Vísir - 05.06.1971, Qupperneq 2
'JifrzP*#*'# fjg&ér1
Afkastamesti morBingi aldariimar,
Juan Corona, grunaiur um 36 morB
Hún keypti
sér eigin-
mann fyrir
2 milljónir
en nú eru peningarnir
þrotnir og skilnaóur
fyrirhugaóur
• Hjónin Tom Payne og kona
hans Esther, fædd Delhanty,
eiga nú í skiInaSarmáli, vegna
þess að peningar Estherar eru
gengnir til þurrðar, en það var
vegna peninga, sem þau giftust
í upphafi.
Hún var 66 ára gömul af banda
rískum ættum, og stóð til að erfa
mikil olíuauðæfi.
Hann var 33 ára af fátæku
ensku lágstéttarfólki, hafði setið
í farigelsi og átti ekki bót fyrir
boruna á sér.
Þau hittust á skemmtisiglingu
á Karabíska hafinu. Esther var
farþegi á fyrsta farrými, þar sem
Tom var þjónn.
Hún bauð honum í mat, og
hann þekktist boöiö. og honum
smakkaðist vel kampavínið og
krásimar. Yfir eftirréttinum bað
Esther hann um að kvænast sér.
Fyrir það bauðst hún til að greiða
honum tvær milljónir króna út
í hönd og síðan sex milljónir til
viðbótar með afborgunum.
Tom hugsaði sig um til morg-
uns, og þekktist þá bo,ðið, en eitt
skilyrði setti hann þó í hjúskapar
samninginn. Hann tók það skýrt
fram 'að um venjulegt hjónasam-
líf yrði aldrei að ræða þeirra á
milli.
Esther samþykkti það. Hún var
aðallega á höttunum eftir myndar
legum Englendingi, sem kynni
fallega framkomu, svo að hún
gæti kynnt hann sem eiginmann
sinn fyrir öðru fólki.
Síðan þá í sjö ár hafa þau
búið saman. svona yfirleitt, þótt
Tom hafi horfið stöku sinnum til
að skemmta sér. En nú eru pen-
ingarnir búnir, og þvi ekkert sem
tep-f’ír þau lengur.
Esther getur fengið nóg af pen
ingum hjá fjölskyldu sinni — fyr-
ir sjálfa sig, ef hún losar sig við
Tom, Og Tom lítur svo á, að nú
séu sér allir vegir færir. einkum
og sér 1 lagi, ef hann er ekki
lengur eiginmaður Estherar. Þess
vegna eru þau nú samtaka um að
. leita eftir skilnaöi.
Hvorugt þeirra segist sjá eftir
neinu. Esther kveðst hafa fengið
fullt verðmæti peninga sinna —
og Tom — hann fékk peninga
Estherar. 1
TjMtt hroðalegasta morðmál tutt-
ugustu aldarinnar er nú að
koma fram í dagsljósið. í bæn-
um Júba í Kaliforníufylki í Banda
ríkjunum hefur tuttugu og eitt lík
verið grafið upp til þessa.
í grunnum dysjum hafa líkin
fundizt í einkennilegri stellingu
með útrétta arma, eins og um ein-
hverja furðuiega helgisiðagreftrun
hafi verið að ræða.
Lögreglumenn á staðnum segja,
að ennþá eigi þeir von á að
finna fjölmörg lík til viðbótar.
„Við gizkum ekki á neinar endan
legar tölur,‘“ segja þeir, „en það
getur verið að við hættum leit-
inni þegar 36 lík eru komin fram
í dagsljósið."
Juan Corona — góður kaþól-
ikki og fyrirmyndar fjölskyldu
faðir.
Maðurinn, sem hefur verið hand
tekinn, grunaður um morðin, heit-
ir Juan Corona og er 37 ára gam
all, og hefur starfað við atvinnu-
miðlun handa landbúnaðarverka-
mönnum. Fyrir þremur mánuð-
um var honum þverneitað um
sveitarstyrk á þeim forsendum, að
kringumstæður hans gæfu ekki
tilefni til slíks.
Fórnarlömbin, sem fundizt
hafa, eru allir landshornamenn,
sem annað slagiö hafa unnið sem
landbúnðarverkmenn, en hafa
fengið sveitarstyrk.
„Ekki get ég fullyrt, að það
sé ástæðan fyrir morðunum," seg
ir lögreglustjórinn í Júba, Roy
Whitaker. „En það er staðreynd."
Hinir myrtu voru allir stungn-
ir £ brjóstið, og skyrtur þeirra
voru dregnir upp yfir höfuð.
Oanahöggið hefur veriö veitt
með þungri sveðju, og lög-
reglan kveðst hafa fundið eina
slíka, sem gæti verið morðvopnið
í bifreið Juans Corona. Lögreglan
segist einnig hafa fundið blóð-
blettaða kylfu á sama stað. Tvær
kvittanir stílaðar á Corona fund-
ust I einni gröfinni.
Nágrannar Coronas segja. að
hann hafi haft það fyrir sið að
fara snema á fætur og ganga út
að staðnum, þar sem grafirnar
fundust.
„Hann var alltaf rólegheita mað
ur, og ég hélt, að hann væri bara
að viðra sig,“ sagði einn nágrann-
anna. „Nú sé ég, að hann var ef
til vill grunsamlega rólegur."
