Vísir - 21.07.1971, Blaðsíða 16
Fórst af Esjunni gömlu
Einn Islendinganna á Esjunni
gömlu, sem nú ber nafniö Lucaya,
fórst I höfninni á Grand-Bahama
um helgina. Hinn 38 ára gamli vél-
stjóri, Jóhannes Árnason, fannst
látinn í höfninni aðfaranótt sunnu-
dags, og telur lögreglan, að um
slys hafi verið að ræða.
Engin vitni voru að slysinu, en
álitið er, að Jóhannes heitinn hafi
fallið í höfnina, og í fallinu hlotið
höfuðáverka.
I upphafi. þegar Esjan lagöist í
siglingar við Bahamaeyjar, voru
meðal áhafnarinnar nokkrir íslend-
ingar, en Jóhannes vélstjóri var sá
eini að þessu sinni. Hann hefur
verið á skipinu frá því í byrjun
apríl.
Laetur Jóhannes eftir sig konu og
sex ára gamlan dreng.
//
íslendingar munu nota
mútur og fjárkúgun
a
— segir brezkur þingmaður — Bretar iilir
vegna landhelgismálsins
Kevin McNamara þing- kúgun og fögur orð til
maður brezka Verka-
mannaflokksins sagði í
umræðum á þingi í gær
kvöldi, að íslendingar
mundu nota „mútur, fjár
að fá Bandaríkjamenn
til að styðja sig í land-
helgismálinu“. Mikill
hiti var í umræðum í
þinginu.
„Á sama tíma munu íslend-
ingar íklæðast skikkju virðuleik
ans með því að fjölyrða um um
hverfisvernd og verndun fiski-
stofna,“ sagði þingmaðurinn
ennfremur.
Aðstoðarutanríkisráðherrann
Anthony Royle sagði í umræðun
um að Bretland mundi missa
fjórðung af þorsk. kola og ýsu-
afla sínum, ef íslendingar færðu
fiskveiðilögsöguna út í 50 mfl-
ur.
Aðstoðarráðherrann sagði, að
„sumir hlutar togaraflotans“
mundu við útfærsluna missa allt
að 60 af hundraði afla sins.
Landhelgismál íslendinga hafa
verið á döfinni í Bretlandi und-
anfarna daga og togaraeigendur
sem hafa allstcrka pölitíska
stöðu, ýta mjög að þingmönnum
sfnum. —fTH
EITUREFNAMALIÐ:
Hollenzki sendiherrann boð-
jr
a
Ohemie í Rotterdam hætti við það| íslendingar og írar óttast, að
eftir mótmælj frá Noregi og Dan-. eiturefnin muni valda tjóni á sjáv-
mörku. I arlffii. — HIH
15 tillögur í Bern-
höftstorfusamkeppni
— efnt til sýningar á till'ógum, áhur en jbær
fara til dómnefndar
fund uta n rí k isráðher ra
Nýr sendiherra Hollands á ís-
landi, sem afhendir forseta Is-
lands skilríki sín í dag, hefur
verið boðaður á fund utanríkis-
ráðherra klukkan tvö í dag til
að gera grein fyrir afstöðu hol-
lenzkra stjórnvalda til eiturefna
málsins.
Hollenzka skipið Stella Maris var
í morgun á ]eið til þess svæðis, þar
sem setja á eiturefnin f haifið, 540
sjómílur suður af íslandi og á-
móta fjarlægð frá írlandsströndum.
Þarna á að setja f sjóinn 600
tonn af eitruöum úrgangsefnum,
þrátt fyrir mótmæli frá íslandi og
írlandi.
Uppha-flega stóð til aö þessi efni
færu f Norðursjó, undan Noregs-
ströndum en fyrirtækið, sem ber
ábyrgð á verkinu. Akzo Zout
Búizt er við óvenjumiklu heita-
vatnsmagni úr borholuniun að
Reykjum, sem Hitaveitan hefur unn
ið að endumýjun á, dýpkun og
víkkun síðan í vetur. Þar eru einn-
ig boraðar nýjar holur. Holurnar,
sem unnið hefur verið við eru nú
átta talsins, en boraöar verða a.m.
k. 15 holur.
Mikill landburöur var af fiski
á Húsavfk júnímánuð og fyrrihluta
júlL í júní bárust 950 tonn af
þorski á land, en fyrri hluta júlí
rúm 500 tonn úr nóta- og færaveiði.
Afli er tregur þessa dagana, en það
er auðvitað von Húsvíkinga að
veiði glæðist að nýju.
