Vísir - 21.07.1971, Page 3
I
VlSIR. Miðvikudagur 21. júlí 1971.
I IVTORGUN UTLÖNDÉ MORGUN UTLÖND I MORGUN UTLOND I MORGUN UTLÖND
„Óvenju væg tilfelli, ef
um kóleru er uð ræðu"
— Spánverjar tilkynna alþjóðlegu heilbrigðis-
málastofnuninni, að kólera kunni að vera
komin upp i Aragonhéraði
Heilbrigðisyfirvöld á Spáni
hafa tilkynnt alþjóðlegu
heilbrigðismálastofnun-
inni í Genf, að komið hafi
Geimfararnir, sem munu fara með Apollo 15 til tunglsins
Irwin, Worden og Scott.
Tunglferð á
mánudag
Apollo 15 á að hefja för sína til
tungls á mánudag. Meiri spenna
er um feröina en oftast hefur ver
ið vegna Ijins sviplega dauða sov-
ézku geimfaranna fyrir tæpum
má.nuði.
Þeir Díivid Scott 39 ára, Alfred
Worden 39 ára og James Irwin 41
árs, munu hafa með sér „tunglbfl“
tii að geta athafnaö sig betur. Þeir
munu dveljast á tungli lengur en
nokkrir fyrirrennarar þeirra og fara
úr geimfarinu í þrjár rannsðkna-
ferðir, en aðrir hafa aðeins farið
tvær. — Litasjðnvarp verður frá
„tunglgöngum“ þeirra.
Wilson ævareiður
— Hótar að koma sjálfur á aga i Verkamanna-
flokknum — Sundrung um afstöðuna til EBE -
Harold Wilson foringi Verka-
mannaflokksins brezka reynir að
skapa einingu í flokknum, en flokk
urinn er mjög sundurþykkur í af-
stöðunni til Efnahagsbandalagsins.
Roy Jenkins fyrrum ráðherra
Wilsons er honum óþægur
Wilson skammaði í gærkvöldi þá
forystumenn flokksins, sem hann
sagði að hefðu flutt ræöur, sem
hefðu verið notaðar gegn flokknum.
Wiílson er ekki ánægður með þá
skilmála, sem Bretar hafa hlotið hjá
EBE. Hins vegar hefur varaformað
ur þingflokks Verkamannafiokksins
Roy Jenkins sagt, að hann telji skil-
málana viðunandi.
Wilson kvaðst mundu koma á
aga í þingiflokknum, ef aðrir gerðu
það ekki.
Hann reiddist mjög að blöð skyldu
hafa komizt að því, hvaö Jenk-
ins fyrrum ráðherra hafði sagt á
fundi í þingflokknum daginn áður.
Wilson sagði, að þessi ,,leki“ frá
leynilegum fundum flokksmanna
„væri ekki sá fyrsti“, sem orðið
hefði.
upp sjö tilfelli af sjúkdómi
í Aragonhéraði, sem kunni
að vera kólera.
Læknum hefur enn ekki
tekizt að finna, hversu
hættulegur þessi vírus sé,
en hann hefur valdið ein-
hvers konar kveisu í þorp-
inu Epilea.
Hjúkrunarlið hefur haldið á bif
reiðum til héraðsins, og allt er gert
til að koma þangað nægu bóluefni
við kóileru.
Formælandi heHbrigðismálastofn
unarinnar í Genf sagöi í gærkvöldi
að þetta væru augsýnilega miklu
vægari tilfelli af kóleru en yfirleitt
gerðist, ef þama væri á annað borð
um kóleru að ræða.
Einnig var bent á, að þeir, sem
veikir eru, búa f því héraði Spánar
þar sem heilbrigðiseftirlit og hrein
læti er á lægstu stigi.
Veikin viröist ekki hafa breiðzt
út frá þessum afskekktu þotpum.
Umsjón: Haukur Helgason
Sýrlendingar
saka Jórdani um
/
manndráp
Sýrlendingar sökuðu Jórdani f
gær um að hafa varpað sprengjum
á bæinn Deraa og þorp við landa
mæri ríkjanna. Segja Sýrlendingar,
að þetta hafi gerzt á mánudag, og
manntjón hafi oröið.
Sýrlendingar hafa kvatt heim®"
hernóðarlega sendinefnd, sem var í
Jórdaníu I mótmælaskyni við af
stöðu stjómvalda f Jórdaníu til
skæruliða í landinu. Sýrlenzka
nefndin hafði verið í Jórdanfu til
að reyna að miðla málum í deilum
stjórnvalda og skæruliða Palestinu
araba.
Dobrynin fékk að heyra um til-
gang Kínafararinnar.
Rogers segir
Dobrynin frá
tilgangi
Nixons
William Rogers utanríkisráðherra
Bandarfkjanna ræddi í gærkvöldi
við sovézka sendiherrann Anatolij
Dobrynin og skýrði honum frá til-
gangi Nixons með því að taka heim
boði kínverskra kommúnista.
Þetta eru fyrstu fundarhöld hátt
settra manna ríkjanna, síðan Nix
on lýsti yfir þeirri ákvöröun að
fara til Kfna. Rogers og Dobrynin
ræddust við í 35 mínútur.
Áttunda
jafnteflið
Sovézku stórmeistararnir Tigran
Petrosjan og Viktor Kortsnoj
sömdu um jafntefli f áttundu skák
inni f einvígi sínu. Þar með er stað
an enn jöfn, 4 vinningar fyrir
hvom.
Allar skákir þeirra hafa orðið
jafnteffi og báðir eru þeir sagðir
hafa teflt mjög varlega. í skák-
inni í gær var jafntefli samið eftir
aðeins 16 leiki.
Ef þeir verða enn jafnir eftir 10
skákir, verða tefldar ailt að sex
skákir ttl viðbótar. Sá, sem fyrst
vinnur skák verður síðan talinn
hafa unnið einvfgið og mætir Bobby
Fisoher, segir norska fréttastofan
NTB.
@ Frú Bandaranaike gerir grein fyrir mr ifalli.
1200 FELLU A CEYLON
1200 biðu bana í bylting
artilraun maóista á Ceylon
í apríl síðastliðnum, að
sögn frú Bandaranaike for
sætisráðherra í gær.
14 þúsund maóistar úr svokall-
aðri frelsisfylkingu alþýðunnar eru
í fangelsum eftir hina misheppnuöu
tilraun.
Eignatjón, sem varð í átökunum
er metið á rúmlega tvo og háifan
milljarð fslenzkra króna.
Það voru ungmenni úr sveitum
maóista sem gerðu uppreisn '-gegn
stjórn Ceylons, en rikisstjórnin er
vinstrisinnuð. Hin róttæku ung-
menni gerðu áhlaup á lögreglu-
stöðvar vfðs vegar um landið, en
stjórnarliðar náðu fljótt yfirhönd-
inni og bældu uppreisnina niður.
T