Vísir - 27.03.1971, Blaðsíða 16
Stúdentafélag Háskólans efnir
Ttir helgina til almennra fræðsliu
'g umræðufunda í Norræna hús-
m. Verða þar rædd málefni sem
ofarlega ern á baugi. Fyrsti fund-
urinn verður á mánudag oig veröur
þá fjallað um prestkosningar.
. rummæiendur verða Jón Auðuns,
dómpröfastur og Jónas Gísiason,
nýkjörinn .prestur í Háaleitissókn.
Á þriðjudagskvökliö ræðir Sverrir
Runólfsson um vegamál og munu
iærðir menn og nemendur í verk
fræði og jarðfræði spyrja Sverri.
Þriðji fundurinn verður svo á
miðvikudag og verður þá fjaliað
um ábyrgð lækna. Frummælandi
verður Arinbjöm Kolbeinsson, for
maður Læknafélags íslands og Þór
Vilhjálmsson, lagáprófessor. Fund
imir byrja allir klukkan hálfníu
aö kvöldi.
ISIR
Laugardagur 27. marz 1971.
Einu sinni var..
9 Pannig byrja mörg ævintýri, þó
ekki ævintýrin hans H. C. And-
^rsens, sem flest böm þefckja á
íslandi, rétt eins og annars staðar
í heiminum. Þessi Dani er nefniiega
nafnkunnastur ailra Dana, — og
enda þðtt Bandaríkjamenn hafx lagt
niður að einhverju leyti át á
dönskum kræsingum í mótmæla-
skvni vegna laxastríðsins, þá haida
bandarísk böim áfram sem fyrr að
lesa ævintýrabækur skálldsins frá
Óðinsvéum.
® Stúikumar á myndinni em að
vísu vaxnar upp úr bamsskón-
um, en eru samt að glugga í eina
af ævintýrabókum H. C. Andersens
í Norræna húsinu. Hefur NH feng-
ið senda sýningu frá Konungiegu
bókhlööunni í Kaupmannahöfn en
H. C. Andersen-sérfræðingurinn dr.
phi'l Erik Dahl hefur sett sýninguna
upp. Þarna er ýmisiegt að skoða úr
ævi skáldsins, sem snertir iff hans
og startf. Á sunnudaginn efnir NH
tii upplestrar úr verkum skáidsins
og þá les Pia Renner Andresen
(t. h. á myndinni) ævintýri, en
Hanne JuulL, sem er til vinstri, syng-
ur með gítarundirleik Gastons.
JBP
„Mikill
héraði á
Þingmenn úr Sjálfstæðis- og Framsóknar-
flokki á NorBurlandi vestra telja ekki oð
„nýtt Laxármál" sé i uppsiglingu
heima í
Svartár
„Virkjun Svartár hefur
verið mikið áhugamál
heima í Skagafirði ára-
tugum saman,“ sagði
Gunnar Gíslason (S) á
Alþingi í gær, og Jón
Kjartansson (F) tók und
ir þau orð. Þessir þing-
menn Norðurlands
vestra töldu ekkert hæft
í staðhæfingum sem
fram hafa komið um, að
„nýtt Laxármál“ mundi
hefjast með virkjun
Svartár í Skagafirði við
Reykjafoss og margir
heimamenn séu virkjun-
inni andvígir.
Báðir þmgrrienn skoruöu á
Aiþingi að flýta samþykikt
stjómarfrumvarps, sem fram er
komið um heimild tii þessarar
virkjunar, svo að það nái fram
að ganga nú fyrir páska. Jón
Kjartansson kvaðst „undrandi"
á fuilyrðingum um deilur um
málið heima í héraði.
Gunnar Gíslason sagði, að
félag landeigenda á þessu svæði
hefði mi'kinn áhuga á virkjun
inni. Taldi hann, að ekki yrðu
deilur nema „utanaðkomandi
öfl“ kæmu til sögunnar. Engir
þingmenn töluðu mótifrumvarp
inu við fyrstu umræðu, sem
fram fór í gær.
