Vísir - 31.03.1971, Side 9
VÍSIR . Miðvikudagur 31. marz 1971.
Reynum m
©
*
*
— segir Roger Sullivan, sem stjórnar æfingum
á Zorba / Þjóðleikhúsinu
pf Ég leitast við að gera' hverja sýningu, sem ég
vinn að, betri en þær fyrri, svo að þess vegna
ætti sýningin hér að verða öðruvísi en sú, sem ég
stjórnaði í Danmörku, sagði ameríski leikstjórinn
Roger Sullivan, þegar Vísismenn hittu hann á leik-
sviði Þjóðleikhússins í gær. Þaö var matarhlé á
æfingu á söngleiknum Zorba. Leikstjórinn gaf sér
ekki tíma til þess að fara niður í matstofuna og fá
sér bita, heldur snæddi við lítið tréborð uppi á svið-
inu meðan hann ræddi við Vísismenn.
Gunnar Eyjólfsson í læri hjá Daníu Krupska, bak við þau má
sjá Gísla Aifreðsson, en þau eru að æfa gríska dansa.
— T eikstjórj aö söngleik
verður að halda öllum
þráðunum í hendi sér_ sagði
þessi reyndi Broadwayleikstjóri,
meðan hann hámaði í sig gúll-
asið neöan úr Leikhúskjallara.
— Hann verður að kunna skil
á músíkinni, og kóreografíunni.
Illa færi, ef kóreograferinn ynni
sín dansatriði í einu horninu,
söngstjórinn æfði tónlistina eft
ir sínu höfði og leikstjórinn sæi
svo aftur um leikinn og ekkert
annað. Þannig yrðu til þrjár sýn
ingar, sem rækju hornin hver í
aðra. Þetta verður allt að hald
ast í hendur ef vel á að fara.
Þessi leikur á ekkert skvlt við
kvikmyndina Zorba nema hann
er að sjálfsögðu saminn eftir
sömu sögunni. Við reynum að
ná fram hinu gríska andrúms-
lofti sögunnar á sviðinu með
hjálp tónlistarinnar. Sjálfurhef
ég verið á Krít, þar sem megin
hluti sögunnar gerist, til þess
að kynnast meö eigin augum
umhverfi ieiksins og lífsháttum
fbúanna. Ég fór þangað áður
en ég settj leikinn upp í Dan-
mörku.
Ég hef þá skoðun að leikhús
sé dálítið ýktur raunveruleiki.
Þegar við færum hversdagslífiö
upp á leiksvið, þá stækkum við
— Eru bandarískir söngleikir
færðir upp eftir ákveönu
það og ýkjum svolítið. — En
leikhús krefst heiðarleika og ein
lægni.
„resepti", þannig að sýnlngam
ar verða alls staöar eins, eða
svipaðar?
— Ekk,' sýningamar á þess-
um söngleikjum, Zorba og Fið)
aranum á þakinu, til dæmis. Ég
hef séð af þeim alls konar út-
gáfur. hreinar músíkútfærsl-
ur. eða gjörsamlega án tónlistar
og þar fram eftir götunum.
— Eru *1*íur *■*' ^ess söng
leikir, eins og þeir, sem
sprottið hafa upp i Bandaríkj-
unum, eigi framtíð fyrir sér?
— Hvort þeir veröa klassískir,
skal ég ekki segja um, en vin-
sældir söngleikjanna virðast
ekkert réna. Það eru til dæm
is tvær nýjar óperur í uppsigl
ingu í Bandarikjunum mjög
skemmtileg verk. Önnur ergerð
eftir „Sommer and smoke“ eft
ir Tennessee Williams og hin er
samin upp ú leikriti Steinbecks
„ýs og menn“ (sem leikið hef-
ur verið hér), Ég vildi ég
gæti sett þessi verk á svið hér
einhvern tíma. Mér hefur lík-
að mjög vel að vinna hér þess
ar tvær vikur, sem við höfum
æft. Þetta held ég eitt af beztu
leikhúsum sem ég hef starfað
við. mjög „prófessjónelt" skipað
góðum og fjölhæfum kröftum.
svo að ég vona að ég eigi eft-
ir að koma hingað aftur.
Héðan fer ég til Gautaborg-
ar til þess að setja upr> sænska
óperu í Gautaborg. Ég vildi
gjarna hafa meiri tima héma
Til dæmis til þess að vinna sjón
varpsprógram, eða því um Mkt,
ef þess værj kostur.
