Vísir - 30.08.1971, Blaðsíða 2

Vísir - 30.08.1971, Blaðsíða 2
Clarissa Kaye James Mason kvæntur James Mason, 62 ára kvænt- ist föstudaginn 13. ágúst s 1. hinni 39 ára gömlu áströlsku leik konu, Clarissa Kaye. Mason var áður kvæntur Pamelu Kellino, og voru þau gift i 23 ár, en skildu 1964. „Þungaðar konur eru fagrar" 11 ungar konur, allar þungað- ar, tóku þátt í lokakeppni sér- stæðrar fegurðarsamkeppni, sem ha'ldin var ’i Eng'.andi í sumar. Fjöltnargar þungaöar konur tóku þátt I keppninni, en orðtæki keppninnar var „þunguð kona er fögur." Þeim 11, er síðastar stigu á svið að láta sérstaka nefnd vega og meta fegurð sína fækkaði hins vegar skyndilega i 10, er einn þátttakandinn fékk innan- tökur miklar, og var flutt í sjúkra bíl á fæðingarspítalann. Konurnar voru ekki bara skoð aðar líkamlega — reynt var að 8 milljónir Þaö kostaði 37.000 pund (8 milljónir ísl. króna) og það tók fjögur ár að framkvæma rann- sókn á hávaða þeim er gerist jafnan við Heathrow-flugvöllinn í London. Nefndin sem samdi skýrslu upp úr þeim athugunum sem hún hafði gert á hávaöanum, fékk fljótt þaö svar, að skýrsia þessi væri marklaus — þrátt fyrir 8 millj- óna tilkostnað Hún er nefnilega úrelt — hávaðinn er miklu meiri núna en fyrir fjórum árum. Nefnd þessi og þau vinnubrögð »••••••••••••®••••••••••i leggja fyrir þær spumingar, og gefa þeim einkunn fyrir svör. Spurningarnar voru t d. svona: „Iðkarðu enn ballett, þótt ólétt sé“? ,,Hvað finnst þér um maga belti fyrir þungaöar konur?“ Það var 21 árs stúlka sem fékk 1. verðlaun, frú Lynne Warnett frá Bath. Viðurkenndi hún, aö hún hefði ekki þorað að segja eig- in manni sínum frá þátttöku sinni í keppninni fyrr en hún var kom in í lokakeppnina. „Ég vildi ekki vekja neina athygli á mér — þungun er mjög persónulegur hlutur.“ úf í loftið sem hún hefur viðhaft við gerð skýrsiunnar hefur mjög verið skömmuð í Bretlandi. Bæði af almenningi og vl'sindamönnum, og einnig hefur mál hennar veriö rætt í ráöuneyti því er hefur með slíkar athuganir að gera. Fyrir viku ákvað brezka Nátt- úruverndarráðiö, að ráðast f aðra könnun eins og sú er „lokiö“ var við um daginn, en hún verð ur að vera þannig unnin aö hún úreldist ekki með hverjum deg- iumn sem líöur á starfstíma nefnd arinnar. ••••••••••>•••••••••••• Nýstárleg atvinnugrein Klemens Muller, sem býr í Köln i Vestur-Þýzkalandi, vinn- ur fyrir sér á nýstárlegan hátt. Hann hefur það fyrir atvinnu að draga handvagn á eftir sér, og túristar borga vel fyrir aö fá að sitja í vagninum. Þetta er gömul atvinnugrein í Austurlöndum. en að líkindum er Klemens eini Vesturlandabúinn, er þessa atvinnu stundar. Leigubílstjórar í Köln eru hlynntir þessu íramtaki Klem- ensar, en yfirvöldin eru í vafa um, hvort hægt sé að leyfa hon um að komast upp með þetta leyfislaust, en þau vita ekki, hvað leyfi þau gætu gefið út handa honum Hann hefur útbúiö handvagn- vagninn með öllum hugsanlegum öryggistækjum, og meira aö segja hefur hann sérstaka bjöllu til að hrekja brott illa anda, svo að ekki er hægt að segja, aö hann sé óvarkár. „Drekadingl44 Menn eru merkilega útsjónarsamir að finna upp hinar ólík- legustu aðferðir til að skemmta sjálfum sér. — Maðurinn sem hangir þarna í flugdreka eða fallhlíf, veit ekkert skemmti- lengra en að dingla svona fyrir ofan höfuð náungans, og vill eyða stórfé i að fá leigða dráttarvél og dráttarvélarökumann til að draga sig svona hangandi í loftinu yfir skozku heiðar- löndin. Bretar kalla þetta „Parasailing", gæti heitið á ísl. „lofthengsli“, eða „drekadingl“.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.