1 Kalifomíu em fjöldamorð
ekki óalgeng. Charles Manson hef
ur verið fundinn sekur um sjö
morð, og mál hefur verið höfðað
gegn honum fyrir tvö til viðbót-
ar. Hinn svonefndi „Dýrahrings-
morðingi" („Zodiac Killer")
framdi 13 morð og leikur enn
lausum hala. Dr. Victor Otha,
kona hans, tvö böm og einka-
ritari, voru myrt af ófundnum
morðingja, sem fleygði Ifkunum
í sundlaug dr. Othas. En til þessa
er sá morðingi bandarískur, sem
flest morð hefur á samvizkunn',
Charles Whitman. sem skaut 16
manns til bana og særði 32 að
auki, þaðan sem hann hafði búið
um sig í tumbyggingu háskóla
eins £ Austinborg i Texasfylki.
TVTú er svo komið, að varðandi
óskiljanleg og hryllileg mann
dráp hefur Kalifomía tekið for-
ustuna.
Juan Corona kom til Kaliforníu
frá ættlandi sfnu, Mexfkó, til að
vinna fyrir sér í hinum gróður-
sælu dölum Kaliforníu. sem nefnd
hefur verið „ávaxtaskál Amer-
íku“.
Fyrir fimmtán áram var Corona
skráður „tæpur á geðsmunum".
Nú lítur út fyrir, að nafn hans
verði kunnugt langt út fyrir enda-
mörk þess eyðilega bæjar Júba,
þvf að nafn hans veröur skráö
í annála glæpafræðinnar.
Af fómarlömbum hans hafði
eitt þeirra 32 sent f vasa sínum,
annaö hafði níu dali. Önnur fóm-
arlömb höfðu svo að segja ekki
neitt, nema hvað eitt þeirra var
í þrennum buxum.
En það telst ekki skrýtið í sam-
félagi, þar sem einkennilegir
menn eru daglegir gestir, sérvitrir
landshomamenn, sem hafa komið
til bæjarins til að vinna sér inn
fáeinar krónur á skömmum tíma
í lausamennsku og ígripavinnu.
Á fáeinum dögum hefur lík-
grafarinn í Júba haft meira að
gera en venjulega á heilu ári, því
að í bænum létust aðeíns 15
manns síðasta ár.
Meðan allur heimurinn talaöi
um hina voðalegu atburði, sat
hinn ákærði þögull og rólegur í
klefa sínum.
„Ég mun aldrei trúa þessu,“
sagði Gloría, kona hans. „Hann
fór aldrei illa með mig og hann
var góður við bömin okkar. Ég
get ekki skilið þetta.“
Pedro Corona, elzti bróðir hans
segir: ,,Hann er beztur af bræðr-
um mfnum. Hann er góður kaþól-
ifcki. Hann sendir móður okkar
meiri peninga, en nokkur okkar
hinna.“
Ray Duran. verkstjóri, sem átti
Það var aldrei kvartað undan
honum.
„Hann var sanngjarn maður,“
sagði einn verkamaðurinn. „Hann
stóð við það, sem hann sagði.“
Og þrátt fyrir, að Corona
virðist ekki vera hættulegur mað-
ur. en hann fylgdist mótþróalaust
með lögreglunni, sem kom til að
handtaka 'hann, þá er Roy Whitak
er, lögreglustjóri, algerlega sann-
færður um sekt hans: „Þetta er
réttur maður. Við höfum náð í
sökudólginn."
[ bænum, þar sem búa um
14.000 manns, af öllu tagi,
bæði vinnusamt fólk og líka
drykkfelldir iðjuleysingjar, virð-
ast virðast nú skyndilega aHir
þekkja Juan Corona.
Lögreglumenn í Júba grafa eftir líkum.
samstarf við Corona, segir:
„Hann var þægilegur maður. Ekki
sérlega vingjarnlegur. Stundum
átti hann það til að reika frá
einn síns liðs, en ég sá aldrei
bera á neinni ofbeldishneigð hjá
honum — aldrei!“
‘C’nginn f Júba ha!lmælir Cor-
ona. 1 Júba er engum h’all-
mælt. Fólk hefur ekki efni á að
tala illa um aðra. Bærinn er fá-
tækur og þar ríkir eymd, þótthann
sé aðeins f um 50 kílómetra fjar-
lægð frá Sacramento. höfuðborg
Kaliforníufylkis.
1 bænum eru margir verka
menn, sem flakka um, og þegar
þeir eru ófullir og ekki staddir
V einhverri af hinum 54 knæpum
í Júba geta þeir unnið sér inn
um 1000 krónur á dag við að
tína ávexti á ekrunum.
Þessir menn sáu Juan Corona
fyrir lífsviðurværi, því að hann
rak atvinnumiðlun, þannig að
hann sá ávaxtaræktarbændum
fyrir verkamönnum, og fékk f
staðinn 10 til 15% af kaupi
þeirra.
Að minnsta kosti hefúr fótUdð
nú um annað að tala en veðrið,
ávaxtauppskeruna eöa þar fram
eftir götunum.
Landbúnaðarverkamennimir í
Júba eru skyndilega komnir í
sviðsljósið. Það getur verið, að
fjöldinn allur af félögum þeirra
liggi f fljótteknum gröfum, en
þeir eru enn í fullu fjöri.
„Sæll. Alli, hvernig gengur“
segir einn þeirra við kunningja
sinn. „Það er svoldið síðan ég
hef ég séð þig. Ég hélt hann hefði
kannski stútað þér.“
En á Pálmabarnum situr hávax
inn, fámáll maður, sem venjulega
drekkur mjólk, en drekkur nú
viskf. Eftir nokkur glös segir
hann'við barstúlkuna: „Þessi Ju-
an. Hann vildi fá mig í vinnu.
Og það munaði engu, að ég færi
í vinnu til hans.“
Og sem stendur situr þessi
Juan Corona f varöhaldi, grunað-
ur um að minnsta kosti 36 morð.
Ef hann verður sekur fundinn
telst hann vera afkastamesti morð
ingi aldarinnar — að hermönnum
að sjálfsögðu undanskildum.