Vísir - 29.09.1971, Blaðsíða 16

Vísir - 29.09.1971, Blaðsíða 16
 Þriðjudagur 28. september 1971 Engar fréttir i útvarpi og sjönvarpi Frá og með aðfaranótt föstudags hættir allur fréttaflutningur í danska útvarpinu og sjónvarpinu, eftir að danska útvarpsráðið hefur hafnað miðiunartillögum sátta- ';emjara. Fréttamenn við útvarp og sjón- varp fara í verkfall, og það kemur niður á öllum fréttásendingum og öðrum þáttum, sem byggjast á framlögum fréttamanna og ljós- myndara. Samúðaraðgerðir eru ráðgerðar hjá fréttastofum til að hindra, að fréttaefnj berist til útvarps og sjón- varps, meðan deilan stendur. Meðal annars er deilt um birt- ingarrétt á efni. — HH Lubbaskapur setur rakara í vanda — Ungir og aldnir kærulausir með hárhirbingu — Margir rakarar hafa hætt i faginu „Við erum að reyna að vekja fólk til umhugs unar um, að það þarf að snyrta sítt hár, ekki síð- ur en stutt — og þess vegna förum við þessa auglýsingaherferð nú“, sagði Páll Sigurðsson, formaður Rakarameist- arafélags Reykjavíkur er Vísir hafði tal af honum í gær. Sagði Páll að nú hefði mjög harðnað á dalnum hjá hársker- um. „Það eru ekk,- bara ungling- ar sem safna hári og láta það vaxa, án þess að snyrta það — eldri menn eru líka orðnir kæru- lausari með hár sitt“, sagði Páil, „og þetta hefur orsakað sam- drátt í stéttinni. Margir rakarar hafa hætt í faginu og aðrir bíða eftir að finna starf við hæfi — það eru ekki allir sem geta dembt sér út í erfiðisvinnu, kannskj komnir á miðjan ald- ur“ Sagði Páil að eitthvað yrði að gera' til að vekja fólk til með- vitundar um hársnyrtingu. „Útlendingar sem hingaö koma eru hissa á að sjá hér vel- klædda unglinga með hippahár. Þótt hárið sé sítt, þá þarf ekki síður að snyrta það tii, þvo það og greiða og ég veit að þetta Útflutningur á kisilgúr fyrir 32 milljónir i septenmber: Húsmæður vinna við útskipun Útflutningur á kísilgúr er meiri í september en nokkru sinni fyrr á einum mánuði. Verða samtals flutt út 2.800 tonn í rnánuðinum og er verð- mæti þessa magns 31—32 millj- ónir króna. Útflutningur á kísil gúr í ágúst og september mun ’~á nema liðlega fjögur þúsund tonnum. Kísilgúrverksmiðjan við Mývatn framleiðir nú um 1900 tonn á mán uði og hefur vart undan. því mikil eftirspurn er eftir framleiðslunni. Er megnið af henni selt til A- Evrópu. Johns Manville hefur opn að skrifstofu á Húsavík og veitir Höskuldur Sigurgeirsson henni for- stöðu. Útflutningurinn hefur skapað mik ið fjör við Húsavíkurhöfn og skipa komur þangað tíðar. Hafa komið þangað um 20 skip á mánuði aö meðaltali í sumar. í gær var verið að skipa út 200 tonnum af kísilgúr og varð að fá nemendur úr gagn- fræðaskólanum til að vinna við út- skipunina því aðeins tveir verka- menn voru á lausum kili til þeirra starfa. 1 morgun var byrjað að skipa út 400 tonnum og aftur hlupu gagnfræðaskólanemar undir bagga. Einnig hafa húsmæður frá Húsavík og af Tjörnesi tekið „tarnlr" við út- skipun við og við. Vinna þær þá í lestunum og þykja ekki gefa karlmönnum neitt eftir í afköstum. - SG Byrja á smíði þaksins er tímabundið ástand. sem breyt ist hér eins og annars staöar. Til dæmis er ástandið að batna í London, en í Danmörku hafa hárskerar átt í erfiðleikum aö fá menn í stéttina. Margir sem safna síöu hári. láta duga að það sé klippt af því heima fyrir — mömmurnar hjálpa þá upp á sakirnar eða kærustur“. — GG Margir rakarar hafa hætt að vinna við sltt fag — sfða b3rf& er nefnilega klippt f heimahúsum — „ekthvað verður að gera tiI að vekja fólk til umhugsunar“, segja rak^cac. wíW**ií&* — Nýstárlegur hyggingarmáti viðhafður i Straumsvik • „Þeir eru að reisa um fjörutíu þúsund tonna súrálsgeymi í Straumsvík og byrja á srníEi þaksins,“ var Vísi sagt í óspurðum fréttum í gær. Skiljanlega þótti okkur fyrrgreint undarlegur bygg- ingarmáti og snöruðum okkur því suður eftir, því að sjón er alltaf sögu ríkari. Viti menn, á svæöinu var haf in smíði súrálsgeymis með þeim hætti er frá var skýrt. Búið var að reisa grunninn, en þar ofan á hvolfdist þakið, en útveggi var hvergi að sjá. Er við tókum að spyrjast fyr ir um þá fengum við kynleg svör sem fyrr. „Við skrúfum upp geyminn og bætum stálplötum neðan viö veggina jafnóðum,“ útskýrðu verkamennirnir á svæð inu, rétt eins og ekkert væri sjálfsagðara. Málin tóku aö skýrast eilítið er komið var nær geyminum. Kom þá 1 ljós, að útskýringarn- . j . t ar, sem við höfðum fengiö voru réttar í bókstaflegum skilningi. Með sérstökum hjólaútbúnaöi er það gert kleift, að snúa geymin um sem tappa á flöskustút og £ hvert sinn sem geyminum hef ur veriö snúið er mögulegt að bæta nýrri stálplötu £ vegginn. Einfalt, ekki satt? Það er sænskt fyrirtæki, sem hefur einkarétt á þessum bygg ingarmáta og reisir súrálsgeym- inn £ Straumsvfk. Að sögn forsvarsmanna álvers ins var þessi leið farin viö smíði geymisins þar eð hún er tvimælaiaust fljótlegri en aðrar sem þekkjast. —ÞJM Stúdentar mótmaela byggingu verkamanna- bústaða, eHihermíía og hjónagarða stúdenta Unnið að frágangi hvolfþaks súrálsgeymisins. Hægt og sígandi mun þakið svo hækka upp í 55 metra hæð. Ef vel er að gáð má sjá skrúfganginn á útveggjunum. • Stjórn Stúdentafélags Háskóla íslands samþykkt; á fundi sin- um þann 16. september 1971 eftir- farandi ályktun með öllum greidd- um atkvæðum. Ályktun þessi er send öðrum stúdentasamtökum, byggingasamvinnufélögum, opinber- um ráðamönnum, stjórnmálaflokk- um og fjölmiðlum. „Háþróuðum iðnaðarþjóöfélögum fýigja ýmis illleysanleg vandamál, sem við enn erum að mestu laus við. Miklu fé og fyrirhöfn er nú eytt til að leysa stórborgarvanda- mál, en orsaka þeirra er að leita áratugi aftur i tímann er þekk- ing manna á samfélaginu var miklu minni en nú. Er. m. a. reynt að sporna viö þeirri þróun, að ein- stakir þjóðfélagshópar einangr; sig í mannhafinu, með því að blanda þeim saman. Farið er að bera' á þessari öfug- þróun hér á landi t.d. með bygg- ingu verkamannabústaða, elliheim- ila og hjónagarða stúdenta. Stjórn S.F.H.Í. beinir því þeirri áskorun til almennings og viðeig- andi ráðamanna að leysa vandamál augnabliksins á annan hátt en á kostnað framtíðarinnar. Stjórnin vill með ályktun þessaci aðeins vekja athygli, ekki sizst stúdenta, á þessum vandamálum." Með beztu kveðju. Stiúdentafélag Háskóla íslands. Vinnuveitend- ur á fund með forsætisráð- herra • Fulltrúar vinnuveitenda munu dag ganga á fund forsætisráð- herra til að gera honum grein fyrir viðhorfum þeirra ti; samningamál- anna og stöðu atvinnuvega lands- manna. — Að þvi er Barð! Frið- riksson. hjá Vinnuveitendasam- band; Islands sagði x viðtali við Vísi er ekki við því að búast, að atvinnurekendur komi með gagn- tilboð við kröfum verkalýðsfélag- anna næstu daga. Á morgun munu atvinnurekendur halda fund með 9 manna nefnd ASl. — VJ

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.