Vísir - 21.07.1971, Side 13
VlSIR. Miðvikudagur 21. júlí 1971.
13
Og sandkaka meS kafíi
— Fjölskyldus'iðan kannar kaffi og meðlæti á
veitinqasfóðum i nágrenni borgarinnar
— Molakaffi frá 20-50 kr. — Kaffi og
kökuskammtur frá 80-110 kr.
JJvort tieldur það er útlending-
ur eða íslendingur, sem
ætlar að koma við á veitingastað
utan borgarinnar og fá sér kaffi
og meðlæti er hann viss um að
fá sandköku eða jólaköku með
kiaffinu. Þessar kökutegundir
virðast vera eftirlætisbakkelsi ís
lendinga, ef fara á eftir listan-
um um kaffibrauð, sem veitinga
húsin utan borgarinnar bjóða
upp á. Þessi listi er fábrevttur
mjög, auk sandkökunnar og jóla
kökunnar er viðast hvar boðið
upp á eitthvað af eftirfarandi,
brúnköku, kleinur, hvíta tertu
(þessa með sultunni á miili) og
rjómapönnukökur eru á boö-
stólum á flestum stöðum. Á ein
staka stað er boðið upp á smá-
kökur. Einnig mi fá smurt brauð
víðast hvar. Verð er mismun-
andi en ekki mikill verðmismun
ur nema tiliit sé tekið til stað-
hátta og þjónustu.
Fjölskyldusíöan hringdi á
nokkra veitingastaði í nágrenni
borgarinnar og spuröist fyrir um
hvað væri á boðstólum af þessu
tagi og um verð. í þetta sinn get
um við aðeins um verðið á kaffi
og meðlæti, það er kaffibrauði.
■Vtið byrjum á Geithálsi, sem
’ er næstur borginni. Þar
eirts og Viðast annars staðar
hefur aðsókn gesta verið mikil
í sumar og hefur góða veðrið
haft sitt að segja um það. Þar
kotstar molakaf-fið borið fram í
könnu eins og alls staðar ann-
ars staðar, 20 kr. Þar fæst
smurt brauð og svo samlokur
á 30—35 kr. stk. Kökumar
kosta 15 kr. stykkið og eru þrjár
tegundir af þeim jólakaka, brún
kaka og hvít terta auk sand-
kökunnar.
Næsti staður er Skíðaskál-
inn í Hveradöilum. Þar kostar
molakaffið 35 kr., en kaffi með
bak'kelsi 85 kr., stundum eru til
pönnukökur með rjóma en ann
ars venjulegt meðlæti, a'Wt heima
bakað.
Næst snúum við okkur að veit
ingastofunni í Krýsuvík, sem er
núna starfrækt þriðja sumarið í
röð. Þar kostar molakaffið 30
kr., en kaffi, sandkaka, jóla-
kaka og kleinur 80 krónur.
Kaffi með rjómapönnuköku
og hinum kökutegundunum, sem
framreitt er fyrir útlending-
ana, sem koma þar í hópum
þrisvar í viku kostar 100 kr.
Snittubrauð er hægt að fá þar,
ef það er pantað fyrirfram.
Tjá erum við komin til Þing-
valla. Á Hótél Valhöll kost
ar molakaffið 50 kr. Kaffi með
kökum 110 kr. Kökurnar eru
rjómapönnukökur, jólakaka og
smákökur.
í Hveragerði eru þrír veit-
ingastaðir að velja á milli, ef
maður ætlar að fá sér hressingu,
kaffi, te og kökur. Molakaffið
kostar 30 kr. í Hótel Hveragerði.
Kökuskammturinn kostar 70 kr.
og kostar kaffi og kökur sam-
taJs 90 kr. Þar er bakkelsið
rjómapönnukaka, kleinur, jóla-
kaka, smákilkúr og hvít terta.
1 Bláskógum 2 rekur Hallfríð
ur Pálsdóttir litla kaffistofu í
óvenjulegu umhverfi. Hún hellir
upp á könnuna sjá'lf og kostar
molakaffið 35 kr. Kaffi með kaffi
brauði, rjómapöinnuköku og
„tveim stykkjum af því, sem
ég á til“ kostar 90 kr. Með-
lætið eru kleinur, sandkaka,
terta m. a.
Heilsuhæli NLFÍ býöur ekki
upp á kaffi, en þar er hægt að
fá te og bakkelsi al'lt úr heil-
hveiti-hvítt hveiti er ekki notað
á þeim stað. Te og heilhveiti-
bollur og heilhveitikex kostar
30 kr. á virkum dögum en á
sunnudögum er haft meira við
og boðiö upp á heilhveititertu
og kostar te og meðlæti þá 50
kr.
Gelfoss er næsti áfangastaður.
Molakaffið kostar 35 kr. í
Tryggvaskála og kaffi með kök-
um 90 kr., meðlætið er form-
kökur og smákökur.
Á Hótel Selfoss, hinum meg
in við götuna, kostar molakaff-
ið það sama 35 kr., en kaffi og
kökur 100 kr. Meðlætið er rjóma
pönnukaka, kleinur eöa lagkaka
og formkaka
í Þrastalundi endum við ferð
ina, södd á kaffi og formkök-
um — en þar fæst þó ótakmark
að molakaffi fyrir 30 kr. Kaffi
með kökum, kostar hins vegar
110 kr. og eru kökutegundimar
mismunandi að sögn. Og þar
eins og á þeim stað, sem við
byrjuðum á hefur verið mikiH
straumur ferðafólks — og það
gerir veðrið. — SB
Unglingarnir kjósa frernur „pulsu meö öllu“ en kaffi og kökur
vtsm i í VII KUI LOKIN
HAh IDBÚK i mmmmm11 HÚSh lÆD mmmm RANNA
VISIR I VIKULOKIN
fylgir aðeins til fastra áskrifenda.
Vönduð mappa getur fylgt á
kostnaðarverði.
VÍSIR í VIKULOKIN
>
er orðin 360 sfðna litprentuð bók í fallegri möppu,
sem inniheldur allt sem viðkemur konunni og
heimilinu.
VÍSIR í VIKULOKIN
er afgreiddur án endurgjalds frá byrjun
til nýrra áskrifenda.
(nokkur tölublöð eru þegar uppgengin)'