Vísir - 26.05.1971, Síða 1
n
Saltstokk" kvikmynduð
Vitanlega komast ekki öll
landsins börn á „Saltstokk-há-
tíðina“ um helgina. Það er samt
engin ástæða fyrir þá sem heima
sitja að vola, það er nefnilega í
bígerð, að gera kvikmynd frá
hátíðahöldunum í Saltvfk og
jafnvel fáeinar hljómplötur líka.
Það er samt hætt við því, að
eittlhvað af skemmtuninni komist
VITRA RKLÆÐNADURMN
TCKINN FRAU A NÝ
— snjór niður i byggð i Eyjafirði — Reyk-
vikingar fengu snjóf'ól og hitastig i Rvik
fór allt niður að frostmarki
að er kominn snjór“
— Menn ætluðu vart að
trúa síuum eigin augum,
þegar þeir út um glugga
sína sáu snjódrífu \ gær
kvöldi. Áður en élinu
slotaði var komið þunnt
snjólag á göturnar, sem
fljótlega tók þó upp í
Reykjavík og nágrenni.
Blíðviðrið undanfarnar vikur
hafði vakið hjá fólki vonir um,
að í þetta sinn slyppum við við
vorhretið. Það hefur verið stillt
og milt veður sVðan um miðjan
apríl.
„Það er svo kalt noröur
undan, að menn mega ávallt
vera við slíku búnir fram yfir
mailók", sagði Knútur Knud-
sen, veðurfræðingur í samtali
við bim. Vísis. 1 veðurspánni í
morgun var gert ráð fyrir á-
framhaldandi norðanátt næsta
sólarhring og víða stormi, en
veður gengi þó niður á norö-
vesturhluta iándisins í nótt.
Á Akureyri var grátt orðið
alla leið niður byggð, en hit-
inn fór allt niöur í einnar gráðu
frost á láglendi norðanlands,
eins og í Hrútafirði, innanverð-
um Skagafirði og á Gn'msstöð-
um á Fjölium.
Snjókoma var víða um Norð-
urland og jafnvel éljagangur á
Vestfjörðum, sem teygöist suð-
ur eftir Vesturlandi.
Þegar voraði svo snemma,
eins og í ár, óttuöust menn
einmitt slíkt hret, sem gæti haft
afdrifaríkar afleiðingar á gróð-
urinn, en hann hefur tekið vel
við sér í hlýindunum undanfar-
ið. Þó hyggja menn, að þetta
verði ekki til alvarlegs skaða,
ef ekki fylgja frost þeim mun
meiri.
„Það væri hugsanlegt, að það
geröi frost, þegar kólnar svona,
— ef stilla fylgir að næturlagi
þessari norðanátt" hélt Knútur
veðurfræðingur, en menn
treysta sér ekki til að spá með
neinni vissu lengur en einn
sóiarhring fram í tímann. — GP
þó efekj tH skila í þeirri fram-
leiðslu, þvi stór má sú hljómplata
vera og löng 9* kvikmynd, sefíi
irrnihaldið getur 48 klst. pró-
gramm. Já, það er rétt, 48 klukku
tíma prógramm — það er ekld
ætflazt til að hátíðargestir taki sér
lúr nema 20 tíma alls þá fjóra
daga. sem hátíðin stendur yfir.
Með þúsund vatta diskótek-
glamri verða þeir vaktir upp klukk
an 10 á morgnana og svefnfrið fá
þeir svo ekki aftur fyrr en klukk-
an tvö eða fjögur á nóttinni, „non-
stopp“-hljómieikar pophljómsveit-
anna munu sjá fyrir því.
„Hvað eru „non-stopp“hljómleik
ar“ spurði blaðamaður Gunnar
Jökull í einfeldni sinni.......Non
stopp“ ,nú það eru bara hljómleik
ar þar sem ekkert lát verður á
hljómlistarflutningnum", svaraði
Gunnar.
Kvað hann þess verða vandlega
gætt, að ekkert hlé verði, er hljóm-
sveitaskipti eiga sér stað. „Það
ætti heldur engin ástæða að
verða til þess“, útskýrði hann. —
„Það verður jafnvel ðstaaða fvr-
ir þrjár hljómsveitir til að spila
f einu á hljómsveitarpallinum. —
Pallurinn er heldur engin smásmíði
einir 80 fermetrar í allt — eða
með öðrum orðum sami flötur og
þriggja herbergja fbúð mundi láta
sér nægja. Allt þetta pláss verður
þó fullnýtt", héit Gunnar áfram.