Ríkisstjómin hefur borið fram
frumvarp um virkjun Svartár í
S'kagafirði við Reykjafoss í allt
að 5500 hestafla raforkuveri.
Verði þaðan lögð aðalorkuveita
til Sauðárkróks og tengd við
veitukerfi Norðurlands vestra.
í athugasemdum er tekið
fram, aö orkuþörf Norðurlands
vestra hafi farið mjög vaxandi
síðari ár. Næg vatnsaflsoiika sé
nú ekki fyrir hendi á þessu
svæði og því hafi orkuöflun
með dísilvélum verið nauösyn
leg um notokurt skeið.
Til greina hafi komið að
virkja annaðhvort í héraðinu
sjálfu eða tengja það við Lax-
árvirkjun. Nú sé Gijúfurvers-
virkjun sem slík úr sögunni
og unniö að minni virkjun
Laxár. Orkustoifnun hefur því
mælt með leyfj til að virikja
Svartá.
I frumvarpinu er gert ráð
fyrir, að ríikisstjómin fái heim
ild til að taka lán eða ábyrgjast
lán al'lt að 86 milljónum króna
til framkvæmdanna. —HH
Brown á fundi með stúdentum:
Ég skal fara í kröfu-
göngu með ykkur
- ef jb/ð viljið ganga fyrir einhvern málstað,
en ekki á móti einhverju"
SVERRIR RUNÓLFSSON í
spurningatíma hjá stúdentum
Þrir umræðufundir i Norræna húsinu eftir helgi
um vegamál, prestskosningar og ábyrgð lækna
„Þetta er nú sá loftkenndasti
háskóli, sem ég hef komið í“,
sagði George Brown lávarður
er skammt var liðið á fund
hans með stúdentum. Var fund-
urinn í fyrirspurnaformi, og
fannst Brown heldur djúpt á
spurningum íslenzkra stúdenta.
Or þessu rættist þó brátt, og
stúdentar tóku að spyrja hann
um heimsmálin, efnahagsbanda-
lagið, stríð og frið, uppreisn
æskunnar o. s. frv.
Brown tók mannalega á móti
hverri spumingu, eh lengstum
tíma varöi hann til að svara spurn
ingum varðandi yngri kynslóðina:
„Ég sikii ekki háskólastúdenta. Ég
skij ekiki mótmæli þeirra. Ég skil
ekki hvers vegna þeir, fara í
kröfugöngur móti einhverju, en
ekki með einlhiverju,' eins og ég
gerði á rnínum yngri árum, en þá
þrammaði ég oft undir kröfu-
spjöl'dum og boröum — hef senni
lega farið í fleiri kröfugöngur með
konu minni en nokkur annar hér
inni.
Ég er sósíaldemókrati og ég trúi
á rétt hvers manns tii að velja.
Rétt hvers manns til að velja
<5>rangt — eins og landar mínir^
gerðu í kosningunum sl. vor. Og
ég trúi á réttinn til að velja aft-
ur — eins og ég vona að landar
mínir muni gera í næstu kosning-
um.“
Fundur ísi. háskólastúdenta með
George Brown var haldinn í Nor-
ræna húsinu, og komu til hans
svo margir sem rúmuðust í þeim
litla samkomusal sem þar er.
Brown sat í gærkvöldi veizlu
íslenzkra sósíaldemókrata, en ætl
unin var að hann héldi af landi
brott klukkan átta í morgun,
„nema“, sagði Brown við stúdent
ana, „þiö farið einu sinni í kröfu
göngu fyrir einhverjum málstað,
én ekki á móti! Þá skal ég ganga
með ykkur.“ — GG
Gjaldeyrisstaðan versnar
um 75 milljónir
Gjaldeyrisstaðan versnaði um 75
miilljónir króna í febrúarmánuði.
„Gjaideyrissjöður“ þjóðarinnar
nam um síöustu mánaðamót 3.845
miilljónum en hafði numið 3.920
milijónum mánuði áður.
I febrúarmánuði í fyrra batnaði
gjaldeyrisstaðan um 300 miffijónir.
— HH
m.