Vísir - 29.09.1971, Page 13

Vísir - 29.09.1971, Page 13
' M iXfl i.i r T ' rr ^ ’ r » i : V í S I R . Miðvikudagur 29. september 1971. ?3 Gatið á brúnni Freymóður sýnir í Málaranum Nei, þetta er ekki ljósmytid, heldur málverk eftir Freymóð Jóhannsson, sem varö marg- frægur á umliðnu ári fyrir ýmis meiri eðá minniháttar afskipti af opinberum málum. — Frey- móður sýnir þessa dagana 10 ný oliumálverk eftir sig í Mélara glugganum, Bankastræti en þar munu 5 myndir hanga uppi í einu. Eins og sést á myndinni hér með er Freymóður afar ná- kværnur við að ná fyrirmynd þeirri, sem hann ætlar að mála og er einn frægasti slíkur af ís- lenzkum málurum. Aðeins 40 af 268 komust í Samvinnuskólann Mikrl aðsókn hefur verið að Samvinnuskólanum Bifröst. en vegna þrenngsia komust aðeins 40 af 268 umsækj. í 1. bekk skóians í vetur. Við setningu skólans á dögunum skýrði skólastjóri, séra Guðmundur Sveinsson frá því, að alls yrðu 79 nemendur i skólanum í vetur og harmaði hann þrengslin, sem skólinn býr við og taldi alls ó- viðunandi. — í vetur verður sú breyting á námsskrá skólans, að kennsla 1' stjórnunárfr. og tölvufræðum veröur aukin veru- lega i takt við timans kröfur. í setningarræðu sinni minnt- ist skólastjóri séra Sveins Vikings, fyrrum biskupsritara, sem lézt nú í sumar, en séra Sveinn Víkingur gegnd; tvívegis skólastjórastörfum við skólann. Tilkynnti skólastjóri að sérstak- ur sjóður yrði myndaður í minningu séra Sveins Víkings. Stýrimannaskólar á Akureyri og Ólafsvík 1 vetur verða starfræktir 1. bekkir stýrimannaskóla á Akur- eyr; og ’i Ólafsvík, en nemend- ur sem ljúka prófum upp úr þessum bekk næsta vor hafa þá réttindi til að stjórna 120 tonna fiskibáti. Gert er ráð fyrir í lög- um, að 1. bekkur stýrimánna- skóla sé haldinn annað hvert ár á Akureyri, ísafirði og Nes- kaupstað, en það var ekki fyrr en í fyrra að næg þátttaka fékkst til að halda slíkt nám- skeið, sem þá var haldið á Nes- kaupstað, þá með 10 nemend- um. Námskeiðið í Ólafsvík er hins vegar haldið með sérstöku leyfi áð undangengnum eindregnum óskum heimamanna, enda höfðu borizt 19 umsóknir á staðnum. — Mikill skortur hefúr verið á mönrmrH meö réttindi-á minni fiskibátana og koma þv\ þessi námskeið í góðar þarfir. Þeir nemendur, sem ná framhalds- einkunn geta einnig haldið á- fram námi í Stýrimannaskólan- um í Rvík, en fyrirhyggjusamt þykir fyrir unga menn, sem ætla aö leggja fyrir sig stjórnun á sjó að afla sér állra réttinda með framtíðina fyrir augum. Kathrein sjónvarps og loftnetskerfi fyrir fjölbýlishús og einstakar íbúðir. Loftnet fyrir allar rásir. Allar nánari upplýsingar fúslega veittar hjá umboðinu. GEORG ÁMUNDASON & CO. Suðurlandsbraut 10. Sími 81180 og 35277. Skrifstofustúlkur óskast til starfa sem fyrst. — Verzlunar- Kvennaskóla- Samvinnuskóla- eða hliðstæð menntun áskilin. Upplýsingar veitir Starfsmannadeild. Rafmagnsveitur ríkisins Laugavegi 116. Sími 17400. SKOT-NAGLAR Margir kánnast við söguna af gatinu á brúnni, sem forystusauð- irnir steyptust niður um og s'iðan kom hjörðin á eftir og fór sömu leið. í>að er víst eðli bæði manna og dýra að elta í blindni þá, sem á undan fara. hvort heldur það er fram af hengiflugi eða niður um gat á brú Vísir, 23. september 1971, fræðir okkur um stærsta umferðargat, sem um er getið til þessa. Niður um þetta gat steypást alltof margir daglega, og gatið heldur