Vísir - 30.08.1971, Blaðsíða 8
ö
V1S IR . Mánudagur 30. ágúst 1971,
Otgefandí: Keykiaprenr ní.
Framkvæmdastjóri: Sveinn R Eyjólfsson
Ritstjóri • Jónas KristjánssoD
Fréttastjóri • Jón Birgir Pétursson
Ritstjómarfulltrúi: Valdimar H. Jóhannesson
Auglýsingastjóri: Skúli G. .Tóhannesson
Auglýsingar: Bröttugötu 3b Símar 15610 11660
Afgreiðsla Bröttugötu 3b Simi 11660
Ritstjóra • Laugavegi 178. Sími 11660 (5 linur)
Askriftargjald kr. 195.00 á mánuði innanlands
f lausasölu kr. 12.00 eintakið
Prentsmiöia Vfsis — Fdda hf
Áhugasöm stétt
’Veröld okkar er í sífelldri endurnýjun. Það, sem tal-
ið var gott og gilt í gær, er orðið úrelt í dag. Það, sem
menn námu í skóla fyrir tíu eða tuttugu árum, er ekki
nægilega traustur grundvöllur að þeim störfum, sem
þeir stunda nú.
Afleiðingin er sú, að menn verða að setjast aftur á
skólabekk á fullorðinsaldri og mennta sig á nýjan leik
til að geta sinnt starfi sínu í samræmi við kröfur nú-
tímans. Háskólamenntaðir menn fundu einna fyrst
fyrir þessari þörf. Læknar gera t.d. mikið af því að
fara utan með vissu árabili til að kynna sér nýjungar
í grein sinni.
En nú fer þetta að verða að almennri reglu, sem
gildir um fjölmörg störf í þjóðfélaginu. Vart verður
vaxandi viðleitni til að gera ráð fyrir þessari endur-
menntun í skólakerfinu. Settar hafa verið upp fram-
haldsdeildir fyrir gagnfræðinga og gagnfræðakvöld-
skóli fyrir fulorðn og námskeið eru haldin fyrir ein-
staka starfshópa. Námskeiðin eru þó yfirleitt haldin
utan kerfisins, af félagssamtökum, stofnunum og fyr-
irtækjum. En skólakerfið hlýtur að taka þetta hlut-
verk í auknum mæli upp á sína arma.
Þótt endurmenntunar sé þörf í fjölmörgum grein-
um, er hún hvergi nauðsynlegri en hjá þeirri stétt,
sem hefur atvinnu af því að mennta og uppfræða
aðra, kennurunum. Það er raunar talað um, að kenn-
arar þurfi símenntun, stöðuga endurmenntun, svo að
þeir geti ætíð notað nýjustu og beztu kennsluaðferð-
ir og miðlað nýjustu og beztu þekkingu í kennslu-
greinum sínum. Enda þarf auðvitað fyrst að endur-
mennta þá, sem eiga að mennta aðra.
Það er sérstakt ánægjuefni, hve vel við stöndum
að vígi á þessu sviði. Fræðsluyfirvöldin hafa hin síð-
ustu árin skipulagt sífellt meiri og fleiri námskeið í
helztu kennslugreinum skólanna. í sumar hefur þetta
starf náð hámarki og boðið hefur verið upp á nám-
skeið í öllum helztu greinunum. Þetta skipulag sýnir
góðan skilning fræðsluyfirvalda á þessu lífsspurs-
máli.
En skipulag er til einskis, nema hugur allra fylgi
máli. Það athyglisverðasta í þessu starfi er hinn mikli
áhugi, sem kennarar hafa yfirleitt á þessari endur-
menntun. Almenningsálitið í kennarastéttinni er með
þessum námskeiðum, þótt þau kosti kennara aukna
vinnu og minna frí. f sumum skólum hafa allir kenn-
aramir verið á námskeiðum í sumar. Og í heild er tal-
ið, að 60% allra starfandi kennara í barna- og gagn-
fræðaskólum hafi verið á einhverju námskeiði í
sumar.
Ef sú venja myndast, sem allt útlit er fyrir, að kenn-
arar endurmennti sig eitthvað á hvci-ju ári, hafa ís-
lendingar tryggt sér síungt og virkt skólakerfi í fram-
tíðinni og þurfa varla að kvíða því, að uppvaxandi
kynslóðir verði ekki nógu nýtir borgarar, miðað við
þarfir komandi tíma.
Stjórnarbylting í aðsigi?
— pólit'ikusar viðhafa þar stór orð hver við annan
# Einhvern veginn er það svo, að stjórnmála-
menn í Suður-Víetnam, hafa ekki fengið á sig orð
fyrir myndugleik eða tiltakanlega stjórnvizku. —
Menn á Vesturlöndum hafa yfirleitt getað fundið
eitthvað furðulegt eða hlægilegt við þetta sífellda
basl þeirra þar eystra, mannaskipti og valdarán.
Kannski tekur þó út jrfir allan þjófabálk núna, þeg-
ar stendur til að þjóðin fái að kjósa sér forseta í
lýðræðislegum kosningum í haust.
© Fyrsti markverði viðburðurinn í þessum kosn-
ingafarsa er sá, að Minh hershöfðingi, sem áður
hafði verið auglýstur frambjóðandi í þessum kosn
ingum dró framboð sitt til baka. Þar með var sýnt
að aðeins einn maður yrði í framboði: Thieu, nú-
verandi forseti landsins. Og áreynsla Nixons, eða
hans manna, um að sýna og sanna heiminum að S-
Víetnamar væru ekki spilltari en svo af stríðinu,
að þar væri hægt að koma í kring lýðræðislegum
kosningum, orðin að engu.
