Vísir - 30.08.1971, Síða 3
V í SIR. Mánudagur 30. ágúst 1971.
í MORGUN ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND É MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND
Bílferja brann til ösku
— skipstjórinn reyndi að laumast hurtu
17 lík þeirra er fórust
með grísku bílferjunni Hel
eanna, er sökk skammt
undan ítölsku ströndinni
við Eyjahafið á laugardag
inn hafa fundizt.
Meira en 1000 farþegar
voru með ferjunni, og er
eldur kom upp í henni,
greip um sig mikil skelfing
en eftir því sem ítalska
strandgæzlan segir, þá
mun eidur hafa komið upp
,Okkar maður'
i Bólivíu
Bandaríkin á
bak v/ð valda-
ránið, segir
Washington
Post
Blaðið Washington Post sagði vá
sunnudaginn, að vitað væri að-
bandaríski flugherinn stæði á ein-
hvem hátt á bak við valdaránið í
Bólivíu sem hægri sinnaðir herfor
ingjar frömdu I síðustu viku. Segir
Washington Post, að vitað sé með
vissu, að bandarískur fiugkapteinn,
sem hingað til hefur verið í Bólivíu
sem „Ieiðbeinandi" hjá flughemum
hafi mikið komið við sögu í valda
ráninu, og hefur Washington Post
upplýsingar sínar eftir fréttamanni
þess f Santa Cmz í Bólivíu.
Segir Washington Post aö Robert
J. Lundin major hafi stöðugt haft
samband við bólivfanska flugherinn
í La Paz og haft til þess sérstök
loftskeytatæki, en yfirleitt dvaldi
Robert Lundin í Santa Cruz.
Segir Post að majorinn banda-
riski hafi staöið í nánu og reglu-
Iegu sambandi við Hugo Banzer, nú
verandi forseta Bólivíu í hálft ár.
Vinstri sinnuð öfl í Bólivíu, öfl
sem hingað til hafa stutt við bakið
á skæruliðum f fjöllum, halda því
fram að þetta valdarán herforingj-
anna sé ekkert annað en afskipt'a-
semi Bandaríkianna af innnríkismál
um í Suður-Ameríku. Byltingaröfl
in í Bólivfu geta ekki sannað aö
um bandarfska afskiptasemi sé að
ræða, en þau segja að bandarísk
fyrirtæki í Bólivíu hafi veitt her-
foringjahreyfingunni fjárhágslegan
styrk til að framkvæma valdaránið
— á því sé enginn vafi.
vegna sprengingar er varð
í eldhúsinu. Þegar skip-
stjórinn sendi út neyðar-
kall var skipið í 40 mílna
fjarlægð frá ítölsku strönd
inni að suðaustanverðu.
Miklu fleiri lík munu ef-
laust koma í leitirnar.
ítalska lögreglan handtók svo í
gær síðdegis skipstjórann á ferj-,
unni, og hefur ákært hann fyrir
morð. Skipstjórinn var handtekinn
er hann reyndi að koma sér undan
frá Ítalíu með annarri grískri bíl-
ferju.
ítölsk yfirvöld höfðu gefið skip-
stjóranum, Anthipas, fyrirmæli um
að verða kyrr í landinu eftir þenn
an ferjubruna, sem hefur kostað
a.m.k. 24 manns lifið, að því er
NTB segir. í gær kom svo lögreglu
maður auga á Anthipas, þar sem
hann var kominn um borð f ferju.
Sagðist þá skipstjórinn vera frjáls
borinn Grikki, sem mætti fara
hvert er hann vildi.
Áður en hann revndi að lauma
sér í burtu, hafði hann svarað ein
um 185 spurningum, sem öryggis-
eftirlitsmenn lögðu fyrir hann, og
blaðamönnum tjáði hann, að hann
heföi vissulega gert skyldu sína
um borð í. Heleanna, þegar brun-
inn kom upp.
Ákærandinn kærir skipstjórann
fyrir að hafa haft fleiri farþega um
borö en leyfilegt er, hann hafi ekki
haft fullnægjandi öryggisbúnað og
að áhöfnin hafi ekki veitt farþeg
unum nauðsynlega hjálp, þegar all-
ir trylltust af hræöslu við það að
eldur varð laus í skipinu.
AHs komust 1101 lifandi á land
úr þessu slysi.'
