Vísir - 26.05.1971, Síða 9
▼ í SIR. Miðvikudagur 26. maí 1971.
Jibbbíííí og júúhhú! — Prófin eru búin og vorið er
komið.
Grámyglulegri kuldaúlpunni og ^ungum stígvélun-
um nú fleygt út í horn, og fram er tekin skærlit
stutterma skyrtan og fisléttir strigaskórnir.
pað er eins og hvert borgarbarn sé samhuga í því
að nú skuli skvett rækilega úr klaufunum. Hver
sólardagur skal nýttur til hins ýtrasta, svo að bætt-
ur verði upp hver innisetudagur í vetur.
Nú er tíminn til náttúruskoðunar, hreiðurleitar og slíkra hávísindalegra rannsóknarleið-
angra.
Náttúran sjálf hefur lagzt á
þessa sveif. Tíðin hefur verið upp
á það bezta, hlýtt og bjart í
veöri, og gróðurinn hefur tekið
svo fljótt við sér, að grasbalar
eru fyrir löngu orðnir græpir
og loönir og tvær vikur síðan
tré laufguðust.
Sólyermdar gangstéttimar fyll
ast af bömum ,sem laus em við
þunga troðful'lrar skólatösku,
bregða sér í parís og snú-snú.
Og fram brjótast öil ærslin og
leikimir, aem bæld vom niður
í skólastofunum. — Reiðhjólin,
sem aöeins vom til trafala í
snjórium í vetur, eru nú tekin
út, smurð og lagfærð, og bera
nú eigendur sína um allar jarð-
ir. Hjó'.akaupmenn hafa ekki
undan að seðja hungur hálffer-
tugra stráka og stelpna, sem
ólm vilja komast á bak hjól-
hestunufn. Þessi heppilega að-
ferð til þess að samræma úti-
vist, hreyfingu og skjóta yfir
ferð, er ekki lengur einskorðuð
við unglinga. Bldri hafa upp-
götvað hana Wka. Menn eru
loks búnir að sjá, að seta inni
í steikjandi svækjunni í fjöl-
skyldubflnum er ekki yndisleg
asti mátinn við að njóta sólar
og sumars.
Bezt hafa þeir komiö ár sinni
fyrir borð, sem útvegað hafa
sér eða sínum dvöl í sveit í
sumar. Þótt borgin lifni við
hækkandi sól, spornarhún ekki
við aðdráttarafli náttúmlífsins.
Margra ára dvöl á mölinni nær
ekki að þurrka út sælar endur-
minningar úr sveitalífinu, og
enn er ofarlega á blaði uppeld-
isfræðinnar gamla reseptið á
umgengni bama við húsdýrin.
ófáir taka sér gagpgert ferð
og leikirnir, sem bæld voru niður í kennslustofun-
st nú fram.
á hendur til að sýna börnum
sínum nýfædd lömbin hoppandi
f haganum. Þeir, sem ekki koma
því við, bæta börnunum sínum
það upp með heimsóknum í
Sædýrasafnið, þar:semutveir pý
fæddir hreinkálfar leika hluiv
Vérk:nláinlbanna. Og tengt’ þa^f
ekki að fara út fyrir bæinn til
þess að komast á varpfuglasvæði
í hreiðurleit og fleiri ævintýri.
Á meðan sumir verja vorbiíð
unni til þess að skoða umhverf
ið ögn nánar, eru aðrir á kafi
í önnum við hirðu sinna einka
sælureita. Garðeigendur pæla
upp garða sína og búa þá und-
ir niðursetningu nytja- og skrúð
jurta. Sumarsælunnar fá þeir
fvrst notið, þegar þeir hafa lagt
sig nægilega fram vy5 að erja
jörðina. Hvem hlýjan vordag
líta þeir búmannsaugum og meta
sól og hita eða vætuna með til
liti til vaxtarskiiyrða og rækt-
unarmöguleika.
Frá þeirra sjónarhóli hefur
þetta verið gott vor. Aprfl h'lýrri
en í meðallagi og bað sem af er
maí líka, enda hafa sumir garð
eigendur séð sig knúna til þess
þegar að slá garöa sína, þó
ekki tj’l heyhirðingar.
í hópi þeirra, sem þeytast um
þjóðvegina hverja helgi núna, eru
sumarbústaðaeigendur. sem vilja
lappa upp á sumarhús s’in eftir
veturinn, áður en þeir taka sér
hvild frá brauðstritinu og setjast
þar aö með fjölskyldurnar.
Eklci nota allir yortímann til
undirbúnings og áætlanagerða
fyrir sumarleyfin. Sumarið er
hjá mörgum aðaltekjuöflunar-
tfmabiiið, sem nota verður vel.
Skólafólk er á sífe'.Idum þön-
urp milli atvinnurekenda, leit-
andi sér að sumarvinnu, sem
skapar grundvöllinn undir áfram
haldandi nám næsta vetur. Á
þessu vori eru atvinnuhorfur
þeirra góðar. Þeim, sem aflavon
ir brugðust á vetrarvertíðinni,
hefur glæddur afli í vor bætt
vonbrigðin, og þeir hafa öðlazt
nýjar vonir fyrir komandi sxnnar
vertíð, og leita sér að plássi
á pýjum aflaskipum.
Fyrirtæki, sem hvergi gátu
fengið strák í þaust tll sendils-
starfa, sitja nú uppi með fjölda
umsækjenda, sem fyrir löngu
eru orðnir uppiskroppa meö alla
vasapeninga. Blaösöludrengir
eignast í einni svipan fjölda
nýrra keppinauta. sem kvikir
•í spori eftir hvíldina á skóla-
bekkjunum þreyta, við þá kapp
hlaujx. á móti hyerjuni viðskipta
virif,' sérií’l!irtisí' 8 götuhornum.
Allir fara á kreik. — Meðal
þeirra, sem hreyfing er komin á,
eru stjömmálamennirnir, því
aö þetta vor er gengiö til kosn-
inga. En Mkt og höfuðskepnurn
ar hafa stýrt veðráttunni mildri
hendi, hefur kosningaveðrið til
þessa verið milt og stillt, —
ólíkt því sem veriA,hefur.mörg
hin fyrri kosningavorin.
Og vorið boðar sumarið ■— eft
ir öllu að dæma bjart og gott.
— GP
Þeir, sem ekki komast til þess að sýna börnunum sínum
nýfædd Iömbin í högunum, bæta þeim það upp með heim-
sókn f Sædýrasafnið, þar sem nýfæddir hreinkálfar eru ba
alltént sárabót.
orið
kallar
alla a
kreik