað-
ið í rúmar 6 vikur og virðist lít-
ið hafa miðað í samkomulags-
átt þennan tíma. Enginn sátta-
fundur er nú boðaður og því
hálf drungalegt yfir deilunni. —
llnnu spjöll
á skútaheimili
— siá bls. 10
Kvað segir stór-
blaðið New York
Times um okkur?
— siá bls. 2 i dag
Þetta er fyrsta verkfallið á tog-
araflotanum frá 1962, þegar und
irmenn fóru f verkfali, sem
stóð í hvorki meira né minna
en rúma fjóra mánuði.
Því sikal ekki spáð að verkfallið
núna muni jafnast á vió verkfall
ið 1962, enda var þá við erfiðari
vandamál að etja. Þá fél1 togara-
aflinn úr 227 þús. tonnum ’58 í 80
þús. tonn 1961. þrátt fyrir fjölgun
togaranna. Þessi mikli samdrátt-
ur kom iMa við sjómennina og út-
gerðarfélögin og verkfallið því
sem sagt óleysanlegt, þar sem
hvorugur hafði neitt aflögu trl að
slaka á.
Flestir undirmannanna á togara
flotanum munu nú vera afmunstr-
aðir. þ.e. þeir eru ekki lengur
skráðir á skipin og verður því ef-
lau'St nokknim erfið'eik"m háö að
manna togaranna aftur þegar verk-
fallið loks leysist. — VJ
'arstofnunar fiskiðnaðarins. Stofn-
unin hefur fest kaup á nýju tæki
vestanhafs, sem koma mun til
landsins innan mánaöar og er meö
þvf tiltölulega auðvelt að rannsaka
kvikasilfursmagn í fiski, en stofn-
unin hefur ekki haft hentuga að-
stöðu til slíkra rannsókna til þessa.
Tæki þetta mun hins vegar ekki
ákvarða aðra málma.
Að sögn Geirs Amesens, sem
annast mun þessa rannókn á veg-
um Rannóknarstofnunar fiskiðnað-
arins verður þetta fyrsta at'hugun-
in, sem gerð verður á málmum t
fiski hér, en áður hefur stofnun-
in rannsakað DDT magn f lifur
nokkurra nytjafiska hér við land og
reyndist magnið um 1,5 milligrömm
í kg., sem er að vísu mun minna
en mælzt hefur víða annars staðar,
svo sem í Eystrasaltj. Þar hefur
DDT-magn mælzt allt upp í 7
milligrömm í fiski og er það talið
hámarksmagn af þessu efni með
tilliti til neyzlu, enda mun nú vera
bannað að nýta lifur úr fiski úr
Eystrasalti.
Að sögn Þórðar Þorbjamarson-
ar yfirmanns Rannsóknarstofnunar
fiskiðnaðarins verður stefnt að því
að fá ennfremur til landsins tæki
til þess að mæla alla málma í fiski,
en það tæki er mjög dýrt. Kvika-
silfursmælitækið kostar hins vegar
ekki nema um 100 þús. kr. — JH
26.5 milljónir
í öryggistœki
Bandarísk stjórnvöld hafa nú á-
kveðið að verja 26,5 milljónum
króna í tækjaútbúnað á Keflavfk-
urflugvelii, að því er segir í frétta-
lilk ynn i ng u u ta n rík i srú ðu ney t is-
ins 1 morgun. — Þar er einmig
skýrt frá því, að hönnun á leng-
ingu þverbrautar á Keflavíkurflug-
velli ha.fi verið lokið í ágúst síðast
liðnum, en fé sé ekki til ráðstöfun-
ar til að ráðast i það verk. en inn
an skamms megi gera ráð fyrir frek
ari fréttum um það máiL — VJ
, Eiginkonur Hafnfirðinganna,
íþróttafréttamenn og sjón-
varpið, sem jafnvel er búið
að fá áhuga á handbolta.
Aðsóknin
sló öðl
met
— áhorfendur 1200
fleiri en gott bykir
3323 keyptu sig inn á 1.
deildar kappleik í handknatt-
leik, sem fram fór í Laugardals-
höllinni í gærkvöldi. Áttust þar
við liðin FH og Valur, og var
áhugj manna á þessum leik slí'k-
ur, að aðsóknin sló öll met, ef
miðað er við það sem venjuilega
gerist með leiki félagsliða á ís-
landi. „Þetta er svona ámóta
aðsókn og að landsleikjum,“
sagðj Höskuldur Goði Karlsson,
forstjóri Laugardalshallarinnar,
1 „og Iögreglan heldur að kring-
um 200 manns hafi orðið frá
, að hverfa."
Til viðbótar þessum 3323 sem
1 keyptu sig inn, er óhætt að
l reikna með aö upp undir 300
manns hafi verið boðsgestir,
þannig að mannfjöldinn hefur
farið vel yfir það mark sem á-
i ætlað er að komizt fyrir í höll-
inni, en það mun vera um 2500
1 manns, „ég býst við að það fari
1 sómasamlega um 2500 manns
héma,“ sagðf Höskuldur Goði,
þannig að sýnilegt er að eitt-
hvað hefur þrengt að sumum,
þegar áhorfendur eru orðnir
1200 fleirj en húsið með góðu
móti tekur. — GG
Sjá íþróttasíður bls. 4 og 5.