Hanoi segist ekki taka mikið
mark á þessum kosningum þar
syðra — og kalla talsmenn komm
únistastjórnarinnar þær, „bandarísk
an skopleik — saminn f Hvíta hús
inu og klaufalega stjómað úr banda
rfska sendiráðinu í Saigon“. Xuan
Thuy, talsmaður N-Víetnams vio
friðarviðræðurnar í París sagði að
forseti eins og Van Thieu væri
„Bandaríkjunum til skammar.“
Sagði Thuy, að engar allsherjar-
kosningar yrðu haldnar í Víetnam
meðan bandarískur her væri ólög-
lega staðsettur f landlnu, og forseti
eins og Thieu „bandarískur lepp-
ur“ væri við líði í Saigon.
Myndin hér að neðan er frá á-
tökum er urðu í Saigon fyrir helgi.
Stjómarhermönnum var att gegn
minnihlutahópum, er höfðu eitthvað
við það að athuga að ganga til
kosninga, þar sem aðeins einn fram
bjóðandi væri í boöi — núverandi
■®forseti landsins, Thieu.
THIEU TRYGGUR I SESSI
— „Skripaleikur" segir Hanoi — 7 manns létust
i átökum á kosningadaginn
Þjóðþing Suður-Víetnam hefur
fengið nýjan meirihluta að styðja
við ríkisstjómina, nú að afstöðnum
kosningunum í gær. Að vfsu mun
ekki enn vitað með vissu um niöur
stöður kosninganna og verður ekki
vitað fyrr en á föstudag, en óháði
flokkurinn mun hafa bætt við sig.
Kosningamar í gær voru með hin
um fjörmeiri sem um getur. Sjö
manns misstu lífið í átökum.
Búizt er við að langan tíma taki
að greiða úr að þessum kosningum
loknum. Sjónarvottar að ýmsum
atvikum er urðu í gær fullyrða
NÝKOMIÐ
Nýkomið
pokum.
Mackintosh konfekt (Quality STREET) í
Verzlunin ÞÖLL, Veltusundi 3
(Gegnt Hótel íslands bifreiöastæðinu)
Sími 10775
að kosningin verði kærð — og það
úr fleiri en einni átt. Því er haldið
fram, að um kosningasvindl hafi
verið að ræöa í stórum héruðum,
þar sem stjórnarhermenn stóðu
vörð um kosningastaðina — því er
haldið fram að á sumum kjörstöð-
um hafi legið krossaðir atkvæða-
sðelar fyrirfram og voru þeir ætl-
aðir hermönnum.
Margir þingmenn, vinveittir
stjóminni eru nú komnir á þing til
viðbótar við þá sem fyrir eru. 1
Quang Ngai héraöi fékk t.d. aldrað
ur hershöfðingi 55.000 atkvæði en
frambjóðandi kaþólikka hefur feng
ið 39.000 að því er bezt er vitaö,
en það var einmitt umræddur fram
bjóðandi kaþölskra sem hafði með
höndum rannsókn atburðanna í My
Lai.
Yfirvöld sögðu í gærkvöldi að 5,5
milljónir Suður-Víetnama hafi tek
ið þátt í kosningunum, eða 78%.
Skæruliöar gerðu mörg smá-
áhlaup á S-Víetnama á meðan á
kosningunum stóð, og létust í þeim
átökum átta manns og fjórir særö-
ust.
Þota hrapaði / Hyrarsund
— aðeins þrir komust af — ókunnugt um orsakir slyssins
Aðeins þrír af 34 sem um
borð voru í þotu af gerð-
inni Iljusín-18, komust lífs
af, er þotan hrapaði niður
á Salthólmann við Kaup-
mannahöfn á laugardags-
kvöldið.
Vélin var frá Ungverja-
landi, og af þeim 34 sem
um borð voru, voru 7 Norð
menn, aðeiús einn þeirra
komst lífs af, 24 ára gömul
kona, Greta Meissner að
nafni, en hún er frá Bergen.
Þotan var frá ungverska flugfé-
laginu „Malev" og var að koma
beint frá Osló, og út yfir Eyrarsund
þegar óhappið var.
Flugmaðurinn hafði fengið boð
um að lenda á Kastrup, áður en
haldið skyldi áfram til Austur-
Berlínar og Búdaoest. Virtist flug-
stjörnarmönnum á Kastrup, sem
allt væri í bezta lagi, þegar véli»
allt í einu hvarf af radarskermiiv
um. Vélin var þá kölluð strax upp í
talstöð, en ekkert svar fékkst.
Klukkutíma eftir slysið fann
dönsk þyrla brak þotunnar og var
þá leiðindaveður, rok og rigning.
Enn er ekkert vitað um orsakir
slyssins, en dönsk rannsófonamefnd
vinnur að athugun málsins ásamt
sérstakri nefnd frá Búdapest, er var
send til Danmerkur í gser.