Vísir - 24.03.1971, Síða 4
4
V I S I R . Miðvikudagur 24. marz 1971.
Þakjárn með afslætti
Til sölu 4—5 þúsund fét af þakjárni í 7—12
feta lengdum.
Mikill afsláttur
Nokkrar vatnsskemmdir urðu á járni þessu
í flutningi. Járnið kæmi að fullum notum, ef
málað væri fyrir notkun.
Upplýsingar í síma 38568.
Bílasalinn v/ð Vitatorg
Til sölu Taunus 20 M árg. ’66 4ra dyra station
Opel Rekord árg. ’64
Chevrolet árg. ’61
Verð og útborgun samkomulag.
Bílasalinn við Vitatorg selur bílana. Skráið bílana hjá
okkur.
Bílasalinn við Vitatorg. — Sími 12500.
Dagskrá
miðvikudaginn 24. marz kl. 21.00
Pólska litmyndin ALLT ER FALT frumsýnd hér á landi
Leikstjóri Andrzej Wajda.
Kvikmynd sem hlotiö hefur frábæra dóma erlendis.
Sýnd aðeins einu sinni.
Gœði i gólfteppi
GÓLFTEPPAGERÐIN H/F
Suðurlandsbraut 32 Simi 84570
Spennustillat
6, 12 og 24 volt
Vér bjóðum:
6 mánada
ábyrgð
og auk þess
lægra verð
HÁBERG H.F.
Skeifunni 3E Simi 82415
ROCKWOOL
Steinullar einangrun 60x90 cm.
2", 3## og 4"
Rockwool er rétta einangrunin
HANNES ÞORSTEL JSON & Ct.. h/f
Sími 85055 (
© Þræddi höfuðborg-
irnar
Fulltrúi frá Æskulýðssam-
bandi íslands Benedikt Guð-
bjartsson var í hópi sjö full-
trúa Æskulýðssambands Norð-
urlandanna i vikuferð til fjög-
urra landa Evrópu, — höfuð-
borgirnar París, Bonn, Amster-
dam og Briissel voru þræddar
í þessari ferð og rætt við stjórn
málamenn um ýmis málefni
æskulýðsins. Ræddi nefndin m
a. í klukkustund við Brandt
kanslara V-Þýzka!ands. Segir 1
frétt frá ÆSl áð árangur far
arinnar hafi verið góður, ,,á-
’ greiningsatriðj voru rædd af
hreinskilni og einkenndust um
ræðurnar af samstarfsvilja".
• Plaggat gegn
áfengisböli
Um mánaðamótin geta ungling
ar, sem safna veggspjöldum eða
plaggötum svokölluðum, fengið
plaggat, sem binriindisfélög ungs
fól-ks gefur út Plaggatinu verður
dreift t skóla, á samkomustaði
og ýmsar stofnanir. Mun þetta
í fyrsta sinn, sem plaggat er
gert til að vinna gegn neyzlu
áfengis hér á landi. Eins og
fram hefur komið fjölgar stöð
ugt þeim sem láta sígarettuna
lönd og leið. — og e. t. v. er
nú rétti jarðvegurinn fyrir mikla
herferð gegn áfenginu líka.
® Hvaða möguleika
hefur nýja fyrirtækið
Övenjulegri þjónustu hefur ver
ið komið á fót í Rvík. Fyrir-
tækið nefnist Hagverk sf. og
annast fyrirtækið alhliöa áætl-
anagerð, forritun, skýrslugerð
og stjórnunarstörf auk almennra
hagfræði- og verkfræöistarfa.
Með auknum kröfum lánastofn
ana hefur einsaklingum og fyr
irtækjum ýmsum orðið æ nauð-
synlegra að leggja fram á raun
hæfan hátt útreikninga um arð
semi framkvæmda, sem lánsfé
er óskað fyrir. Þá hafa atvinnu
rekendur nú aukinn skilning á
áætlunum sem stjórntæki í
rekstrj fyrirtækja sinna Hag-
verk sf. stofnuöu þeir Bjarni
Kristmundsson, verkfræðingur,
Gunnar Torfasón, verkfræðing-
ur og Þorvarður Elíasson, við
skiptafræðingur, en allir hafa
þeir náin kynni og reynslu af
ýmiss konar áætlanagerð fvrir
einstaklinga og opinbera aðila.
© Allt svo gott i henni
Ástralíu
Ástralíubúar hafa sjálfir gert
svolítið grín að því hversu mjög
fólk heldur að hlutirnir séu
stórkostlegir í landinu, þegar
það kemur sem ínnflytjendur.
Textinn á þessu póstkorti frá
Ástralíu var: Þeir viröast halda
að við ræktum stór epli
hérna. — Svo rekur fólk
sig auðvitað á það að lífsbar-
áttan verður hörð þar sem ann
ars staðar, — og eplin af á-
kaflega svipaðri stærð og geng
ur og gerist í þeim löndum sem
hafa loftslag til eplaræktunar.
© Gunnar Thoroddsen
skipaöur prófessor
Dr. Gunnar Thoroddsen var
skipaður prófessor við Háskóla
íslands við lagadeild nú fyrir
helgina, Er hann skipaður í
starfið frá 15. marz aö telja.
'm.,.
' V . ■■■■ “■ ..." . ■ , . Vv . V , r : . .
Hann var hálfumkomulaus þessi seppi, sem ljósmyndarinn
„skaut“ á út um glugga á bíl í snjómuggunni á sunnudaginn
var. Einn og yfirgefinn skokkaði hann suður Kringlumýrar-
brautina frá gatnamótunum við Suðurlandsbraut. — 1 haust
verða dagar hunda taidir hér í Reykjavík, — sem þaðan í frá
verður hundlaus höfuðborg.
© Sjómannsefni vilja
færa út í 50 mílur
Undirskriftir hafa farið fram
að undanförnu í Vélskólanum
og Stýrimannaskólanum um út-
færslu landhelginnar. Er þar
gerð sú krafa að alþingi sem
nú situr, samþykki að færa fisk
veiðilandhelgi íslands út f a.
m. k. 50 sjómílur á grundvelli
laganna frá 1948 um vísinda-
lega verndun fiskimiðanna. Á
fjórða hundraö nemendur skól-
anna undirrituðu þessa kröfutil
þingsins, en ekki náðist f nem-
ehdur 1. stigs í Stýrimannaskðí
anum þeir voru í upplestrar-
fríum. Af öðrum nemendum
undirrituðu skjalið 90% nemend