Vísir


Vísir - 29.09.1971, Qupperneq 6

Vísir - 29.09.1971, Qupperneq 6
Btða átekta með opnunar- tímann á Seltjarnarnesi Verzlunum á Seltjamamesi i eftir kvöldi eftir 1. október eða verður frjálst að hafa opið fram | eins og Verið hefur. Fyrir Hver hefur unnið Hvítab j arnar ey ? Þá er þeim er eiga miða í happ drættinu um Hvítabjarnarey loksins kleift, að ganga úr skugga um það, hvort heppnin hafi verið með að þessu sinni. Innsiglið hefur loksins verið rof ið af vinningsnúmerinu hjá sýslu manninum 1 Stykkishólmi og ekki farið leynt með það, að númerið er 7867. Það er Félagsheimilissjóður Stykkisihó'lms, sem stendur að happ drættinu um evna, en farið var af stað með happdrættið í fyrrasumar og þá fyrirhugað að draga í desem- ber. En er kom að drætti kom £ Ijós að miðasala haföi ekki orðiö nógu mikil og drætti því frestað til 1. ágúst s.l. Birting vinningsnúmers dróst þar til nú, þar sem timafrekt hef- ur verið að ná inn og fá þannig upp númer óseldra miða frá sölu- börnum, félögum og einstaklingum vfðsvegar að af landinu, en dregið var úr öllum miðum, seldum jafnt sem óseldum. Ekki hafði enn unnizt tími til að ganga úr skugga um hvort vinn- ingsnúmerið væri meðai óseldra miða. — ÞJM „Ég álít sjálfsagt að kanna hvort unnt er að lækka verð innfluttra bifreiða með sameig- inlegum innkaupum í stórum stfl. Þetta hafa leigubílstjórar skömmu tók hreppsnefnd Sel- tjarnarness fyrir beiðni um að komið yrði á svipaðri reglug“rð á Seltjamamesi og hefur verið samþykkt í Reykj. vík, og vísaði henni frá. „Við tókum þá afstöðu, að viö álitum að það ætti að koma heildar reglugerð fyrir allar verzlanir, í það minnsta á því svæði, sem kall- að er Stór-Reykjavík“, sagöi Karl B. Guðmundsson oddviti í samtali v:" Vísi. „Við töldum rétt að bíða og sjá hverju fram yndi eftir aö reglugeröin tækj gildi £ Reykja- vík“. Þetta er svipuð afstaða og tekin var f bæjarstjórn Kópavogs, en þar var umræöum um svipaða beiðni frestað og ákveðið að bíða átekta fram vfir áramót. — SB gert og því skyldu aðrir ekki geta gert það líka?“ Þannig komst Stefán O. Magnússon for- stjóri að orði f samtali við Vísi, en Stefán flutti tillögu um þetta mál á síðasta landsþingi FÍB. Stefán sagöi, aö f fyrra heföu um 30 leigubflstjórar í Reykjavfk pant- að sömu gerð bífréiða ’ f' einu '''tíþ'" hefði verðið viö þaö lækkað um 30 þúsund krónur á hverja bifreið. Að sjálfsögöu kaupa menn yfirleitt ódýrari bifreiðir til einkanota og því yrði afslátturinn ekki jafnhár í krónutölu. „En þegar menn kaupa nýja bifreið munar þá oftast um hverja krónu og því finnst mér ekk ert álitamál, aö FÍB geri könnun á þessu ef það mætti verða til að einhver lækkun fáist.“ Vísir haföi tal af Guölaugi Björg- vinssyni, framkvæmdastj. FÍB og spurðist fyrir um álit stjómar félagsins á þessari tillögu Stefáns, sem samþykkt var á þinginu. Guð- laugur sagði stjórnina ekki enn hafa komiö saman og fyrr gæti hann ekkert um máliö sagt, — SG Kröfur verzlunarmanna: l Nái því saitici og • opinberir • starfsmenn : Verzlunarmenn vilja fá sams kon J ar kjör fyrir verzlunar- og skríf- • stofufólk og opinberir starfsmenn J náðu í fyrravetur fyrir starfsgrein- • ar, sem verzlunarmenn telja sam- • bærilegar. í öðru lagi er krafizt J kauphækkana til handa hinum • Iægstiaunuðu f samræmi við þær J kröfur, sem verkalýðsfélögin hafa J almennt gert. • Guðmundur H. Garðarsson for- J maður Verzlunarmannafélags J Reykjavíkur sagði f gær, að taka • yrði tillit til þess, að staða verzlun- J arfól'ks, sem starfaði í frjálsu at- • vinnulífi, væri að því leyti verri J en opinberra starfsmanna, að verzl- J unarfólk byggi við uppsagnar- • áhættu. J Kröfumar voru samþykktar á J fjöfeóttum fundi Verzlunarmanna- o félags Reykjavíkur í fyrrakvöld. J — HlH • Fræðslumála- skrifstofan er flutt í fræðslumáladeild Menntamálaráðu- neytisins Hverfisgötu 6, fjórðu hæð. Sími er hinn sami og í Stjórnarráðinu, nr. 25000. Fræðslumálastjórl. Keflavík Vantar blaðburðarböm í Keflavík. VISIR Upplýsingar í afgreiðslunni. — Sími 1349. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 66. 