Vísir - 18.02.1971, Page 13
V t SIR . Fimmtudagur 18. febrúar 197L
13
„I hinu þráðlausa eld-
húsi hefur galdramað-
urinn enga eldavjel44
— sagt frá merkilegri uppfinningu islenzks
rafmagnsfræðings i Visi fyrir 60 árum —
fyrsta fréttin um örbylgjuofninn
Gómsætt í pottunum
Þeir hljóta að hafa eldað eitthvað gómsætt í þessu eldhúsi,
sem er nýtízkulegt og þráðlaust eflaust að hluta — en
kannski varla eins fullkomið og ætla mætti, ef litið er sextíu
ár aftur í tímann og hugsað til þess, að þá var þegar búið að
gera örbylgjuofn — þó frumstæður værl. ‘ '
Eldhúsið er dæmigert fyrir stórt eldhús matsölustaða og
stofnana okkar tíma. Þetta er ungverskt og það er Malev
flugfélagið ungverska, sem á viðskipti við það.
„Tjráðlaus eldhús er hún köll-
■^uð nýjasta uppfundning hins
hugvitssama landa vors C. H.
Thordarscmar í Chicago, en með
henni má sjóða mat með þráð-
lausum rafurmagnsstraumum.
Þessa uppfundning gerði hann
kunna nýlega á rafmagnssýn-
ingu þar í borginni og þótti hún
þegar hið mesta furðuverk“. —
Þannig hefst frétt í Vísi fyrir um
það bil sextíu árum, 26. febrúar
1911. Og um Ieið er þarna sagt
frá fyrsta örbylgjuofninum í
frétt hér. Á þessum 60 árum
sem liðin eru síðan þá, hefur
tæknin þróazt, en viðhorf al-
mennings til ýmissa tækninýi-
unga e.t.v. minna, því enn þann
dag í dag vita fæstir skil á hin
um ýmsu tækjum, sem viö höf
um nálægt ok'kur. Og við lítum
á örbylgjuofninn sem hinn
mesta undragrip. Þess vegna
þarf það ekki að hlægja okkur
þótt fólkið í Chicago hafi stað-
ið furðulostið fyrir framan
tækninýjung Thordarsonar og
haldið að um galdra væri að
ræða.
J fréttinni segir ennfremur eft
ir einu blaðanna í Chicago:
„Frá íslandi hefur komið Edi-
son sýningarinnar í persónu C.
H. Thordarsonar, og hefur hann
breytt hinu þráðlausa masi í
samfasta ræðu og til heillavæn
legra þarfa fyrir eldabuskuna.
í hinu þráölausa eldhúsi heifur
galdramaðurinn enga eldavjel
kol eða gas. Á marmarahellu
eða pappírsblað setur hann
þessi undramaður aluminium-
plötu. Á hana hellir hann svo
innihaldinu úr hænueggi og með
an þú stendur undrandi yfir,
hver þremillinn úr þessu ætlar
að verða steikist eggið, sem á
sjóðandi pönnu.
Hjörtur Þórðarson —
maðurinn — bekktari
Undrandi hvernig þetta hafi
mátt verða bregður þú fingrin
um varlega á marmarahelluna,
— hún er ísköld sem áður, og
þú verður því engu nær hvemig
eggin hafa verið steikt".
Sfðan er lýst öðrum sjónhverf
ingum Thordarsonar og hann
gefur skýringu á galdrinum. —
Hann segir: „Vel þekktir eig-
inleikar rafmagnsins eru hafðir
til að framkvæma þessi irndur.
Jeg tek 110 vólta vixlustraum
frá leiðara hjer f byggingunni
og léiði strauminn undir bekk-
inn sem bakaraofninn minn
stendur f og tengi hann við seg
ul sem ég hef undir marmara-
hellunni.
Rafmagnið er það sem kölluð
er „sextug hringrás", er vixfeð
120 sinnum á sekúndu. — Hin
snögga skifting skautanna í seg
ulstálinu gerir galdurinn".
islenzki uppfinninga-
i enska heiminum en
hér á landi
Cögubókum okkar er áfátt —
eða vantar þar ekki upp-
lýsingar um ýmsa landa okkar,
sem komið hafa við sögu, t.d.
vísindanna?
Það voru fáir, sem könnuð-
ust við nafnið C. H. Thordar-
son, begar leitað var upnlýsinga
um hver þessi uppfinningamað
ur væri. Það kann e.t.v. vera af
bvf, að stafsetning nafnsins f
Vísi fyrir 60 árum er á ensku.
Séra Benjamín Kristjánsson
leysti vandann og kvað hér vera
um Hjört Þórðarson í Chicago
að ræða. „Hann var faeddur á
Stað f Hrútafirði árið 1867 og
fluttist vestur um haf með
móður sinni og systkinum árið
1876. Hann fór að stunda raf-
magnsiðn og setti upp eigið verk
stæði og fyrirtæki.
Hann varð nafnkunnur upp-
finningamaður, gerði fleiri
hundruð uppfinningar og var
þekktari f enska heiminum en
hér, — nafnkunnur rafmagns-
fræðingur. Hann var f borgar-
stjóm Ohicago á sínum tfma og
átti eitt bezta safn fslenzkra
bóka f Vesturheimi, sem háskól
inn í Wisconsin keypti að hon-
um látmtm. Árið 1930 var hann
kjörinn heiðunsdoktor við Há-
slkóla Islands.
Hjörtur Þórðarson lézt 6.
febrúar árið 1945.“
HUSGAGNAVERZLUN
GUDMUNDAR GUÐMUNDSSONAR
Stærsti húsgagnaframleiðandi lands-
ins býður yður upp á fjölbreyttasta úr-
val af bólstruðum húsgögnum sem völ
er á á einum stað.
MJÖG HAGKVÆMIR GREIÐSLU-
SKILMÁLAR.
GREIÐIST MEÐ JÖFNUM AFBORGUNUM Á TVEIMUR ÁRUM.