Vísir - 23.02.1971, Page 3
3
VlSIR . Þriðjudagur 23. febrúar 1971.
I MORGUN UTLÖNDI MORGUN UTLÖND f MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND
SUDUR VlETNAMAR
FARA VÍDA HALLOKA
Umsjón: Haukur Helgason:
— foringi þeirra i Kambódiu fallinn — miklar
raunir bandarisks hermanns, sem varð
„óviljandi" foringi hersveitar i Laos
Æðsti foringi hers Suður-
Víetnam í Kambódíu, Do
Cao Tri, vai drepinn í
morgun. Þyrla hans hrap-
aði brennandi, efíir að
sprenging varð í henni í
lofti. Þar fórust einnig
tveir höfuðsmenn, major
og aðrir foringjar.
Hersveit Suður-Víetnama í Laos
„Konur og börn
jafn hættuleg og
óvinahermenn"
var nærri gjöreytt í bardögum, 10
kilómetrum innan landamæranna,
við Ho Ohi Minh-leiðina. Helming-
ur af 500 manna deild fél'l eða er
saknað, þar á meðal allir yfirmenn.
Bandarískur hermaöur hvílist í
sj úkrahúsi I dag, eftir aö hann
hafi verið yfirmaður umkringdrar
hersveitar Suður-Víetnama í Laos
£ tvo daga. Hann er sjálfur talinn
hafa fellt 50 Norður-Víetnama í
bardögunum.
Þyrla Bandaríkjamannsins, sem
'heitir Fujii, var skotin niður yfir
Laos á fimmtudag, og hann tók
strax til óspil'ltra málanna við vam
ir sveitar Suður-Víetnama, sem
Norður-Víetnamar höfðu ráðizt á.
Hann bað um aðstoð flugvéla, og
sagði flugmönnum, hvar þeir
skyldu skjóta. Á laugardag bárust
fréttir um, að Norður-Vfetnamar
ætluðu að taka herstöð S-Víetnama
með áhlaupi. Fujii liðþjalfi stjórn-
aði þá för um 200 Suður-Víetnama
yfir óvinasvæði til annarrar sveitar.
100 Suður-Víetnamar urðu eftir til
að verja undanhaldið, og er þeirra
saknað.
— Calley liósforingi segir frá
9 William Calley liðsforingi
byrjaði í gær framburð sinn
fyrir réttinum, þar sem hann er
sakaður um f jöldamorð í My Lai
í Suður-Vietnam. Hann hélt því
fram, að áður en hann var send-
ur til Víetnam, hafi honum verið
kennt, að konur og börn gætu
verið jafn hættuleg og óvinaher-
menn. Honum hafi einnig verið
kennt, að liðsforingi ætti yfir
höfði sér dauðarefsingu, ef hann
neitaði að hlýða skipunum í bar-
dögum.
Calley sagðist ekki hafa feng-
ið kennslu £ reg'lum um meðferð
á föngum, og enginn hefði sagt
sér, að liðsforingja bæri að meta
hvort skipun, sem hann fengi,
væri ólögíeg eða ekki.
Hann sagði, að hermennirnir
í Víetnam hefðu litið svo á, að
konur væru jafn hættulegar og
karlar. Börn væru sérstaklega
hættuleg, af því að venjulega
væru þau ekki grunuð um
græsku. Konur væru oftast betri
skyttur en karlmenn. Börn væru
lagin við að koma fyrir sprengj-
um, sagði Cal'ley. Hann sagðist
hafa verið „hálifruglaður“ eftir
að hann kom til Víetnam.
■
Gasský á
tungli finnst
á tækjum
Tæki, sem Apollo 14 skildi eftir
á tungli, hafa mælt stórt gasský
þar, að sögn vísindamanna í nótt.
Dr. Gary Latham, sem fyrstur til-
kynnti um svokallaða tunglskjálfta
í fyrra, sagði að gasský hefðu kom-
ið fram á mælitækjunum í eina
klukkustund á sunnudaginn.