. TJálftíma matarþléi ..ieikar-
A'i' anna var að ljúka og þeir
fóm að tínast inn á sviði^,
Carl Billich settist á sinn stað
við píanóið og Garðar Cortes,
sem stjómar tónlistarflutningn-
um, fór að glugga í nóturnar
sínar. Herdís Þorvaldsdóttir
lagðist upp i rúmið hennar
Búbbúlfnu — hver á sinn stað
og æfing hélt áfram.
Glænska söngkonan Susanna
Brenning, sem leikur og
syngur hlutverk forsöngvarans í
sýningunni, átti frt andartak og
Vísismenn tóku hana tali rétt
sem snöggvast.
— Hlutverkið er mjög skemmti
legt, segir hún, og hefur á sér
margar hliöar. Það er talsvert
leiðandi í sýningunni. Forsöngv
arinn er oft á tíöum látinn
koma hlutunum á stað: Fá Zorba
til þess- að dansa til dæmis og
þar fram eftir götunum. Ég hef
sungið þetta hlutverk 115 sinn
um í Danmörku í sýningunni,
sem Sullivan setti upp þar.
— Hvort ertu söngkona eða
leikkona?
— Ég er óperusöngkona. —
En „Stóra leikhúsið“ sem ég
hef unnið við í Gautaborg, setur
upp iafnhliða óperur, óperettur
og söngleiki, þannig aö manni
gefst kostur á mjög fjölbreytt
um verkefnum. Það er líka
mjög skemmtilegt' að leika í
óperu annað kvöldið og í söng
leik hitt kvöldið. — Það skyldi
hins vegar enginn halda að þaö
sé eitthvað minna atriði að
kunna að syngja. þegar söng
leikur er annars vegar. Þvert á
móti geta söngvarar, jafnvel þótt
vanir séu, eyðilagt í sér rödd
ina. ef beir fara að syngja i
söngleik. — Ópera og söngleik
ur eru eins og dagur og nótt
hvað snertir alla.tækni.
T-jað er svo spennandi að hafa
” mörg hlutverk !' takinu. Ég
er vön því heima að leika á
hverju kvöldi og ‘auk þess hef
ég svo stundum skemmt á veit
ingahúsum að loknum sýning
um — Ég er ráðin hérna til
13. júnf, en þá hefiast æfingar
á skemmtiprógrammi, sem Sulli
van mun stjórna. f Kaupmanna
höfn. Frumsýningin verður 1.
júlí — ! næstu 'viku verð ég
að skreppa til Gautaborgar til
þess aö syngja á kirkjutónleik
um þar. En þar á að flytja Jó
hannesarpassfuna eftir Bach.
Og hvað gerir eiginmaðurinn,
meMii 'jaíi' á^.þéssum eilffu
ferðalöigum? .
—- Hann syngúr Iíka. Hann er
nýfarinn vestur áim haf. Viö
erum á flakki til’ skiptis. Það
blýtur ætíð að verða þannig i
svona starfi.
Þess má geta að Susanna
Brenning hefur sungið mörg ó-
peruhlutverk, meðal annars söng
hún hlutverk Cherubinos í
„Brúðkaupi Figarös“ úti í Gauta
borg.
ZC'fingar á Zorba eru auð
/‘ELj vitað margþættar, leikur,
söngur og dans. Og þaö hefur
verið unnið fram, á kvöld, iafn-
vel á sunnudögum, sagði leik-
stjórinn.
Og meðan verið var aö æfa
eitt atriði niðri á sviöinu fór
ballettmeistarinn, eöa „kóreo-
graferinn" með leikendum upp
á sal aö æfa með þeim grfska
dansa. Þau Danía Lrupska og
Roger Sullivan hafa unnið mik
ið saman og eru kunn fyrir sýn
ingar sínar í Bandaríkjunuír*.
— JH
Það er svo spennandi að hafa
mörg hlutverk í takinu, segir
sænska söngkonan Susanna
Roger Sullivan „instrúerar“ leikarana Herdisi Þorvaldsd., sem leikur þá frægu Búbbúlínu, Jón Gunnarsson, sem leikur Eng-
lendinginn unga og Róbert Arnfinnsson, sem leikur sjálfan Zorba.
0 6 0 0