Vísir - 31.03.1971, Síða 8
VISIR . MiBvikudagur 31. marz la'/l
Otgefandi: Reykjaprenr nt.
Framkvæmdastióri: Sveinn R Eyjólfsson
Ritstjóri: Tónas Kristjánsson
Fréttastióri: Jón Birgir Pétursson
'öætiórnaífulltrúi Valdimar H. Töhannesson
Auglýsingastjóri: Skúli G. Jóhannesson
Auglýsingar: Bröttugötu 3b Sfmar 15610 11660
Afgreiösla- Bröttugötu 3b Simi 11660
Ritstjöri: Laugavegi 178 Sími 11660 (5 Hnur)
Askriftargjald kT. 195.00 á mánuöi innanlands
í lausasölu kr. 12.00 eintakiö
Prentsmiöja Vlsis — Edda hf.
Við viljum áfram jafnvægi
Á. tveimur árum hefur kaupmáttur atvinnutekna og
ráðstöfunartekna helztu alþýðustéttanna aukizt um
einn fimmta hluta eða rúmlega 20%. Er nú svo kom-
ið, að kaupmátturinn er orðinn svipaður eða ívið
hærri en hann var mestur í góðærinu 1966—1967,
áður en þjóðin lenti í efnahagserfiðleikum þeim, sem
nú eru afstaðnir fyrir nokkrum misserum. Hlýtur
þetta að teljast ánægjulegur og ótrúlegur árangur á
skömmum tíma.
Markmið verðstöðvunarinnar, sem nú stendur yfir,
er að varðveita þennan kaupmátt. Hann er í hámarki
þess, sem staðizt getur við núverandi efnahagsgetu
þjóðarinnar. Og varðveizlan miðast við, að hindrað-
ur sé eltingaleikur verðlags og kaupuppbóta, svo að
verðbólgan velti ekki af stað með miklum þunga á
nýjan leik. Ekki verður betur séð en verðstöðvunin
hafi tekizt fram til þessa. Kaupmættinum hefur verið
haldið uppi og verðbólgunni niðri.
Jafnframt hefur böli atvinnuleysisins verið bægt
frá þjóðinni. Nú er aðeins um að ræða staðbundið
atvimiuleysi á einstaka stöðum, fyrst og fremst yfir
háveturinn. En á sama tíma er annars staðar á land-
inu mikill skortur á vinnuafli. í heild eru lausar stöð-
ur miklu fleiri en samsvarar skráðu atvinnuleysi.
Það er jafnvel búizt við því, að í vor verði mun auð-
veldara fyrir skólafólk að fá vinnu en verið hefur
undanfarin vor. Einkum er það byggingariðnaðurinn,
sem þarf mikið starfsfólk í sumar.
Veruleg spenna mun ríkja í athafnalífinu á þessu
ári. Afköstin í framleiðslu og framkvæmdum verða
án efa mikil. Þessi staðreynd á að geta orðið þjóðinni
til góðs, ef allir hópar samfélagsins gera sér grein
fyrir hættunni á nýrri verðbólguþróun og þeirri
ábyrgð, sem þessi hætta leggur þeim á herðar. Til
frambúðar nm mest velta á því, hvort nýir kjara-
samningar í hai:st vr:vn gerð’V'í sr.mræmi við getu
þjóðarbúsins eða ckld. f.d cr auðvelt að skjóta yfir
markið, þegar spenna ríkir í atvinnulífinu.
Aðstaðan er að því leyti góð, að gjaldeyrisstaðan
er sterk og að verðstöðvunin byggist ekki á halla-
búskap hjá ríkissjóði. Hún mun því væntanlega ekki
skilja eftir sig nein illvíg vandamál, þegar henni lýkur.
Þjóðin ætti því að geta komizt klakklaust úr þeim
vandamálum, sem framundan eru. Aðalatriðið er, að
neyzlan og þá auðvitað kaupmátturinn sé í samræmi
við getu efnahagslífsins á hverjum tíma.