I aflahrotunni vár hver tiltækur
maður f fiskvinnu, „allir f vinnu
Fimmtán tillögur bárust í hug-
myndasamkeppni Arkitektafélags
Islands um hvernig megi glæða
Bemhöftstorfuna nýju lífi. í næstu
viku verður opnuð sýning á tillög-
um, sem bárust og er það óvenju-
Gunnar Sigurösson verkfræðing-
ur hjá Hitaveitunni sagði f viðtali
við Vísi, að spáð væri 1100—1200
lítrum á sekúndu úr holunum í stað
350 sekúnduMtra núna og væri
vatnsmagnið þegar aðeins farið aö
aukast. Því sé jafnve' haldið fram
að vatnsmagnið verði enn meira
ög muni aukningin á veitunni nema
60—70%. — SB
upp fyrir haus“, sagði Tryggvi
Finnsson forstjóri Fiskiðjusamlags
ins. Skólanemendur unnu f fiskin
um ásamt prestinum á staðnum og
telst það ekki til tíðinda á Húsa-
vfk. „Hann er a’.ltaf í fiski, þegar
aflahrota er, við höfum duglegan
prest“, sagði Tnyggvi i lokin.
— SB
legt, að sýning sé haldin á tillög-
um sem berast í samkeppni áöur
en dómnefnd fjallar um þær.
Ólafur Jensson trúnaðarmaður
dómnefndar sagði í viðtali við Vfsi
í morgun, að ef til vill væru fleiri
tillögur á leiðinni bréflega, bæði er-
lendis frá og innan'ands, en sér
væri kunnugt um áhuga fjölda
fólks erlendis á að taka þátt f sam
keppninni. Væri dokað við fram
aö helgi, ef bréf bærust. Sýningin,
sem opnuð verður á tiilögunum
verður opin í a.m.k. 10 daga.
„Það er alveg nýtt, að almenn-
ingur sjái tillögur áður en dóm-
nefnd dæmir, en það hefur lengi
verið draumur ýmissa manna, að
breyta formi á dómi, jafnvel hefur
komið fram sú hugmynd að kepp-
endur sjálfir dæmdu ti'.lögur hinna,
sem tækju þátt í samkeppninni. —
í samkeppni sem þessari verður
meira spennandi fyrir fólk að
kynna sér og sjá tillögurnar áður
en dómnefndin dæmir endanlega
um þær“. — SB
Róleg grænmetis-
spretta þrótt fyrir
góða veðrið
„Grænmetissprettan gengur ó-
venjurólega, og það er sáralítiö af
hvítkáli rófum og blómkáli, sem
við fáum á markaðinn. Uppskeran
er heldur ekkí fyrr en venjulega
þrátt fyrir góða tíð. Það er jafn-
vel minna, sem kemur núna á mark
aðinn, en áður hefur verið“, sagði
sölustjóri Sölufélags garðyrkju-
manna í viðtali við Vísi í morgun.
Hann kvað innirækt vera sæmi-
lega í ár, en heldur dræmari en
tíðin gæfi tilefni til að sínu mati.
- SB
Stóraukið vatns-
magn að Reykjum
— Borholur gefa meira en búizt var við
.Höfum duglegan presf
— Húsvikingar biða eftir næstu aflahrotu
Miklar skemmdir uröu á fölksbíhium, sem kastaðist yfir
dúfuna, en henni varð ekki bjargað samt.
Tókst ekki að
bjarga dúfunni og
skemmdi bílinn
Dauðaslys varð á Miklu-
braut á milli brúnna yfir Ell-
iðaár um 19.30 í gærkvöldi,
þegar ekið var yfir DÚFU,
sem setzt hafði á miðja ak-
brautina.
Ökumaöur fólksbíls, sem
bar að dúfunni, lagði sjálfan
sig og næsta ökumann á eftir
í hættu til þess að reyna að
byrma líf dúfunnar, en allt
kom fyrir ekki og varð af
árekstur fólksbíls, olíubíls og
dúfunnar.
Kona, sem ók fólksbílnum var
á leið vestur og ók á hægri ak-
rein. en' skammt á eftir henni
ók vörubíll í sömu átt en á
vinstri akrein. ökukonan taldi
fjarlægðina örugga á milli bíl-
anna og skipti yfir á vinstri ak-
rein, en sá þá dúfuna sitjandi á
götunni.
Til þess að þyrma dúfunni
dró hún skyndilega úr hraða
bílsins, Qg þvi var ökumaður
o’.iubílsins óviðbúinn, og lenti
hann aftan á fólksbifreiðinni.
Miklar skemmdir urðu á fólks
bílnum, sem kastaðist áfram og
yfir dúfuna. En oliubíllinn lenti
með hjóíið yfir fuglinn, sem lézt
samstundis. —GP
i