„Við vitum enn ekki, af hverju
þetta staifar. Ef til vil'l hefur þetta
lekið út frá yfirborði tungls.“
Manntjónið komið í 84
— margir er fórust
Nixon Bandaríkjaforseti
lýsti yfir neyðarástandi í
Missisippifylki í gærkvöldi
en þá var manntjónið kom-
ið í 84 og hugsanlegt tal-
h'áfðu ekki útvarp og heyrðu ekki aðvaranir
ið, að fleiri lík fyndust enn
eftir fellibylinn. Ákvörðun
Nixons veldur því, að rík-
issjóður mun styrkja þá,
sem urðu fyrir tjóni. í fylk-
Stúdentaóeirðir
Barcelona
©
Lögreglan í Barcelona handtók
16 manns í gærkvöldi, eftir að
stúdentar höfðu brotið gluggarúður,
♦ruflað umferð og velt bílum. Upp-
þot stúdenta hófust, þegar stjórn-
völd bönnuðu fund þeirra.
Stúdentar hugðust á fundinum
ræða afleiðingar þess, að heimspeki
deild háskölans hafði verið lokað
í síðustu viku. Lögreglan kom á
vettvang og stöðvaði fundarhöldin.
Stúdentar fóru þá í kröfugöngu til
miðborgarinnar og uppþot urðu.
Stjórnvöld lokuðu heimspeki-
deild aftur í gærkvöldi.
inu Louisiana varð tjónið
einnig mikið. Mörg hundr-
uð manna slösuðust, og
eignatjón skiptir hundruð-
um milljóna króna.
Hjálparsveitir hafa fundið 78
'látna í Missisippi og sex í Louisi-
ana. Sjúkrahús í óshölmunum i
Missisippi eru yfirfull af slösuðu
fól'ki. Fellibylur skall einnig á Tex-
as og Tennessee, og nokkrir slös-
uðust þar en enginn mun hafa far-
izt.
Flestir þeir, sem fórust, voru fá-
tækt fólk. Margir þeirra höfðu ekki
útvarp og heyrðu því ekki aðvar-
anir, sem sendar voru.
>á er óttazt, að um tuttugu hafi
farizt í snjóbyl í fylkjunum Okla-
homa, Kansas, Nebraska, Missouri
og Iowa. Víða heíur fallið nærri
40 sendimetrar af snjór. í Omaha
í Nebraska liggja samgöngur niðri
j og í Lincoln getur lögreglan ekki
I notaö bíla sína, segja fréttamenn.
Verk Fujii liðþjálfa eru í and-
stöðu við stefnu Nixons forseta,
að engir Bandaríkjamenn skuli berj
ast á landi í Laos. Sögðu sumir,
að Fujii yrði annaðhvort stefnt fyr-
ir herrétt eða veitt faeiðursmerki.
Foringi Suður-Víetnama í Kam-
bódíu, Do Cao Tri, féll í nótt.
Óánægðir norrænir svanir
Sagt er, að norrænu svánirnir fimm séu mjög gramir, vegna þess
að búið er að hafna þeim sem norrænu tákni og fá í staöinn þrí-
hyrninga. Hafi þeir því stungið sér á haus, svo að afturhlutarnir
mynda þríhyrninga. Annars hefur komið fram mikil óánægja með
nýja merkið, sem Norðurlandaráð ætlaði að taka.
ÍNýtt .Satansmorðl
Þrjú ungmenni, sem eru félagar
í „kirkju Satans“ hafa veriö
handtekin fyrir morö. Þau
myrtu frú Gauell Newsom, 61
árs. Þau réðust á hana á heimili
hennar og stálu um 1 þús. krón-
um og nokkrum skammbyssum.
Síðan bundu þau konuna og óku
með hana burt í hennar eigin
Cadillac.
Cindy Lee Horner, 12 ára,
skýröi frá því strax eftir hand-
tökuna, að þau hefðu ákveöið að
„losa sig viö“ konuna .og hefði J
annar drengjanna drepið hana
með skoti í hnakkann. Dreng-
irnir voru hálfbróðir Cindy,
Keitþ Hughes 13 ára, og Pat-
riok Teague 19 ára, frá Houst-
on í Texas. Morðið var framið
í San Antonio.
Lögregluþjónn handtók þau,
og haföi honum þótt skrýtið, aö
'þessi hippaböm skyHu aka usn
í cádíílac.