Verðstöðvunin hefur varðveitt hina 20% aukningu
kaupmáttarins og haldið verðbólgunni að verulegu
leyti í skefjum. Hún gefur okkur tíma til að átta okk-
ur á, að afköst þjóðarbúsins og lífskjör þjóðarinnar
eru í jafnvægi og að atvinnuvegimir eru samkeppnis-
hæfir á núverandi gengi krónunnar. Þetta jafnvægi
viljum við ekki missa aftur, og sú ósk á að vera okk-
ur leiðarljós í efnahagsmálunum á næstu mánuðum.
Newsweek segir, að mikil óreiða hafi verið á eftirliti með búnaði þyrlnanna í Víetnam og
margar hafi farizt vegna trassaskapar.
Urðu Suður-Yíetnamar
sér til skammar í Laos?
Bandansk t'imarit leiða getum að pví, aö
innrásin muni reynast óhagstæð Nixon og
Thieu i kosningum
n Síðustu hefti banda-
rísku tímaritanna Time
og Newsweek hafa ver-
ið bönnuð í Suður-Víet-
nam. — Orsökin er, að
tímaritin gagnrýna bæði
frammistöðu innrásar-
herja S-Víetnama í Laos
og þær fullyrðingar
bandarísku stjómarinn-
ar, að tilgangi innrásar-
innar hafi verið náð.
Hermenn argir
Tjme bendir á, að herstjóm-
in viðurkenni, að um 1000 S.-
Víetnamar hafi fallið I Laos, en
telur sennilegra, aö mannfallið
hafi verið um 2000, og 4000
hafi særzt af 20.000 manna inn-
rásarher þeirra. Ritið segir, að
Suður-Víetnamar hafi oröið fyr-
ir vonbrigðum með innrásina..
Eftir hana séu hermennirnir
gramir og þeir vantreysti fram-
vegis fullyrðingum stjómvalda
um sigra og manntjón. Reyndar
hefur oft áður komið fram, að
tölur herstjórnarinnar um mann
tjón hafa verið stórlega ýktar.
Herstjómin gerir lítið úr eigin
tjóni, en fallnir andstæðingar
hafa tilhneigingu til að marg-
faldast í meðferð stjórnvalda.
Hangandi utan á
bi’ríunum
Time telur, að innrásin geti
komið Nixon Bandaríkjaforseta
og Thieu forseta S.-Víetnam f
koll. Kosið verður í S.-Víetnam
í haust og í Band'\-íkiunum
næsta ár. Þrátt fyrir fullyrðing-
ar stjórnvalda um góðan ár-
angur innrásarinnar sé því
ekki að neita, að undanhald
suður-vietnömsku herjanna var
síðustu dagana ömurlegt, Blaðið
getur þess, að úrvalslið S.-Víet-
nama háði hörðustu orrustuna
í Laos við herstöðvar þeirra við
þjóöveg númer níu. Suður-Víet-
namar biðu algeran ósigur
þarna. Þeir eyðilögðu sínar eig-
in fallbyssur og flýðu inn í
skóginn, þar til þyrlur gátu loks
fundið þá, er liföu. Eins og
áður hefur komið fram í frétt-
um. vom þessir hermenn ekkí
likir sigurvegurum, þegar þeir
komu til heimalands síns. Þyrl-
ur, sem ætlaðar voru fyrir átta
menn, fluttu upp í fjórtán, og
sumir þeirra héngu b<inllínis
utan á þyrlunum. Dæmi vora
um, að þeir misstu takið á flug-
inu og féllu til jarðar.
Fyrst vitað næsta haust
Time spyr: Var þetta þess
virði? Eins og tímaritiB News-
week kemst Time að þeirri
niðurstöðu, að um það verði
ekki vitaö fýrr en f haust Rit-
ið segir, að það hafi aöeins ver-
ið eitt af þremur markmiðum
innrásarinnar að eyðileggja
flutningaleiðir kommúnista suð-
ur á bóginn. Annaö mikilvægt
verkefni hafi átt að vera að
ginna Norður-Víetnama inn á
þetta svæði, svo að bandartfsku
flugvélamar gætu ráöizt á þá.
