Vísir - 18.05.1971, Blaðsíða 4

Vísir - 18.05.1971, Blaðsíða 4
4 t V I SI R . Þriðjudagur 18. maí 1971. Auglýsing um styrki úr Menningarsjóbi Narðurlanda Árið 1972 muil sjóðurinn hafa til ráðstöfunar fjárhæð sém svarar til urrt 59 millj. íslenzkra króna. Sjóðnum er ætlað áð styrkja norrænt menningarsamstarf á sviði vísinda, skóla- mála, alþýðufræðslu, bókmennta, myndlistar, tónlistar, léiklistar, kvikmynda og annarra listgreina. Meðal þéss, sém til greina kemur að sjóðurinn styrki, má nefna: 1. Norræn samstarfsverkefni, sem stofnað er til í éitt skipti, 8vo sem sýningar, út- gáfa, ráðstefnur og námskeið, 2. samstarf, sem efnt er til í réyrtsluskyni, enda sé þá reynslutíminn ákveðinn af sjóðstjóminni, 3. samnorræn nefndastörf, 4. upplýsingastarfsémi varðandi norræna menningu og menningarsamvinnu. Styrkir úr sjóðnum eru yfirleitt ekki veittir til verkefna, er varða færri en þrjár Norður- landaþjóðir sameiginlega. Umsóknum um styrki til einstaklinga er yfir- leitt ekki unnt að sinna. Þeir, sem sækja um styrki úr sjóðnum til vísindalegra rannsókna, þurfa að hafa í huga, að styrkir eru yfirleitt því aðeins veittir til slíkra verkefna, að gert sé ráð fyrir samstarfi vísindamanna frá Norðurlöndum að lausn þeirra Að jafnaði em ekki veittir styrkir úr sjóðnum til að halda áfram starfi, sem þegar er hafið, sbr. þó 2. lið hér að framan. Sjóðurinn mun ekki, nema alveg sérstaklega standi á, veita fé til greiðslu kostnaðar við verkefni, sem þegar er lokið. Umsóknir skulu ritaðar á dönsku, norsku eða sænsku á sérstök eyðublöð, sem fást í mennta málaráðuneytum Norðurlanda og hjá Nordisk kulturfonds sekratariat, Kirke- og undervis- ningsdepartementet, Oslo-Dep. Umsóknir skulu stílaðar til sjóðstjórnarinnar og þurfa að hafa borizt skrifstofu sjóðsins eigi síðar en 15. ágúst 1971. Tilkynningar um af- greiðslu umsókna er ekki að vænta fyrr en í desember 1971. Stjóm Menningarsjóðs Norðurlanda. skömmu var gerð könnun á at- vinnuhorfum menntaskólanem- enda í sumar og þá voru í kring um 50% ekki búnir að fá vinnu. Þessu fólki er vinnumiðluninni ætiað að hjáipa. Öllum má ljóst vera, hversu mikið alvörumál er hér á ferð- inni, og vonast aðstandendur atvinnumiðlunarinnar til þess, að atvinnurekendur og aðrir, er kunna að þarfnast vinnukrafts í sumar Iáti atvinnumiðlunina vita hið skjótasta, en hún hefur aðsetur í Menntaskólanum við Tjömina, og er síminn 16491. Tvær aukasýningar á Jörundi Þið munið hann Jörund eftir Jónas Ámason var sýnt í 100. sinn í gærkvöldi, fyrir fullu húsi áhorfenda. Ráögert hafði verið að*^^|a yiÉj ^nin^á^ leikritinu, én vegna hinnar miklu 'éftii^jurhit iðj^%kveði6 að hafa tvær aukasýningar, á þriðjudagskvöld og miðviku- dagskvöld. Á þessari mynd sést Pétur Einarsson í hlutverki Charlie Brown, eins og þeir fé- lagar koma Halldóri Péturssyni listmálara fyrir sjónir. Engir ba’^pikningar Tryggingamálaráðuneytið hef- ur sent frá sér fréttatilkynningu um bílati-yggingamálið. Segir þar að aldrej hafi til greina kom ið að fallast á neins konar bak reikninga eftir að verðstöðvun lýkur I haust. Segir að ríkis- stjórnin hafj ákveðið að skipa nefnd til að endurskoða og skipuleggja framkvæmd ábyrgð artryggingakerfis bifreiða. — Þá verður sú breyting á aö trygg ingatímabilið verður frá 1. jan- úar ár hvert í stað 1. maí. Hagstætt ár hjá KRON Síöasta ár skilaði dágóðum rekstrarhagnaði til KRON, — rekstrarafgangurinn var 1,5 millj. króna þegar afskriftir höfðu farið fram. Félagamir, sem alis era 7307, fengu alls rúmlega 2 milljónir króna í af- slátt út á afsláttarkort sín. — Vörusala félagsins var 226 millj. króna. Formaður KRON er Ragnar Ólafsson, hrl. Vinnumiðlun menntaskólanna Nú f sumar munu allir menntaskólarnir starfrækja sam ljlfe^fifýinitfumiðlun á veg- um Landss’amíiarids íslerizkra menntaskoianema. — Fyrir Œi Á að fella ríkisstjórnina „Var þetta fjöragur fundur", segnr fréttamaður Dags á Ak- ureyri um framboðsfund fram- sóknarmanna á Þörshöfn. „Og þá rann það ljóst upp fyrir mér, að Jónas Jónsson er maðurinn, sem á að fella ríkisstjórnina. Spánskt leikverk hjá Laxdælum Sennilega er leiklist óvfða eins geysivinsæl og á Islandi. Til dæmis um áhugann má nefna að Leikkiúbbur Laxdæla hefur framsýnt spánskt leikrit eftir Federico Garcia Lorca — Skóarakonuna dæmalausu — en þetta er framflutt af þeim í Búð ardal. Leikstjóri er María Kristj ánsdóttir, sem hefur getið sér gott orð fyrir ieikstjóm í Reykjavík. — Leikendur eru 1S talsins og sjáum við skóarann og konu hans sér á myndinni, þau eru leikin af Skildi Stef- ánssyni og Önnu Flosadóttur. Er þetta fyrsta verkefni klúbbs ins, sem var stofnaður í marz sl.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.