,,Það segir sig Iíka sjálft, að rúm-
lega eitt hundrað hljómlistarmenn
með nálægt fimm tonn af hljóð-
færum þunfa ærlegt svigrúm til
umráða". — ÞJM
Þuríður gerist stjórnandi
Konur gerast æ framtakssam-
ari í þjóðKfinu, — það er víst
krafa tímans að konurnar geri
útrás úr eldhúsunum og hasli
sér völl í störfum, sem áður
heyrðu karimanninum til.
Þessi kona stjórnar kór af
hjartans lyst, — og reyndar
munu lesendur fljótt þekkja
Þuríði Pálsdóttur, óperusöng-
konu, en á myndinnj er hún að
stjórna kór Árnesingafélagsins
í Reykjavik, sem var hér á einni
af Iokaæfingunum fyrir Færeyja
ferð ásamt fjórum einsöngvur-
um og Helga Sæm. Mun kórinn
leggja áherzlu á að flytja is-
lenzka tónlist á 6 söngskemmt-
unum sínum f Færeyjum f
næstu viku. — JBP
Tveggja ára ók bíl
móður sinnar af stað
— hafnaði loks á Ijósastaur
Tveggja ára drengur á Akur-
eyri fór í ökuferð á bifreið móð
ur sinnar i gær og ók henni eina
70 metra, áður en hún rakst á
ljósastaur, sem batt enda á ferða
lagið.
Móðir drengsins hafði skilið hann
eftij- í bílnum. meðan hún brá sér
i hús f Norðurgötu. Hélt hún sig
hafa gengið tryggilega frá bílnum,
í fyrsta gfr og með handbremsuna
á, en hins vegar hafði hún gleymt
lyklunum f ræsislásnum.
Sjónarvottar sáu bílinn næstum
stökkva af stað, en siðan rann
hann rólega yfir götuna og á ljósa
staurinn. Varð undrun jjeirra ekki
lítil, þegar þeir sáu litinn snáða
hinn státnasta við stýrið.
Við árekstúrinn skemmdist bíll-
inn töluvert, en drenginn sakaði
ekki. — GP
FJOR I FLOKKAKYNNINGUNNI
Þrír stjórnmálaflokkar kynntu sig
sjónvarpsáhorfendum í gærkvöldi,
og sá Framboðsflokkurinn fyrir
nokkru „sprelli“ í því sambandi.
Framboðsmenn gerðu gys að flokka
r.kipuninni, úlfúð og stéttabaráttu,
sem þeir sögðu að ví’ri byggð á að-
stæðum frá fyrri heimsistyrjöld og
löngu úrelt.
Eftir þetta alvarlega innlegg
brugðu þeir á glens og.^óu menn
sameinast „í flokki allra flokka
undir merki Framboðsflokksins, —
sápukúlunni". Þeir hæddust að
pólitfsfcum áróðri meö því að nota
kunnar sjónvarpsauglýsingar tll að
auglýsa flokk sinn „Ótrúlega stór“,
„Aldrei heyrt hans getið“. „En
þá verðið þér að kynnast honurn",
„Flokkurinn minn! Flokkurinn þinn!
Flokkurinn okkar“. Að lokum sam
einaðist allur hópurinn f Ijóða-
lestri.
Sjálfstæðisflokkurinn kynnt isig
fyrstur, og beindi Markús Örn
Antonsson spumingum til þriggja
ungra frambjóðenda hans, Ragnhild
ar Helgadóttur, Ellerts Schram og
Lárusar Jónssonar. Ræddu þau
stefnu flokksins f helztu málum.
— Fyrir Alþýöuiflokkinn kom fram
hópur fólks. sem gerði grein fyrir
skoðunum sínum með nokkrum orð
um. Kristmann Eiðsson beindi
spurningum til fólksins, en það
ræddi ekk; sín á milli. Þótt sú
kynning væri að Jiessu leyti „hefð-
bundnari“ í formi, var heildarsvip
ur stjórnmálakynningarinnar í gær
kvöldi léttari en menn eiga að
venjast.
I kvöld munu þrír flokkar kynna
sig þjóðinni, Framsóknarflokkur,
Alþýðubandalag og Samtök frjáls-
lyndra og vinstrf manna. — HH
Réðst á mann í fyrri-
nótt — og annan í nótt
Sami maður og tekinn var fyrir
líkamsárás f fyrrinótt, — var enn
á ferðinni i' nótt og svaf úr sér
vímuna í Hverfissteini. Hann réðst
öðru sinni á mann í nótt, — var
laus úr prísundinni fyrir fyrra af-
brotið.
Eftir að máiið hafði verið upp-
lýst f fyrrinótt og maðurinn játað
á sig verknaðinn, var hann látinn
laus, en f nótt, þegar dansleik var
lokið í Þórskaffi, réðist hann á
mann fyrir utan skemmtistaðinn.
Kom til nokkurra handalögmála,
en árásarmaðurinn stal peninga-
veski með kr. 900 af fómarlamb-
inu __ GP