Langtfmamarkmiðið með inn-
rásinni er, samkvæmt fullyrð-
ingum bandaiískra stjómvalda
að tryggja brottflutning banda-
rísku herjanna frá Vfetnam með
því að spilla flutningaleiðum
kommúnista og minnka mátt
þeirra. Hins vegar telurHme, að
með innrásinni hafi einnig átt
að létta byrðunum af Kam-
bódfuher með þvf að beina at-
hygli Norður-Víetnama f aðra
átt. Þá hafi staðið til að minnka
árásarmátt Norður-Víetnama
fram að forsetakosningunum í
Suður-Vfetnam f október í haust
og jafnvel fram yfir bandarísku
forsetakosningarnar f nóvember
1972.
^ha^stæður saman-
burður við innrásina
< ’^mhódíu
Ölíklo-t sé að menn verði á
einu máli um, hvort þessi inn-
rás hafi heppnazt eða mis-
heppnazt. Herstjómarmenn voru
margir hverjir ánægðir með ár-
angur innrásarinnar í Kam-
bódíu í fyrra, sem var svipaðs
eðlis. Hins vegar er saman-
buröur óhagstæður innrásinni i
Laos. í samanburði við innrás-
ina í Kambódíu náðu innrásar-
menn f Laos aðeins um fjórð-
ungi þeirra vopna, sem þeir tóku
af óvinunum í Kambódfu, og
helmingi skotfæra, þeir náðu að
eins fimmtungi þess magns hrís
grjóna, sem þeir tóku af N.-
Vfetnömum i Kambódiu, og
felldu álíka marga andstæöinga
á vígvellinum. Hins vegar var
manntjón Suður-Víetnama
sjálfra um sjö sinnum meira ’i
Laos en það var í innrásinni i
Kambódíu.
Annað Dien Bien Phu?
Bandarísku tímaritin eru á
einu máli um það, að hermenn
Suður-Víetnama hafi staðið sig
mun verr en herstjómin hafði
vonað. Newsweek minnir á ó-
sigur Frakka við Dien Bien
Phu í styrjöld þeirra við upp-
reisnanmenn Ho Chi Minh, en
þar varð lokaósigur Frakka í
Indó-Kfna. Segir tímaritið frá
viðtali, er fréttamaður étti við
Umsjón: Haukur Helgason
major í her S.-Víetnama, um
það bil er herinn réðst inn í
Laos. Majorinn var spurður,
hvort hann óttaðist ekki „annað
Dien Bien Phu“? Hann svaraði
með þvíað spyrja hvortFrakk-
ar hefðu þar haft þyrlur búnar
byssum, hvort þeir hefðu haft
sprengjuþotur? „Vitleysa,“ sagði
hann. Hann treysti þvf, að
Norður-Víetnamar gætu ekki
lagt gildru fyrir innrásarherinn
eins og þeir forðum daga ginntu
Frakka í gildru.
Þyrlur illa búnar
Newsweek gefur í skyn, að
reynslan hafi ekki fyllilega
sannað fullyrðingar majorsins.
Undanhald Suður-Víetnama úr
Laos hafi ekki líkzt öðru fremur
en venjulegum flðtta hers, sem
laut í lægra haldj á vígvellinum.
Tímaritið skýrði einnig frá öm-
urlegum útbúnaði þyrla f Víet-
nam. Hafi margar þeirra farizt
vegna þess að þær voru ekkert
annað en „rusl“, sem ekki var
hæft til flugs.
Vísir hefur áður skýrt ítar-
lega frá sjónarmiðum banda-
rískra stjórnvalda og ummæl-
um Nixons um góðan árangur
af innrásinni. Það mun ekki
koma fram fyrr en síðar, hvor
kenningin er rétt, sú að árásin
hafj heppnazt eða hin. að húr.
hafa mistekizt.
Enn síðar mun koma í Ijós,
hvernig bandariska þjóðin met-
ur þessa tímábundnu útfærslu
styrjaldarinnar, hvort henni
finnst Nixon hafa sýnt klókindi
eða flónsku.