áfram að stækka dag frá degi án þess að minnsta raunhæf tilraun sé gerð til að byggja yfir það. Vísir segir að fjöldi tjóna hafi aukizt um 22,7% fyrri hluta þessa árs, og tjónáverðmæti um 74,3% og fjöldi slasaðra í Reykjavík um 30% á sama ti'ma, Hvað skal lengi svo fram halda, án þess að eitthváð raunhæft verði reynt að gera? Ég held þó, að flestum sé það ljóst, aö margir af þeim, sem slas- ast í umferðinni, ná sér áldrei til fulls, og alltof margir týna' lifinu auk margs annars, sem öhjákvæmi- lega fylgir. svo sem blóð, tár og óbætanlegt tjón Það vekur bæði undrun og ótta, að framkvæmdastjóri Umferðar- ráðs, skuli lýsa þvi yfir að ,,góð ráð séu það dýr“, að raunverulega sé ekkert hægt að gera fyrr en ljóst er hvað alþingi veitir mikið fé til þessára mála. Ég skal samþykkja það. að þau ráð sem hann nefnir eru bæði dýr og seinvirk, en ég efa að þau séu að sama skap; góð. Ekki ætla ég mér að fara að standa í deilum viö eða um Umferðarráð, og nota- gildi þess fyrir umferðina. Hitt finrísÉmðr þó hæpið, ef á að kenna fyrrverándi dómsmálaráðherra ein- um um, hvað gatið stækkar ört dag fá degi. Að lokum langar mig tfl að benda á þann bölvald sem eg tel mestan V umferðinni. En hann er tillitsleysið og frekjan. íslenzka þjóðin er orðin allvel menntuð, og ekki tel ég okkur vera verr innrætta en aðra, það sésf bezt á því, þegar þarf að rétta bág- stöddum hjálparhönd. En við erum haldnir dál'ítilli minnimáttarkennd. en hún brýztút f tillitsleysi og frekju, af óttá við, að aðrir séu .að gera á hlut okkar, en það þolum við verr en flest annað. Ég trúi þvf að hægt sé að kenna okkur bæði tillitssemi og umburðar- Iyndi í umferðinni. án þess að kostá miklu til. Ég trúi þvf ennfremur, að kennsla í þessu sé happádrýgsta leiðin til að sigrast á slysum og tjóni. Ég veit, að hver sem temur sér tillitssem; í umferðinni leggur sitt af mörkum til að byggja rrpp !i gatið á brúnni. Ég trúj því, að ökukennarar muni fúsir að auka þennan þátt kennslu unnar án aukagjalds. (Enda mætti kannski að skaðlausu draga dálítið úr kennslu um afsalútt rétt í um- ferðinni, því það er svo margf ó- vænt og óviðráðanlegt sem getur gerzt f henni. Ég þykist vita. að til sé fólk, sem erfitt yrð; að kenna þennan þátt umferðarinnar. En það ætti þá að vera hægt að hvila það á akstri einn og einn dag i einu, án þess að kosta miklu til í skriffirmsku eða dómsskjölum. Það geta alHr séð sem vilja, og eitthvert vit hafa á umferð, að hér er ekki lengur um umferðarmerm- ingu að ræða. heldur hrollvekju. Þess vegná er ekki hægt að bíða og aðhafast ekkert jákvætt. Ingi Guðmundsson, Álftamýri 40. V1S8R Ódýrari en aárir! SHODtt LEÍGAN AUÐBREKKU 44-46. SIMI 42600. Consul 315 árg. ’62 til sölu til niðurrifs. Uppl. í 85193 eftir |d. 6. Verkamenn óskast strax. — Upplýsingar í sðna 8§S9Q. BREH>HOLT HF. Lágmúla 9. Sinfómuhliómsveit Islands Orðsending til áskrifenda Þeir, sem tilkynnt hafa endumýjun og/eða pantað áskriftarskírtéini, em góðfúslega beðnir að vitja þeirra nú þegar eða í allra síðasta lagi 1. október. Ársefnisskrár má vitja í bókabúð Lárusar Blöndal, bókaverzlun Sigfúsar Eymundssonar og í Ríkisút- varpið Skúlagötu 4. Athygli er vakin á því, að sætin eni tölusett. Fyrstu tónleikamir verða f Háskólabíói fimmtudaginn 7. okt. Stjórnandi George Cleve og einleikari Jörg Demus.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.