Vísir - 30.08.1971, Blaðsíða 16
ISIR
Mánudagur 30. ágúst 1971.
Meiri aðsókn
en að Heimilis-
sýningunni
Sjö þúsund manns komu á alþjóð
legu vörusýninguna í gæ>r og hafa
þá um 15 þúsund manns sótt sýn-
inguna þá rúma þrjá daga sem hún
hefur staðið. Er það 25% betri að-
sókn en fékkst að Heimilissýning-
unni á sama tíma hlutfallslega
reiknað. Öllu auðveldara ætti þó
að reynast að taka á móti auknum
gestafjölda að þessari sýningu þar
eða sýningarflöturinn er nær helm-
ingi meiri en á Heimilissýningunni.
„Einu vandræöi okk'ar til þessa
eru með yngstu sýningargestina,
sem hafa viljað gerast fullágengir
við söfnun úpplýsingabæklinga og
föndra með sýningarmuni", sagöi
Eysteinn Helgason, blaðafulltrúi
K’aupstefnunnar í viðtali við Vísi í
morgun. Tók hann það fram af
því tilefni, að börnum yngri en 12
ára væri óheimill aðgangur nema í
fylgd með fullorðnum.
Töluvert kvað Eysteinn hafa ver
ið gert af pöntunum á Kaupstefn-
unni og hafa margir sýnendanna
lýst bæði undrun og ánægju sinni
yfir velgengni á því sviði. — Einn
þeirra hefur þurft til að mynda aö
gera aukapöntun á vöru, sem hann
var nýbúinn að fá af stóra send-
ingu, er sýningin hófst.
„Fólk viröist greinilega líta á
Kaupstefnuna sem annað og meira
en skrautsýningu", sagði Eysteinn.
— ÞJM
30-40 þúsund króna pels
'i
úr lambshnakka og rauðref
— ein af nýjungunum i „islenzku tizkunni'
fatakaupstefnunni á Seltjarnarnesi
Þau eru þó nokkuð mörg
hnakkaskinnin af nýlega
fæddum lömbum, sem
eru notuð í pelsinn, sem
verður sýndur á kaup-
stefnunni íslenzkur fatn
aður.
hjá
Hnakkaskinnið er smábútur,
sem skorinn er úr lambsskinn-
inu og þykir eftirsóknarverður
vegna áferðar. Hver bútur er
fimm sinnum tíu sentimetrar á
stærð. Pelsinn er með brydd-
ingum úr rauðrefaskinni. Verö á
flíkinni er milli 30 og 40 þúsund
krónur, og er þetta dýrasta
pelsaflíkin, sem Gráfeldur hf.
.framleiðir sagði Agnar _Svan-
bjöms'son forstjóri Gráfeldar í
morgun.
Hann sagði pelsinn vera model
flfk og efeki vera tii á lager en
hægt að fá álíka saumaöa eftir
pöntun. Gráfeldur hf. mun ein-
beita sér að íslenzkum markaði
næsta árið og framleiöa úr mörg
um skinnategundum, lítiö úr
//
Varð að vera efstur,
44
segir Friðrik Ólafsson, Norðurlandameistari i skák
Norðurlandameistaramótinu (
skák er nú lokið og eins og menn
bjuggust raunar við sigraöi Friðrik
Ólafsson. Hann hlau.t níu vinninga
af el'lefu mögulegum, en 1 öðru
sætj var Holm frá Danmörku og í
þriöja sæti várð Ivarsson frá Sví-
þjóð
„Éinhvern veginn var ég í þeirri
Hjálmurinn
bjargaði lífi hans
Vinnuslys varð á Moldheygna-
hálsi norður undir Ðjúpabalcka í
Eyjafiröi í gærmorgun, þar sem
unnið var að því að koma fyrir
vinnuvélum fyrir Vegagerð rík-
isins, sem skapar sér þar að-
stöðu til þess að harpa möl.
Færiband. sem búiö var aö reis'a
upp, féll á mann, sem stóð við það.
Haföi ein undirstaöa færibandsins
hruniö undan því vegna hristings
frá jarðýtu, sem var þarna að störf
um.
Færibandið rakst í höfuð manns-
ins, en þaö vildi honum til happs,
að hann hafði öryggishjálm á höfði.