67. og 69. tbl. Lögbirtingablaðs 1969 á Vitastíg 3, þingl. eign Lakkrfsgerðarinnar hf. o. fl. fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavik, Útvegsbanka íslands og Heimis Hannessonar hdl., á eigninni sjájfri, föstudag 1. október 1971, ’d. 11.30. Borgarfógetaembættið I Reykjavfk. AlíGlíJVég hvili Æm I meá gleraugum fiú ÍWiI^ Austurstræti 20. Slmi 14566. Vilja gera sameigin- leg inr iaup á bílum Eru rollurnar „heilagar kýr"? B. í Keflavfk skrifar: „Mér koma í hug þau vand- ræði, sem Reykvíkingar höfðu hér fyrir nokkrum árum við að stríða vegna sauðfjárhalds í borgarlandinu. Ennþá heyri ég, að Árbæingar kvarta undan skemmdum sauðkinda í görðum þeirra. Einmitt þessi sömu vandræði steðja að hjá okkur héma í Keflavfk og Njarövíkunum. Menn. eru hér orðnir svo van ir spjöllum í görðum sínum af völdum sauðfjár, að þeir eru nánast hættir að kippa sér leng ur upp við það, þótt þeir verði fyrir ca. tfu þúsund króna skaða á blómum og trjám, svona eftir eina heimsókn. Það þykir ekkert tiltökumál orðið. Auövitað hefur verið kvartað undan þessu við sauðfjáreigend ur, eo það hefur reynzt vita árangurslaust, enda em þeir jafnsauðþráir sjálfir, og þessar skepnur þeirra. Við brögð eins þeirra era dæmigerð fyrir þá alla, en hann sagði, þegar þetta var fært f tal við hann: „Ef fólk þolir ekki skepnur í nánd við sig, þá verður það sama fólk bara að flytja burt úr byggðárlaginu." Það er sem sagt ekki nóg með, að menn megi þola spjöll á eign- um sfnum bótalaust. Þeir mega héldur ekki æmta, án þess að það sé lagt þeim til lasts, og þeir sagðir haldnir einhverju „afbrigðilegu hatri“ til dýra. Hérna blasir við okkur suður frá 80 hektara n’érækt hesta- manna, sem kostaði áreiðanlega skildinginn, því að ég veit að bara áburðurinn í hana kostaði um kr. 70 þúsund. Þar eru á hverjum degi hópar sauðfjár á beit, og þykir þó ekki beinlínis vera heppilegt. þar sem á að rækta upp tún, að beita sauð- fé S nýgræöinginn. En bað má ekkert blaka við þessu. Þessar rollur hér eru ná kvæmlega eins og hinar „heil- ögu kýr“ Indverjanna. Og á meðan situr við þetta sama, — nema einhver gæti kom ið þessum mönnum f skilning um það, að það sé ekk; einfald- asta 'ausnin . að annað fólk bara flvtil úr bvf»!»*ar1aginu“ heldur að nær væri fvrir bfi. sem áhuea hafa á búskap, að flytia upp til sveitá með skepnuhald sitt.“ Sérfræðing- arnir eru hér PrófeSsor Sigurður Samúelsson skrifar: „Gjörið svo vel og birtið í dálknum „Lesendur hafa orðiö“ eftirfarandi leiöréttingu við um sögn með fyrirsögn: „M. R. hringdi, eftirfarandi“ Hvar eru sérfræðingarnir? sem birtist í blaðinu 21. sept. s. 1. Fyrsti íslenzki læknirinn, sem hlaut sérfræðiviðurkenningu í lyflæknisfræði með nýrnasjúk- dóma og blóðsiunarmeðferð (gervinýra) sem undirgrein, var Páll G. Ásmundsson í júlí 1969 og var hann ráðinn við Land- spítalann sem slíkur, Annar íslenzkur Iæknir Magnús Ó. Magnússon hlaut samskonar sér fræðiviðurkenningu í okt. 1969. Sveigt er að Þóri Halldórs- syni lækni á leiðinlegan hátt í grein þessari þar sem sagt er, að þegar gervinýmameðferð hafi byrjað hér á landi „var fluttur inn með því hálfmenntaöur mað ur til að hafa yfirumsjón með því hér“. Hér er um algjöran misskilning að ræða. Þór Halldórsson starfaði þá á lyflæknisdeild Landspftalans um ý2 árs skeiö og stjómaði blóð síunarmeðferð og framkvæmdi þau störf að öllu leyti með á- gætum, enda hafði.hann þá hlot ið þjálfun f sérgrein þessa á háskóladeildum f Svfþjóð, sem uppfyllti skilyrði til sérfræðivið urkenningar hér á landi. Mjög óvænt stóðum viö sumarið 1968 frammi fyrir þeim vanda að flytja sjúkling af spítala erlend is til gervinýmameðferðar hér heima, þar sem öll sund vora lokuð að slíkar sérdeildir f neinu nágrannalanda okkar tækju við honum til langvarandi meðferð ar. Fyrir sérstaka hjálpsemi eins þekktasta sérfræðings Svfa f þessum efnum, fengum við Þór Halldórsson lækni lánaðan frá deild þessa prófessors í Upp- sölum. Stöndum við þvf í ó- bættri þakkarskuld við báða þessa lækna. Er ömurlegt til að vita að menn eins og ,.M. R.“ ráðist af vankunnáttu á velgerðarmenn okkar á þessu sviði.“ HRINGIÐ í SÍMA1-16-60 KL13-15

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.