„Farðu til helvítis“
>á var brugöið á þaö ráð. að
ota varaforsetanum, Cao Ky í
framboð. En Ieiknum var ekki
lokið með því. vegna þess aö
snemma í síðustu viku. lýsti
Cáo Ký því yfir. að hann drægi
frambqð sitf .fil baka,,,og lét sig
engu skipta, þótt Bandaríkja-
menn iegðu hart að honum að
vera í framboði.
Sl'ðan þetta var, hefur Ells-
worth Bunker ambassador
Bandaríkjanna í Saigon varla
fest blund. Hann hefur verið á
þönum milli frambjóöanda og
fyrrverandi frambjóðenda, að
fá þá til að bjóða sig fram —
a'llt fyrir Nixons-stefnuna Svo
hitti Bunker Thieu, og ræddust
þeir við í klukkutíma, og var
Bunker þá rétt nýkominn frá
Washington, þar sem hann hafði
leitaö ráða í þessu voðalega
máli hjá forsetanum. Sagöi
Bunker við Thieu, að ef hann
væri einn í framboði, þá gæti
það orðið til þess að langþreytt
Bandaríkjaþing. skerti verulega
fjárveitingu til Víetnam. Thieu
svaraði þessu engu. „Og satt
bezt að segja,“ sagðj einhver
áreiðanlegur heimildarmaður,
„þá sagði Thieu Bunker að fara
til helvítis".
Mistækur diplomat
Bunker fékk jafnvel enn
þá kaidari móttökur hjá
Minh. Hann neyddist til að
segja Minh. að stefna sú, er
Nixon hefði boðað hefði fallið
gersamlega í grýttan jarðveg,
og þar fyrir utan hefði Thieu
neitað að þoka neitt til sinni
stefnu. Og sagði Bunker Minh,
að hann yrði föðurlandsins
vegna, að bjóða sig fram, jafnvel
þótt hann vissi fyrir fram, að
við örðugan yrði að etja og að
Thieu myndi gera honum eins
erfitt fyrir í kosningabaráttunni
og hann mögulega gæti
„Það sem Bunker sagði“,
sagði Víetnami einn, er vel mun
hafa heyrt viðræður þeirra
Minh og Bunkers „var bara
það, að Minh yrði að bjóða sig
fram, vegna þess að Nixon for-
seta langaði svo mikið til þess.
Bunker geröi margt til aö fá
Minh til aö bjóða sig íram en
hann gerði ekkert ti] þess að
reyna að fá Thieu til að gera
kosningaundirbúninginn eitt-
hvað hægari fyrir andstæðing-
ana“.
Var því ekki að undrá, að
andlitið á Minh sigi þeim mun
meira eftir því sem Bunker baö
heitar, og loks geröi Minh sér
iiiiiiainiE
m wsm
h'tið fyrir, og gekk út frá Bunk-
er án þess að segja eitt einasta
orð
Handtakið
stuðningsmenn
Þegar Bunker var farinn frá
Minh, kom hershöfðingjanum
og helztu vinum hans saman
um, að hann. skyldi hætta við
framboðið endaniega. Þessi á-
kvörðun var auglýst, og jafn-
framt birti Minh opinberlega 20
blaösíðna skýrslu sem fletti of-
an af fyrirhuguðu kosninga-
svindli Thieu, forseta. Stendur
þar meðal annars, að gefin hafi
verið út leynileg tilskipun til
lögreglunnar, að handtaka alia
þá sem vinna fyrir andstæðinga
Thieu í kosningunum, leiðbein-
ingar tii stuðningsmanna Thieus
um hvernig bezt sé að stela at-
kvæðakössum og hvemig bezt
sé að fara að því að ná undir
sig ríkisbifreiðum, símum og a'-
menningshúsnæði til notkunar
við kosningabaráttuna.
Þegar tilkvnningin um aftur-
köllun framboðs Minhs birtist,
varð uppi mikið fiaðrafok í
Saigon. Gamall hermaður
brenndi sig til bana á fiölförnu
torgi, til þess að mótmæla aft-
Ky, varaforseti
Minh hershöfðingi
urköllun framboðsins, og lið-
lega 30 þingmenn hótuðu að
segja af sér þingmennsku, færi
Minh ekki í kjör.
Minh gaf hins vegar í skyn,
að sitthvað bæri til tt'ðinda á
næstunni. Hann huggaði sfna
menn með því að segja, að hann
hætti aðeins þátttöku í skrípa-
kosningum, til þess að geta með
öðru móti gert landi sínu gagn,
og þá meira. Þetta væri liður
í áætlun um að koma Thieu frá
völdum.
Fór nú að fara um suma, þar
sem maðurinn sem þannig
talaði, er jú einna frægastur
fyrir að hafa stjómað valda-
ráni gegn Diem forseta árið
1963.
Lýðræði sem verkar
öfugt
Ellsworth Bunker var sem út-
spýtt hundskinn meðan á þessu
stóð á milli þeirra Thieu og Ky.
Báðir voru jafnóhagganlegir, og
ekkert hefur enn þokazt í mál-
inu
Bunker greyið fær litlar þakk-
ir fyrir sitt basl nema kannski
Nixon hugsi hlýlega til hans.
Þingmenn risu margir upp á
afturfæturna er fréttist af at-
hafnasemi Bunkers eystra, og
kröfðust þess aö Bandaríkin létu
innanríkismál í S.-Víetnam vera
— frekar en orðið væri.
Mike Mansfield iagði til að
fjárstyrkur Bandaríkjanna ti'
Saigon-stjórnarinnar væri
minnkaður verulega, og ötottt
við: ,.Mér virðist sem ivðræðið
þarna — og ég set „lýðræðið“
í gæsalappir sé farið að verka
öfugt“. — GG