Vísir - 26.05.1971, Side 13
13
V1 S IR . Miðvikudagur 26. maí 1971.
•— teikningai' eins eftirsóttar og húsgógnin á
kaupstefnunni i Kaupmannahöfn
„Tjað, sem vakti athygli mina
var, að það eru margir,
sem vilja kaupa teikningar frá
okkur, teikningar frá íslenzkum
arkitektum,“ sagði Orri Vig-
fússon hjá Félagi ísl. iðnrekenda
f viðtali við Fjölskyldusíðuna
um húsgagnakaupstefnuna í
Kaupmannaiiöfn, en hann er
nýkominn utan úr þeirri ferð.
Eins og skýrt var frá á síðunni
fyrir nokkru kom fram allhörð
gagnrýni um þau húsgögn, sem
þama voru sýnd, þó ekki þau
ísienzku sérstaklega. Danskur
gagnrýnandi talaði um húsgögn,
sem ekki væru gerð fyrir fólk.
Hér á íslandi hafa kaupendur
ekki þurft að kvarta undan stíl-
brögðum framleiðenda heldur
fremur hinu, einhæfninni, og
nokkur brestur virðist hafa ver-
ið á samvinnu íslenzkra arki-
tekta og húsgagnaframleiðenda
fram á síðustu ár þótt það sé
að breytast. Það hefur iöngum
verið talað um, að teikningar
vaeru fengnar erlendis frá og
húsgögn hér framleidd eftir
þeim — þess vegna er það
gieðöegt, þegar íslenzk hús-
gagnateiknmg hlýtur góðar und-
irtektir eins og gerðist á kaup
stefnunni ii Kaupmannahöfn. Og
ef hugsunarhátturinn breytist
ekki þvi meir hér gæti það hent
sig, að einhver íslenzkur hús
gagnaframleiöandi líkti eftir
húsgagni, sem væri hannað af
íslendingi en seit á érlendum
markaði — en sennilega á það
ekki eftir að koma fyrir.
Auðvitað er íslenzk teikning
valin á þau húsgögn, sem á að
selja og sýna erlendis og eins
verður það vonandi um innan-
landsmarkaðinn. Til þess að
kynnast húsgagnaframleiðslu er-
lendis fóru húsgagnaframleiðend
ur í kynnisferð til Noregs ný-
lega og kynntu sér húsgagna-
framleiðslu á Sunn-Mæri.
Orri sagði einnig: „Ég geri
ráð fyrir því, að í framtiðinni
verði jafnmikil sala á húsgagna
teikningum og húsgögnum“. Orri
bætti þVi við, að íslenzku hús
gögnin hefðu yfirleitt þótt nokk
uð dýr eins og við hefði verið
að búast en hins vegar hefði
verið ánægja með vinnu og
form. Og hann telur samvinnu
framleiðenda og arkitekta
húsgagnaiðnaðinum mjög heppi
lega.
TTaukur Björnsson hjá Félagi
íslenzkra iðnrekenda sagði
eftir ferðina til Noregs. ,,Það
vantar þá breidd í íslenzkri
húsgagnaframíeiðslú, Wm við
sáum þama í Noregi. Hér er
ekki um það að ræða að ung
hjón geti keypt sér húsgögn í
I.itla fbúð fyrir 100 þúsund krón-
ur, sem þau geta síðan losað
sig við eftir nokkur ár, þegar
efnahagur og rýmri aðstæður
leyfa það. í Noregi voru hús-
gögnin allt frá mjög vönduðum
og dýrum húsgögnum niður 'i
ódýr húsgögn og allir fiokkar
þar á milli. Hér er meðalteg-
undin fremur valin.
Við urðum líka varir við þaö,
að stærð fyrirtækjanna birtist
ekki í starfsmannafjölda heldur
afkastagetu hvers starfsmanns.
Þetta hefst með sérhæfingu og
er norskur húsgagnaiðnaður
miklu sérhæfðari en hér er.
Hér vantar sérhæfinguna t. d.
gæti eitt fyrirtæki sérhæft sig
í stólum af vissri gerð, annað
í borðum, hið þriðja í bólstruð
um húsgögnum. Eins og er
framleiða merin 5 stykki af
þessu og 5 stykki af hinu og
verður þaö svo óhagbvæmt.
Hönnunin hefur verið vandamál
hér, það hefur verið brotalöm
milli framleiðenda og hönnuða.
Með meiri sérhæfingu ætti hús-
gagnaframleiðendum að vera
kleift að kaupa teikningar af
húsgagnaarkitektum. Það eru
mögu'eikar á mikilli hagræðingu
hér í húsgagnaiðnaðinum og
aðstaðan verður að versnamjög
mikið til þess, aö íslenzk hús-
gagnaframleiðsla sé búin að
vera.“
„Þaö er dálítið skrýtið ástand-
ið á Norðurlöndunum núna í
húsgagnaframleiðslu," sagði
Orri. „Það eru svo óskaplega
margir framleiðendur og Svíar
virðast t. d vera að minnka
við sig — hins vegar virðist
vera mikil gróska hjá Finnum
og mér fannst framleiðsla
þeirra vera langskemmtilegust.
Danimir, mér finnast þeir ekki
gera meira en að standa í stað.“
Orri sagði, að það yrði frem
ur þungur róður fyrir ís-
lenzka húsgagnaframleiðslu
næstu tvö til þrjú ár að kjmna
sig erlendis, en þar á móti vega
hinar góðu undirtektir, sem is-
lenzk hönnun fékk á kaupstefn
unni í Kaupmannahöfn. —SB
Sýnishom af íslenzkri húsgagnaframleiðslu og hönnun — úr einum básanna á kaupstefnunni í Kaupmannahöfn.
VÍSIR VÍSAR Á VIÐSKIPTIN
tfnnbítt •••
LANDSHAPPDRÆTTI
SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS
Nýtt!
Fairline
eldhúsið
Fairline eldhúsið er nýtt
og það er staðlað. Eín-
göngu notuð viðurkennd
smíðaefni og álímt harð-
plast í litaúrvali. Komið
með málið af eldhúsinu
eða hústeikninguna og
við skipuleggjum eldhús-
ið og teiknum yður að
kostnaðarlausu. Gerum
fast verðtilboð. Greiðslu-
skilmálar. Fairline eld-
húsið er nýtt og það er
ódýrt.
Óðinstorg hf.
Skólavörðustíg 16
Sími 14275
*
Hvítasunnuferðir.
1. Snæfelisjökull
2. Þórsmörk.
Faa-rmðar á skrifstoifunni, Öldu-
götu 3. Símar 19533 og’ 11798.