Vísir - 31.03.1971, Blaðsíða 2
— ef Frank hætti oð syngja
Vánum og a'ðdáendum (Franks
Sinatra finnst það toálft í hvoru
slæmar fréttir, að hann ætli
að fara að hafa það náðugt og
hætta öllu basli í skemmtunum.
„Honum hefur tekizt allt í líf-
inu. Hann hefur klifrað upp á
fjalistoppinn — svo hvers vegna
ætti hann ékki að slappa eitthvaö
af?“, sagði gömul vinkona og
kærasta Sinatra gamla viS frétta
menn, er fregnir af áformi Sin-
átra spurðust, „en það yrði ekk
ert annað en glæpur ef hann
hætti að syngja“.
Vinkona Sinatra sem svo fali
ega talar um hann er Jill St.
John, leikkona, sem lengi var
fylgiikona Sinatra, og segir hún
að fregnirnar af Sinatra hafi kom
ið mjög í opna skjöldu í Holly-
wood, þótt orðrómur hafi verið
á kreiki um að Sinatra væri far-
inn að lasnast og þreytast, og
væri orðinn hálfvegis latur aö
koma fram.
Sinatra sjálfur segist hafa ætl
aö að hætta fyrir 3 árum, en þá
keypti hann sér dægilegt hús í
Palm Springs. Við það lét hann
gera sérstaka flugbraut fyrir þot
una sína og á þaki hússins var
aðstaöa til að lenda einkaþyrl-
unni.
í. fyrra lék Sinatra samt i kú-
rekamynd í Arizona, „Dirty Ding
us Magée“, og einnig flaug hann
í þotunni sinni til Hollywood og
söng nokfcrars .-barnagælur >inrr á
LP-plötu til að selja fyrir jólin.
Jim Mahoney, blaðafuHtrúi og
vinur Sinatra segir að það sé
mesta firra að Sinatra sé slæmur
til heiLsunnar — hann sé að lag
ast í hendinni sem skorið var í
í fyrra og leiki raunar við hvern
sinn fingur.
Jill St. John — það væri glæpur ef hann hætti að raula.
Æfir af reiði
hvað hef ég gert
Flugvöllur? — Hann verður þá lagður yfir dauða Iíkama okkar!
Bretar þurfa nýjan flugvöll, og ætla að byggja hann í Cubl-
ington. Þorpsbúar í Cublington eru æfir af reiði og hafa efnt
til mótmælafunda og kröfugangna. — Enn hafa Álftnesingar
enga kröfugöngu hafiö eða mótmælafund, en hver veit hvað
verður, þegar alvara færist í flugvallargerðarmenn?
Æ,æ —
Bn hann reynir samt að herða
upp hugann — og gægjast á ver-
öldina með andlitið falið f hönd
um sér. Og það er ekkert undar-
legt, þessi 15 ára hnokki, Paul
Bray situr þarna og bíður eftir
lögreglunni — og honum pabba
sínum, sem á bílinn sem Paul
litli fór svo illa með. — Billinnjj
skemmdist talsvert, og varð að •
hengja hann aftan í kranabíl ogj
drösla honum þannig í viðgerð.*
berir
„Flestir karlmenn eru íeimn-
ir við að láta ljósmynda sie
nakta. Ég held að þeir séu óör-
uggir um — og hræddir um að
þeir hafi ekki það til að bera, er
karlmaður á að geta státaö af“,
segir brezki tízkuljósmyndarinn
David Bailey, sá er varð heims-
frægur fyrir myndatöku sína í
kvikmyndinni „Blow up“.
Bailey, sérfræðingur í „djrf
um“ tízkuljósmyndum, vinnur nú
að Ijósmyndabók þar sem hann
vill kynna frægt fólik á myndum,
einkum hjón án þess að það sé
með spjör utan á sér.
Meðal þeirra sem hafa lofað
að koma fram í bókinni án fata,
eru leikkonan Marianne Faith-
ful ogv tízkusýningarstúlkan
ekki
vera
Twiggy. Starfsbróðir Baileys Ijós
myndarinn og lávarðurinn Snow-
don sagði nei takk!
„Stúlkurnar skilja strax hvað
ég er að fara og kasta af sér
spjörunum án þess að blikna, en
það er alveg ógurlega erfitt að
fá menn þeirra til að vera með“,
segir Bailey, sem sjálfur ætlar að
tróna allsber á kápu bókarinnar.
Bailey er sjálfur allsendis ófeim
inn að sýna sig beran, og segist
líta á nektarmynd af sjálfum sér
á kápunni sem eins konar for-
mála að bókinni.
„Þyrði ég ekki sjálfur að sýna
sannleikann nakinn, gæti ég ekki
heldur vænzt þess að aðrir kar]
menn gerðu það“. segir hann.