Vísir - 30.08.1971, Side 9

Vísir - 30.08.1971, Side 9
V f SIR . Mánudagur 30. ágúst 1971, 9 Þessi fallegi hundur heitir Bangsi, og er ákaflega flinkur í þeirri íþrótt að hoppa gegnum gjörð. Fyrir hvert hopp fær hann sykurmola, sem eykur mjög íþróttaáhuga hans. neinni vissu, en ég gizka á, að þeir séu fjögur til fimm hundr- uö. í brezku blaði var sett fram sú tilgáta um daginn, að þeir væru um tvö þúsund, en ég heid, að sú tala' sé alltof há.“ „Ein aðalröksemdin gegn hundahaldj er sú að það sé kvalræði fyrir hunda að búa í borgum. Hvað segja' hundavinir um það?“ „í bréfum, sem hafa borizt frá erlendum dýraverndunarfé- iögum og sérfræðingum. eru all- ir á einu máli um, að það sé á engan hátt skaðsam’egt fyrir hunda að búa í borgum né heldur valdj þeir mannfðikinu neinni hættu eða óþægindum i sambandi við sjúkdóma eða slíkt Gagnstæð skoöun heil- brigðisnefndar var ein aðalfor- senda bess, að bannið var sam- þykkt. Nú lítum við svo á að þessi forsenda sé al's ekki fyrir hendi og þess vegna siáifsagt að taka málið upp að nýju.“ „Hvað eru margir meðlimir 1' Hundavinafélaginu?" „Þeir eru á fimmta hundrað, en þeir eru ekki allir hundaeig- endur, Til dæmis á ég ekki hund.“ „Af hverju ekki?“ „Af því að ég tel mig ekki hafa aðstöðu til þess.Ég veit um engan stað í sveit, þar sem ég Reykvískum hundum boðið spjallað v/ð Ásgeir Hannes Eiriksson um hundamálið og undirtektirnar erlendis „Ég sel það ekki dýr- ara en ég keypti það,“ segir Ásgeir Hannes Ei- ríksson, varaformaður Dýraverndunarfélags Reykjavíkur, „en mér er sagt, að í Þýzkalandi sé kvenmaður, sem er reiðu búinn til að standa straum af kostnaði við að flytja alla hunda af Reykjavíkursvæðinu til Þýzkalands, ef til þess kemur að útrýmingarher ferð verði farin gegn þeim. ^eysimargir, félög og ein- staklingar hafa sent Dýra- verndunarfélaginu og Hunda- vinafélaginu bréf, þar sem lýst er undrun yfir hundabanninu, og boðinn fullur stuðningur, sið- ferðislegur og fjárhagslegur." Ásgeir bendir á bréfastafla Við blöðum í þeim, Eitt þeirra I1 $r frá dýraverndunarfélagi í Vancouver. Þar stendur meðal annars: „Ef borgarstjórnin í Vancouver sýndi svona frekju- leg afskipti af hundum fólks (sem eru einkaeign ekki s’iöur en annað, sem fólki tilheyrir) yrði ráðhúsið í Vancouver lík- ast tij rifið til grunna. Þegar öllu er á botninn hvolft var borgarstjórnin valin til að stjóma borginnj en ekki til að ofsækja hundavini." í þýzku bréfi stendur: „Þýzka dýraverndunarsambandið gefur yður umboð til þess að koma mótmælum okkar á framfæri við viðkomandi aðila V' Reykja- vík.“ Hundadagurinn nálgast. Fyrsta september stóð til að gera gang- skör að því að framfylgja bann- inu við hundahaldi í Reykjavík. Frestur hefur raunar fengizt, og nú bíða hundavinir spenntir eft- ir því, hvort sá frestur verður aðeins gálgafrestur. Ásgeir segir að hundavinir standi saman og hafi ekki í hyggju að Itáa sig fyrr en V fulla hnefana. „Við njótum stuðnings víða að,“ segir hann. „Fólki í öðrum löndum finnst þetta má) allt með ólíkindum. Beinlínis ótrú- legt, að menn skuli í fullri al- vöru tala um að útrýma hund- um á Reykjavíkursvæðinu.