Vísir - 18.05.1971, Side 9

Vísir - 18.05.1971, Side 9
VÍSIR . Þriðjudagur 18. mai 197L „Vertíðin heldur áfram, þótt henni sé lokið — þeir komu inn hingað til Eyja rétt yfir lokadaginn en fóru svo strax út aft- ur. Þetta eru kringum 70—80 bátar sem héðan róa, allir með troll. Þeir fá hann helzt undan Ing- ólfshöfða núna, það er reytingsafli, þeir sem skást standa sig eru með þetta 10—20 tonn. Viðey in landaði reyndar ein- um 35 tonnum hér á laugardaginn". Veðrið? „Fínt maður, gæti varla verið betra. Reynd ar ausandi rigning hér í landi, en gott í sjóinn. Vertíð sem aldrei hættir Sá guli er sjaldnast öllu upplitsdjarfari en þetta, samt er hann undarlega iðinn við að snúa íslendingum kringum sig. Verst að það skuli vera 12 tíma sigling á miðin, og svo eru þeir, hátt í 3 tíma að reyta eitthvað upp. Þetta fer svo allt í ís, eða svo til allt. Að- komufölk er að mestu farið frá Eyjum, eitthvað soldið samt eftir. Vertíðin? Hún stendur áreiðanlega fram á mitt sumar eða lengur. Það voru ekki nema örfáir bátar sem stoppuðu kringum lokadaginn og ætli þeir reyni ekki að halda sig áfram við troll- ið innan tíðar“. Vlísir hafði samband við fróða menn á ýmsum stöðum hér syðra í gær og kannaði ver- tfðarmálin. Vertíðin, sem varð að engu, sögðu þeir sumfr, fisk-' aðist 30% minna en í fyrra... en það skiptir ekki höfuðmáli, við höldum bara áfram...“ Byrjaðir á humar Þeir lönduðu hér í Keflavík 1427 tonnum af fiski í 2082 sjó- ferðum. Enn eru 6 bátar héðan á netum, en þeir voru 38 yfir hávertíðina. 5 bátar eru komnir á troll, þ. e. a. s. fiskitroM, en margir eru byrjaðir með humar- troll og nokkrir með handfæri. Humarinn? Hann fæst víða. Má segja að hann finnist um al'la bugtina, a. m. k. hér undan Eldey og svo undan Jökli. Einn- ig fyrir sunnan skagann. Það á eitthvað eftir að fjölga af huffiá'rþátuntím og. Isvo' jjftu netabátar aö hyrja ^méð fiski- Keflvíkíngar hafa enn ekki getað tekið saman heildarút- komu vertíðarinnar, en gizka á að hún muni vera 30% lakari en í fyrra, „þeir landa orðið svo mifclu víðar en hér heima í Keflavík okkar bátar, þeir landa oft í Grindavík, það er soldið vont að halda þessu alveg sam- an. Aðkomufólk? Já, það var slangur af aðkomumönnum hér hávertíðina en þeir eru að mestu famir heim núna. „Ekki svo voðalegt“ „Þeir eru allir hættir Skaga- bátamir, nema einn og hann er á netum undir Jökli. Ætli hann f^ri ekki að hætta l'íka hvað líð- ur. Verbiðin var léleg, samt var heildaraflamagnið ekki, s.yo mik- ié minna en í fyrra, þar sem bátarnir voru þremur fleiri. Þeir hættu í byrjun síðustu viku hér á Akranesi og voru fram undir helgina að búa sig undir næstu törn: handfæri eða humartroll, þeir hafa svo bara haft þaö náöugt yfir helgina“. Það var heldur dauft hljóðið í Akurnesingum, en vonandi á eftir að rísa á þeim brúnin, þeg- ar þeir fara á humarinn. „Það er ómögufegt að segja hvert þeir fara á eftir honum en ekki undir Jökul, það er víst“. 1 vetur munu kringum 20 bát- ar hafa róið frá Akranesi og sóitt aðallega undir Nesiö, en reyndar víðar. Heildartölur um afla liggja enn ekki fyrir, en þeirra er að vænta alveg á næstunni. Reytingsafli við bæjardymar Vísir hafði samband við helztu löndunarstaöi um Suður- og Vesturland og var aMs staðar sömu svör að hafa: Ekki hægt að segja neitt ákveðið til um niðurstöður þessarar vertíðar, sem reyndar heldur áfram í það óendanlega, eða meðan nokkurt fæst bein úr sjó. í Grindavík landar mikiM fjöldi báta, en flestir eru bátar frá Grindavík komnir með net „og þeir eru nú bara héma rétt fyrir utan“. sögðu þeir okkur á hafnarvog- inni, „og troMbátar fara ekki mikið austar. Það er sami reyt- ingsaflinn, þetta 10 og í mesta lagi 20 tonn. Þeir fara að koma sér á humarinn einhverjir, hvað úr hverju". Jakob Jakobsson, fiskifræðing ur sagði okkur, að enn væri ekki hægt að segia til um heildarnið- urstöður vertlöarinnar, en þeirra er að vænta í dag eða á morgun, þegar upplýsinga hefur verið afl- að af öílum verstöðvum. — GG vísrnsm: — Fylgizt þér með vertíðarfrétum? Leifur Helgason, vinnuvéla- stjóri: — Frekar geri ég nú l'itiö að því. Kemst þó ekki hjá því að heyra þær með öðru eyranu, þannig aö ekki get ég sagt, að vertíðin fari alveg framhjá mér. Selma Jóhannesdóttir, húsmóðir: — Nei. ekki ég sjálf, en eigin- maður minn gerir það hins veg- ar svo sannarlega. Honum er meðfæddur áhuginn á ver- tíðinni, enda fæddur og uppal- inn í Vestmannaeyjum, þar sem allir vita allt um alla báta og aflakónga. Gunnar Magnússon, verkamaö- ur í lándi: — Já, ég fylgist með vertíðarfréttunum, þegar ég er sjálfur þátttakandi í vertiðinni — en það hef ég veriö þrívegis. Öðrum stundum fer nú litið fyr- ir því að ég fylgist með afla- fréttunum og því öllu saman. Sigurjón Kristbjömsson, tré- smiður: — Já, maður náttúrlega hlustar á vertíðarfréttirnar um leið og aðrar fréttir þó ekki sé maður að öðru leyti viðriðinn vertíðina, svona dundandi sér við trésmíðina. Einar Þór Einarsson, innflytj- andi: — Já, þaö geri ég og frek- ar nákvæmlega ekki sízt eftir að ég fór að flytja inn veiöar- færi. Nú og svo er faðir minn útgeröarmaður, svo að það er ekki nema eölilegt, að maður hlusti eftir vertíðarfréttunum.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.