Eigi að síður hlaut hann nofekurt
högg á höfuöið. og var hann flutt
ur á sjúkrahúsið á Akureyri. En tal
ið var þó, að hjálmurinn heföi dreg
iö svo mikiö úr högginu, að maður
inn hefði slopið við alvarleg meiösli.
— GP
aðstöðu, að ég varð að vera efstur.ý
sagði Friðrik í viðta'li við Vísi í
morgun. „Þaö er fremur erfið að-
staða, þótt mótið hafi ef til vill
ekki verið sérlega erfitt.“
„Þykir það ekkert sérlega fínt
meðal skákmanna að vera Norður-
landameistari?"
„Það má segja aö ekki þyki
eftir mifelu aö slægjast, aö minnsta
kosti fyrir atvinnumenn. En fyrir
áhugamenn er Norðurlandameist-
aramótið stökkpallur."
„Fyrstu verðlaunin voru 25 þús-
und krónur — er það nægilega há
upphæð tii aö fá sterka þátttak-
endur.“
„Þegar verðlaunin eru hærri,
laða þau sterkari þátttakendur og
frægari og um leið vekur mótið
meiri áhuga, svo að þaö getur betur
staðið undir sér fjárha'gslega."
„Þú segir að erfiðasta skákin þín
í mótinu hafi verið við Jón Krist-
insson. Hver var sú skemmtileg-
asta?“ .
„Ætli það hafi ekki verið síð-
asta skákin. Þegar ég tefldi hana,
va'r ég öruggur um efsta sætið svo
að úrslitin skiptu ekki máli. Ég
var í léttu skapi, og þá gengur
manni oft bezt.“ — ÞB
’ Kynlífsbækur
hverfa af
albjóðlegu-
sýningunni
• Vonandi verða bækurnar
um æsku og kynlíf þeim að
gagni sem nældu sér í þær á
alþjóðlegu vörusýningunni í
gær. „Þetta er talsverð fyrir-
höfn að ná bókunum af keöj-
unni“, sagði Örlygur Hálfdánar-
son. bókaútgefandi í morgun,
þegar hann var aö búa sig
undir aö koma nýjum bófeum
fyrir í pop-tjaldinu.
• Greinilegt er að bækur um
kynlíf vekja athygli, enda
þótt bókaforlagið hafi e.t.v.
gert ráð fyrir aö dreifingin færi
fram á annan hátt en þennan.
Á myndinni eru tvær ungar
dömur að glugga í kynlífsbæk-
ur sýningarinnar, og önnur
geispar reyndar ógurlega yfir
innihaldinu. —JBP
faverri tegund. Fyrir utan mobka
skinnin eru gerðar flíkur úr
lambas'kinni, svínaskinni og
kálfaskinni. Úr síðast töldu
tveim tegundunum verða fram
leiddir jakkar buxur og frakkar
bæði fyrir karla og konur.
- SB
Sýningarstúlka sýnir pelsinn nýstárlega á tízkusýningu fyrir
blaðamenn á laugardaginn var. (Ljósm. Vísis BG)
SÁ STÓRSLASAÐI
HAFÐI MEIÐZT
Á PUTTANUM
Nokkur viðbúnaður var á Akur-
eyri í gær vegna slasaðs manns,
sem bandarískt radarskip kom
með til hafnar þangað,- Fjögurra
hrr-'-fla skrúfuþota var send af
varnar’iðinu á Keflavíkurflugvelli
til að sækja manninn, en sjúkra-
bifreið var höfð til taks niðri á
bryggju til þess aö flytja mann-
inn upp á flugvöll
Lóðsbáturinn sótti manninn út
í skip, en þegar báturinn kom að
bryggju, bólaði ekkert á hinum
stórslasaða manni. Hins vegar stökk
einn maður upp úr bátnum með
ferðatösku i hendi og skálmaði
rösklega að sjúkrabílnum, þar sem
hann settist viö hliðina á öku-
manninum frammi í.
Af sáraumbúnaðinum, sem
glöggir menn sáu á einum fingri
annarrar handar á manninum, gizk
uðu þeir á að þetta væri sá slas-
aði, enda var honum ekið í flugvél
ina, sem tók sig strax á loft suöur
á bóginn.
„Dýr mundi Hafliði allur", sagði
einhver í áhorfendahópnúm, sem
beðið hafði á bryggjunni þungbú-
inn og við hinum verstu tíðindum
búinn. — GP