“ „Hvað gerist, ef tii þess kem- ur, að reynt verður að fram- fylgja banninu?" ,,Það veit enginn ennþá, en það verður gripið til einhverra ráðstafana. Það er um ýmsar leiðir að velja, og eðlilegast er að leita réttar síns hjá dóm- stóium. Sumir eru ákaflega heitir, og Ásgeir Hannes Eiríksson seg- ir, að hundavinir ætli ekki að láta sig fyrr en í fulla hnef- ana. fuliyrða, að ■ þeir muni láta hart mæta hörðu, ef reynt verð- ur að taka hunda þeirra með ofbeldi." „Hvao eru margir hundar i Reykjavík?" „Um það veit vfst enginn með gæti komið honum fyrir með litlum fyrirvara, ef á þyrfti að halda, og þar að auki er ég bíl- laus, svo að flóttinn gæti orð- ið erfiður. Mig langar ekki að eignast hund, fyrr en ég verð öruggur um að geta fengið að vera í friði með hann.“ „Er hundahald bannað ails staðar hér í námunda Reykja- víkur?“ „Reglumar um hundahald eru að verða dálítið flóknar. Þar sem hundahald er bannað, hafa verið settar einhverjar reglur til að komast hjá þvi' að framfylgja banninu. 1 Reykjavík var því frestað, og í Hafnarfirði mega menn eiga þá hunda, sem voru í bænum einhvem ákveðinn dag, þangað til þessir hundar deyja „eðlilegum dauða“. En hins vegar er bannað að eignast nýja hunda.“ Og það kemur upp úr dúrn- um, að Bessastaðahreppur er eini staðurinn í námunda Reykjavíkur. þar sem hunda- hald er leyfilegt. Við hringjum í hreppstjórann. „Já, við sjáum ekki ástæðu til að banna hundahald En hér eru allir hundar hreinsaðir einu sinni á ári, og við ömumst ekki við þv'i að menn eigi hunda. ef þeir fy’gja settum reglum.“ Hundarnir í Bessastaðahreppi þurfa sem sagt ekki aö bera kvíðboga fyrir framtíðinni, eins og hundarnir í Garðahreppi eða Reykjavík. „Annars trúi ég því ekki, að þessi útrýmingarherferð gegn hundunum verði nokkurn tíma farin,“ segir Ásgeir. „Hvaða menn ætla þeir að fá tií þess að ganga 1 hús og drepa hunda?“ — ÞB yisœsm: —Eruð þér fylgjandi eða andvígur útrymmgu hunda í Reykjavík? Magnús Sigurðsson, sendibíla- stjóri: — Tvímælalaust andvig- ur. Mér finnst meira en sjálf- sagt að Reykvíkingar fái að hafa hunda sína áfram. Er það ekki mannréttindaskerðing að útrýma svona hundum og banna hundahald? Björgvin Jóhannesson, sjúkra- liði: — Ég er samþykkur því, að hundar verði látnir hverfa á braut. Hins vegar er ég ekki svo viss um réttmæti útrým- ingarinnar eins og hún er hugs- uð. Mér fyndist að það ætti að minnsta kosti að framlengja frest hundaeigenda til aö losa sig við dýrin. Fram i apríl ætti aö vera nóg. Júlíus Ólafsson, viðskiptafræö- ingur: — Samþykkur. Ég sé enga ástæðu til að vera að halda í hundaskítinn. Hundar eiga líka miklu frekar heima í sveit en á malbikinu. Guðjón Guðmundsson, vegagerö- armaður: — Ja ... Ég hef nú aldrei velt þessu máli neitt fyr- ir mér í alvöru. En svona i fljótu bragði fæ ég ekki séö neina ástæðu til að vera að út- rýma hundum ... Bragi Guðjónsson, slökkviliös- maöur: — Hundar eru og hafa ailtaf verið fyrir uian niíti a- hugasvið, hvar sem þeir hafa verið. Og ég hef hreint engan áhuga á að mynda mér skoöun í þessu hundamáli

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.